Bændablaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 1
14. tölublað 8. árgangur Þriðjudagur 3. september 2002 ISSN 1025-5621 Dalur til landgræOslu Meysluvahi og frárennsli Skýrsla sem starfshópur vann fyrir landbúnaðarráðuneytið um ástand vatnsbóla og frá- rennslismál á Suðurlandi vakti að vonum mikla athygli. Salmonella og campylobacter fundust víða á svæðinu og í ljós kom að frágangur vatns- bóla og frárennslismál voru víða í ólestri. Það var bara Suðurlandið sem skoðað var að þessu sinni, en vitað er að víða er pottur brotinn hvað varðar ástand þessara mála á landinu. Sjá bls. 20 og 21. AOsókn að LBH mjdn göQ Aðsókn að Landbúnaðarhá- skólanum á Hvanneyri er mjög góð, aukning er á nemenda- fjölda bæði í háskólanámi og bændadeild. Kennsla í háskóla- deild hófst 26. ágúst og kennsla í Bændadeild 1. september. í vetur verða 55 nemendur við háskólanám við skólann og 44 nemendur í Bændadeild. Til við- bótar verða tæplega þrjátíu í fjarnámi og svo stunda nokkrir nemendur meistaranám við skólann. AIIs stunda því um 130 nemendur nám við LBH í vetur, en þetta er talsverð aukning frá því í fyrra. Mjög góð aðsókn er að nýjustu námsbraut skólans, umhverfis- skipulagsbraut, en þar var hægt að taka inn 12 nýnema og verður deildin fullsetin og þurfti að vísa nemendum frá. Að sögn Magnúsar B. Jónssonar rektors skólans er það góður vitnisburður um þessa nýju námsbraut að nemendur koma sumir inn með mikinn undirbúning að baki, s.s. fólk sem er starfandi garðyrkju- stjórar eða vinnur við skipu- lagsvinnu hjá sveitarfélögum. í vetur er kennt á þremur náms- brautum á háskólastigi við LBH, búvísindabraut, landnýtingarbraut og umhverfisskipulagsbraut. Það er stefna skólans að víkka út hefð- bundið nám í landbúnaði með því að setja á fót og efla nýjar náms- brautir, annað hvort sem sjálfstætt nám eða undanfara frekara náms t.d. í landgræðslu, landnýtingu, skógrækt eða landslagsarkítektúr. Fullhreinsaður æðardúnn fyrir 200 milljönir! Greint var frá því á aðal- fundi æðarbænda að verð á æðardúni er nú á bilinu kr. 50 - 60 þúsund á kg og hefur sala á honum gengið vel. Á síðasta ári voru flutt úr landi 3.044 kg af fullhreinsuðum æðardúni, að verðmæti tæpar tvö hundruð milljónir. Nú er talið nokkuð öruggt að Bandaríkjamarkaður muni opnast og greint var frá skilyrðum sem líklega munu fylgja innflutningi þangað. Sjá bls. 10 Landgræðsla ríkisins undirritaði nýverið kaupsamning vegna Víði- dals, sem er næsta jörð við Gríms- staði á Fjöllum. Síðustu ábúendur þar fluttu fyrir um tveimur árum niður á Vopnafjörð. Þeim er mjög annt um jörðina, sem er um 23 þúsund hektarar að stærð, og vilja að landið verði grætt upp. Andrés Amalds, hjá Land- græðslu ríkisins, segir að land Víði- dals hafi farið illa í uppblæstri í Á aðalfundi LK flutti Baldur Helgi Benjamínsson, nemi í kynbótafræði við Landbúnaðar- háskólann í Kaupmannahöfn, erindi um endingu íslenskra kúa. Fram kom að íslenskar kýr endast mun skemur nú en fyrir 15 árum, eða í tæplega 3 ár í stað rúmra 4 ára áður, en ending er skilgreind sem sá tími sem líður frá fyrsta burði til förgunar. Nú er svo komið að meðalaldur íslenskra kúa er áþekkur því sem gerist í nágrannalöndunum. aldanna rás og því bíði þama mikil verkefni bæði við stöðvun jarðvegs- eyðingar og endurreisn landgæða. Hann segir að landið standi nokkuð hátt þannig að það henti ekki til Skýringin er fyrst og fremst hertar kröfur til mjólkurgæða sem ýta bændum til að slátra lélegri gripum mun fyrr en áður var gert Jafnframt kom fram að ef svo fer sem horfir verður ending íslenskra kúa svo lítil að allt útlit er fyrir að til vemlegra vandræða komi innan örfárra ára. Baldur sagði að Ijóst væri að vandi íslenskra kúabænda væri mikill, en ekki óyfirstíganlegur þar sem mögulegt væri að kynbæta fyrir aukinni nytjaskógræktar. Hins vegar myndi birki sennilega ná að dafna nokkuð vel þama og kjarrið gæti veitt viðkvæmum jarðvegi varanlega vöm gegn rofmætti náttúmaflanna. endingu gripa. