Bændablaðið - 16.04.2002, Blaðsíða 10
10
BÆNDABLAÐIÐ
Þríðjudagur 16. apríl 2002
Búvörur hækka minna
en almennt verðlag
í nýlegu svari ráðherra Hagstofu
íslands við' fyrirspum Rannveigar
Guðmundsdóttur um þróun mat-
vömverðs á Norðurjöndunum má
finna ýmsan fróðleik. I fýrirspuminni
var þess óskað að greint væri á milli
verðlags á innfluttum og innlendum
vömm en þær upplýsingar em ekki
fyrirliggjandi. Fjallað er um þróun
verðs á matvælum, grænmeti og
landbúnaðarafurðum en til þeirra
teljast kjöt, mjólk, ostar, egg, græn-
meti, kartöflur o.fl. (flokkar 0112,
0114 og 0117 í vísitölu neysluverðs).
Þegar skoðað er tímabilið 1990-
2000 sést að neysluverðlag hér á
landi hefúr hækkað meira en í hinum
löndunum. Sé þróun verðlags á land-
búnaðarafúrðum borin saman við
þróun neysluverðlags sést hins vegar
að í öllum löndunum hafa land-
búnaðarafúrðir hækkað mun minna
en almennt verðlag. Þessi munur er
ívið meiri hér á landi en bæði í Dan-
mörku og Noregi (sjá aftasta dálk
meðíylgjandi töflu). Merkingarlaust
er að bera saman þróun verðs á bú-
vömm í þessum löndum án tillitis til
breytinga á almennu verðlagi. Rétt er
að undirstrika að vísitölumar sýna
eingöngu verðbreytingar innanlands
í hveiju ríki og af niðurstöðunum
verður því ekkert ráðið um mun á
verðlagi milli ríkjanna.
Erfíðara er að bera þessa þróun
saman við það sem gerst hefúr í
Svíþjóð þar sem þar lækkaði virðis-
aukaskattur á matvömm úr 25% í
12% í ársbyijun 1996. Lækkun
virðisaukaskatts á matvömm hér á
landi breytti hins vegar litlu
varðandi búvömr þar sem 10%
virðisaukaskattur hafði íram af því
verið endurgreiddur af mjólkur-
vömm, kjöti, fiski og innlendu græn-
meti.
Við þetta má bæta að launavísi-
tala hér á landi hækkaði á þessu tíu
ára tímabili um 67,2%. Sé sú
hækkun borin saman við 17.6%
hækkun búvara sést hve geta al-
mennings til kaupa á búvömm hefúr
aukist mikið á umræddu tímabili.
Hlutfallslegar veröbreytingar 1990-2000
Neyslu- Landbúnaöar- Hlutfall af Samanburöur
verðlag afuröir hækkun viö almenna
neysluverðlags veröþróun
Danmörk 23,6 8,7 36,9% -12,1%
Finland 20,9 -11,1 -53,1% -26,5%
Svíþjóöl) 25,5 -5,2 -20,4% -24,5%
Noregur 26,2 13,6 51,9% -10,0%
island 36,8 17,6 47,8% -14,0%
1) í Svíþjóö lækkaöi vlröisaukaskattur á matvörum úr 25% í 12% f ársbyrjun 1996
Hluhir böndans f útsöMi lækkar
Meöfylgjandi mynd sýnir hvernig
hlutur bænda í útsöluverói búvara f
Bandríkjunum og Danmörku hefur
lækkaö á undanförnum áratugum.
Þetta er alþjóðleg þróun og hennar
gætir einnig á íslandi. Margt má
nefna því til stuðnlngs en skemmst
er að minnast úttektar Samkeppnis-
stofnunar á matvörumarkaðnum frá
sfðasta vori þar sem skýrt kom
fram aö smásöluverslunin hefur t.d.
verið að auka sfna álagningu á
lamba- og nautakjöt.
Þegar verðþróun hér á landi
síðustu 2 ár er skoðuö sést glöggt
að búvörur hafa hækkað mun
minna en margir aðrir vöruflokkar.
Meöfylgjandi tafla sýnir hækkanir
á nokkrum undirvfsitölum I
samræmdri vísitölu neysluverðs
frá febrúar 2001 tll febrúar 2002
(sl. 12 mánuði) og frá febrúar 2000
til febrúar 2002 (sl. 24 mánuði).
