Bændablaðið - 16.04.2002, Side 2
2
BÆNDABLAÐIÐ
Þnðjudagur 16. apríl 2002
Nautakjöts-
framleiðsla á
tímamótum:
RáOstefna á vegum LK
Næstkomandi fimmtudag, 18.
apríl, verður haldin ráðstefna á
vegum Landssambands kúa-
bænda um nautakjötsfram-
lciöslu á Islandi, undir heitinu
Nautakjötsframleiðsla á tíma-
mótum. Ráðstefnan verður lialdin
í Rúgbrauðsgerðinni að Borgar-
túni 6 í Reykjavík og hefst hún
kl. 10:30.
Snorri Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri LK, sagði að sam-
bandið heföi gengist fyrir svipuðum
vinnudegi fyrir tveimur árum,
fyrir þá sem eru eingöngu í
nautakjötsframleiðslu. Að þessu
sinni er ráðstefnan viðameiri og er
bæði fyrir nautakjötsffamleiðendur
og mjólkurframleiðendur, og líka
fyrir ráðunauta og aðra þá sem
þjónusta bændur.
„Við viljum varpa ljósi á stöðu
mála í dag, sem og framtíðarsýn
og ekki síst á það sem er að gerast
í Evrópu i styrkjamálum og
fleiru,'“ sagði Snorri Sigurðsson.
Ráðstefnustjóri verður
Guðmundur B. Helgason, ráðu-
neytisstjóri landbúnaðarráðuneytis
og setur hann ráðstefnuna.
Þórólfur Sveinsson, formaður LK
flytur síðan ávarp.
Eftir ráðstefnuna geta allir
þátttakendur farið á sýninguna
Matur 2002, en sýningin er haldin
í nýja sýningar- og íþróttahúsinu í
Kópavogi og er opin þennan dag
til kl. 20:00. Sjá nánar auglýsingu
í blaðinu á bls. 21.
Þröstur sagði að miðað við hálmnotkunina á Stóra-Ármóti í vetur væri
markaðsverð á hálmi of hátt og því tæpt að sparnaður hlytist við að nota
hann miðað við að setja upp grindur eða hvað þá taðhús. „Með aukinni
kornrækt og þá meira framboði af hálmi gæti þetta orðið raunhæfari
kostur,” sagði Þröstur sem hér má sjá í fjárhúsinu.
KannaS hvernig
kindur prífast á hálmi
„Við erum að kanna hvernig
ærnar þrífast á hálmi í köldu
fjárhúsi. Víða fellur til hálmur
og með tilkomu rúlluvæðingar
eru hlöður jafnan vannýttar.
Maður veltir því fyrir sér hvort
ekki sé möguleiki að nota þær
sem ijárhús án þess að leggja út í
mikinn kostnað. í því sambandi
getur hálmur komið til greina.
Við erum að reyna að gera
okkur grein fyrir hve mikið þarf
af hálmi svo skepnunum líði vel,
þ.e. það sé vel þurrt undir þeim
og þær séu þrifalegar," sagði
Þröstur Aðalbjarnarson, ráðu-
nautur hjá Búnaðarsambandi
Suðurlands um athugun á
tæplega 80 kindum sem nú fer
fram á tilraunastöð BSSL og
RALA á Stóra-Ármóti.
Athugunin hófst 10. nóvember
á liðnu ári þegar kindumar vom
rúnar og settar í skemmu á til-
raunastöðinni. Auðvitað er full-
snemmt að biðja um niðurstöður
en Þröstur sagði að miðað við
hálmnotkunina í vetur þyrfti 35-40
kg á hundrað dögum á hverja kind.
í þessu tilviki er reiknað með 65%
þurrefni í hálminum. Mjög rúmt er
á kindunum á Stóra-Ármóti og
hann sagði að þeim liði vel, alla-
vega væru þær feitar og pattara-
legar. „Ég hef sjaldan séð kindur
sem hafa haft það jafn gott á húsi,"
sagði Þröstur. „Þeir bændur sem
hafa aðgang að ódýmm hálmi og
eiga skemmur eiga tvímælalaust
að hugsa um þessa leið sem mögu-
leika,“ sagði Þröstur. En hann gat
þess jafnframt að miðað við hálm-
notkunina á Stóra-Ármóti í vetur
væri markaðsverð á hálmi of hátt
og því tæpt að spamaður hlytist
við að nota hann miðað við að
setja upp grindur eða hvað þá tað-
hús. „Með aukinni komrækt og þá
meira framboði af hálmi gæti þetta
orðið raunhæfari kostur,“ sagði
ráðunauturinn. Hann bætti við að
fleiri þættir þurfí að koma inn í
reikninginn áður en hægt er að
segja til um hvað borgar sig best.
Eins og fyrri daginn verður að
meta hvert dæmi fyrir sig á for-
sendum viðkomandi bónda.
Þröstur reiknar með að koma
frekari upplýsingum um verkefnið
á framfæri í landbúnaðarritinu
FREY. Þess má geta að Þröstur
vinnur einkum að gæðastýringu í
sauðtjárrækt, búrekstrartengdri
ráðgjöf og átaksverkefninu Sóma
sem er hliðstætt Sunnuverkefninu,
sem margir þekkja, en Sómaverk-
efnið er ætlað sauðQárbændum.
Gunnar Sæmundsson, stjórnarmaður í BÍ, um
frumvarp til laga um landgræðslu
Skapa á Lantfgræðslunni
alnæðisvald í gróðurmálum
- LandgræOslan á að leiObeina, framkvæma og órskurða og refsa, að sðgo Gunoars
í síðasta Bændablaði var sagt frá frumvarpi til
laga um landgræöslu sem lagt hefúr verið fram á
Alþingi. Á haustdögum 1998 skipaði þáverandi
landbúnaðarráðherra, Guðmundur Bjamason, nefnd
til að gera tillögur um stefnu í landgræðslu og
gróðurvemd, sem og að semja ný lög um
landgræðslu. I nefndinni vom Sigurður
Guðmundsson, starfsmaður Þjóðhagsstofnunar sem
var formaður, Hugi Ólafsson frá
umhverfisráðuneytinu, Níels Ámi Lund frá
landbúnaðarráðuneytinu, Sveinn Runólfsson
landgræðslustjóri, Snorri Bjöm Sigurðsson
sveitarstjóri frá Sambandi sveitarfélaga, og Gunnar
Sæmundsson bóndi frá Bændasamtökum Islands.
Bændablaðið leitaði til Gunnars um viðhorf hans til
þess frumvarps sem nú hefúr verið lagt fram. „Við
lögðum mikla vinnu í tillögu að stefnumótun fyrir
landgræðslu og frumvarp að landgræðslulögum. Við
skiluðum svo þessari vinnu til landbúnaðarráðherra
sem þá var orðinn Guðni Ágústsson,“ sagði Gunnar.
Var einhugur í nefndinni?
„Vissulega var tekist á um ýmsa hluti í þessu
starfí eins og gengur. Eitt af ágreiningsmálum var
hvort setja ætti Landgræðslunni stjóm, en um það
náðist ekki einhugur. En við skiluðum sameiginlega
af okkur. Ég tel rétt að það komi fram að flest alla
fundi nefndarinnar hafði Sveinn með sér Andrés
Amalds sem aðstoðarmann.“
Það er ekki ykkar frumvarp sem lagt er fram nú?
„Nei, ekki aldeilis. Það merkilega er að blekið á
undirskriftum okkar var varla þomað þegar
Landgræðslumenn vom famir að veifa nýju
fmmvarpi sem var samið eftir þeirra kokkabókum.
Á Búnaðarþingi árið 2000 fengum við svo drög að
tveimur fmmvörpum til skoðunar. Og svo kemur
þetta fram nú, sem gengur lengst í því að skapa
Landgræðslunni nánast alræðisvald i gróðurmálum.
Þeir eiga að leiðbeina, framkvæma, úrskurða og
refsa. Ég efast um að þetta ffumvarp standist
sjómsýslulög og tel reyndar að það stangist á við
fleiri lög. Ég skil ekki það framferði forystumanna
einnar stofnunar að standa svona að málum eins og
hér hefúr verið gert. Geta ekki staðið við það sem
menn hafa unnið að og samþykkt. Svona vinnubrögð
auka ekki á trúverðugleik viðkomandi stofnunar.“
Nú var Qallað um þetta mál á síðasta
Búnaðarþingi.
„Búnaðarþing ályktaði um málið, en fól stjóm að
öðru leyti að ganga ffá umsögn til Alþingis. Við hjá
BÍ höfum verið að láta lögfræðing okkar skoða
fmmvarpið og hann hefur margt við það að athuga.
Ég vísa því á bug sem kemur fram í skýringum með
þessu fmmvarpi, að það sé að stofni til byggt á vinnu
þeirrar nefndar sem ég starfaði i. Það er rangfærsla,
hér er allt annað fmmvarp og allt önnur stefna á
ferð,“ sagði Gunnar að lokum.
Bændablaðið
Bændablaöið kemur út
hálfsmánaöarlega. Því er dreift til allra
bænda landsins og fjölmargra annarra er
tengjast landbúnaði. Bændablaðinu er
dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap
en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur
að blaðinu. Árgangurinn kostar kr. 4.200
en sjötugir og eldri greiða kr. 2.000.
Sími: 563 0300 - Fax: 552 3855 - Kt:
631294-2279 Ritstjóri: Áskell
Þórisson (ábm.) Auglýsingastjóri:
Eiríkur Helgason, blaðamaður:
Sigurdór Sigurdórsson
Netfang blaðsins er bbl@bondi.is
Prentun: ísafoldarprentsmiðja
Nr. 152
Blaðinu er dreift
í 6.400
eintökum.
Dreifing:
íslandspóstur.
ISSN 1025-5621