Innlendar búvörur hafa hækkað
minna en almennt verðlag en
innfluttar vörur s.s. raftæki og
ökutæki talsvert meira. Einnig
fiskur, húsaleiga og tryggingar
svo dæmi séu tekin.
Þröun venölags síðustu tvö ár
Breyting % Breyting %
Liðir s.l. 12 mánuði s.l. 24 mánuði
Vísitalan alls 9,5% 13,7%
Brauð og kornvörur 16,5% 20,3%
Kjöt 7,9% 10,9%
Fiskur 12,4% 16,7%
Mjólk, ostar og egg 6,0% 10,4%
Rafmagn og hiti 2,2% 4,9%
Greidd húsaleiga 6,4% 25,9%
Raftæki 18,8% 17,0%
Kaup ökutækja 12,5% 14,7%
Tryggingar 11,1% 40,1%
Kálfarnir kunnu vel að
meta trépall og dýnu
Aðbúnaður smákálfa á Stóra-
Ármóti, tilraunabúi Búnaðar-
sambands Suðurlands, vakti
athygli gesta á “opnu fjósi“ sem
efnt var til í lok mars. Kálfarnir
eru hafðir á hálmi fyrstu
mánuðina en við þriggja til sex
mánaða aldur eru þeir fluttir í
stíu þar sem er legusvæði með
básadýnu. Bústjórarnir á Stóra-
Ármóti, hjónin Hilda Pálma-
dóttir og Höskuldur Gunnars-
son, sögðu að timburpallur
hefði verið settur í kálfastíuna
skömmu eftir áramót en dýnan í
mars. „Klukkutíma eftir við
vorum búin að setja pallinn á
sinn stað höfðu tíu kálfar af 14
lagt sig á hann. Sama gerðist
þegar dýnurnar voru settar á
pallinn,“ sögðu þau í stuttu
spjalli við Bændablaðið. Hilda
og Höskuldur hófu störf á Stóra-
Ármóti 1. september sl. Þau
voru áður bústjórar á Möðru-
völlum í Hörgárdal '95-'98, en
bæði luku námi á Hvanneyri.
„Bændur eru famir að hugsa
meira um uppeldi á kvígukálfum,
enda skiptir það miklu fyrir bú-
reksturinn. Ef það kemur bakslag í
þroska kálfanna á fyrstu
mánuðunum þá getur það haft mun
meiri og alvarlegri afleiðingar en
ef eitthvað, t.d. fóðurbreyting , á
sér stað ári síðar. Vaxtargetan er
miki! á þessum tíma og ekkert má
út af bera,“ sagði Höskuldur.
Hilda sagði að bændur hefðu
mátt leggja meiri áherslu á uppeldi
kálfa en nú væru viðhorf að
breytast. „Það verður æ algengara
að sjá mjólkurkálfa á hálmi.“ Þá
benti Höskuldur á að með sí-
aukinni komrækt hafí æ fleiri að-
gang að hálmi sem nota má sem
undirburð.
Þau bættu því við að í eldri
fjósurn væri einfaldlega ekki gert
ráð fyrir aðstöðu fyrir uppeldi
smákálfa. „Bændur sem komu
hingað þegar efnt var til “opins
fjóss“ spurðu mikið út í þessi mál -
meðal annars um það hvort hál-
mnotkuninni fylgdi mikil vinna.
Því er til að svara að þegar kálfamir
eru litlir er hálmnotkun lítil og
vinnan þ.a.l. auðveld. Þegar
mjólkurskeiði lýkur eykst hálm-
notkunin mikið og vinnan að sama
skapi. Þá höfúm við flutt kálfana í
stíu með dýnu.“
„Auðvitað útheimtir dýnan
aukið pláss,“ sagði Hilda og
nefndi að einhverjir bændur hafa
afmarkaða legubása með dýnum
fyrir litlu kálfana „en þá virðast
þeir sækja síður upp á dýnumar
enda fá þeir þá ekki ylinn og fé-
lagsskapinn hver ffá öðrum - sem
þeir sækjast eftir.“ Þá má geta
þess að bóndi undir Eyjaljöllum
setti dýnuna einfaldlega á hallandi
vömbretti og eins hafa menn
prófað sand í legusvæði.
Höskuldur sagði að kálfamir
sem hefðu aðgang að dýnu væm
ögn sóðalegri en væm þeir á stein-
bitum, en í sjálfu sér skipti það
ekki máli þar sem líðan kálfanna
væri greinilega betri. Hann hefði
merkt umtalsverðan mun á þeim
kálfúm sem þurftu að liggja á
steinbitum eða þeim sem höfðu tré
eða dýnu. Auðvitað fylgdi því
nokkur vinna að fara í stíuna og
skafa af dýnunni en hún væri ekki
umtalsverð.
Formaður LK fagnar
afdráttarlausri niðurstfiðu
landbúnaðarráðherra
„Ég fagna afdráttarlausri niður-
stöðu landbúnaðarráðherra.
Umsókn sem þessi hefur aldrei
komið til afgreiðslu land-
búnaðarráðuneytisins og í svari
þess er að finna margt um
afstöðu þess til túlkunar á
gildandi lögum um innflutning
dýra og búljárrækt. Af þeim
sökum einum er svarið mjög
áhugavert,“ sagði Þórólfur
Sveinsson, formaður Landssam-
bands kúabænda, þegar Bænda-
blaðið spurði hann álits á þeirri
niðurstöðu landbúnaðarráðherra
að hafna umsókn NRFÍ.
Þórólfur sagði að um efnis-
þætti málsins væru eflaust skiptar
skoðanir og ljóslega væri um-
fjöllun ráðuneytisins um ræktunar-
mál að hluta byggð á misskilningi.
Að mati Þórólfs er eftirfarandi
málsgrein í niðurstöðu ráðu-
neytisins grunnþáttur í svari þess:
„Samkvæmt 6. gr. laga nr.
54/1990 hefúr landbúnaðarráðu-
neytið eftirlit með og ber ábyrgð á
innflutningi búQár og erfðaefnis
sem heimilaður er samkvæmt
lögunum. Það er afstaða ráðu-
neytisins að innflutningur erfða-
efhis til blöndunar við íslenskt
kúakyn verði ekki leyfður nema
hann sé liður í sameiginlegri
ræktunarstefnu íslenskra bænda og
rökstuddur með þörf búgreinar-
innar.“
Þórólfur sagðist túlka þetta svo
að ráðuneytið hafí með þessari
ákvörðun sinni ekki aðeins hafnað
umsókn NRFÍ, heldur kynnt þá
ákvörðun sína að hafna því al-
mennt að lagaheimild verði nýtt til
að veita ræktunarfélagi sem ekki
hefði meirihluta kúabænda innan
sinna vébanda, leyfí til innflutn-
ings á erfðaefni sem ætlað væri til
blöndunar við íslenskt kúakyn.
Þessi afstaða ráðuneytisins hafí
ekki komið fram áður.
Kynning á forritum
Bændasamtaka íslands
Miðvikudaginn 17. apríl nk. verður Jón Baldur Lorange, forstöðu-
maður tölvudeildar Bændasamtaka íslands, með kynningu á forritum
Bændasamtaka íslands. á Kirkjubæjarklaustri. Honum til aðstoðar
verður Fanney Ólöf Lárusdóttir, ráðunautur Búnaðarsambands
Suðurlands. Kynningin hefst kl. 10:00.
Dagskrá:
10:00 Almenn kynning á tölvuþjónustu og forritum Bændasamtaka íslands
Nánari kynning á forritum:
11:00 WorldFengur - alþjóðlegur gagnabanki um íslenska hestinn
11:30 ÍSKÝR - forrit fyrir kúabændur
12:00 Hádeglshlé
13:00 NPK - jarðræktarforrit fyrir bændur
13:30 Fjárvís - forrit fyrir sauðfjárbændur
14:00 dkBúbót- bókhaldsforrit fyrir kúabændur
15:00 Umræöa og lausn ýmissa tölvuvandamála.
16:20 Lok.
Þeir sem hafa hug á að koma á kynninguna og nýta sér aðstoð Jóns
Baldurs og Fanneyjar Ólafar vinsamlegast skrái sig á skrifstofu
Búnaðarsambands Suðurlands í síma 487-4818 og geti jafnffamt um
hvaða vandamál sé um að ræða.
Búnaðarsamband Suðurlands og Bændasamtök íslands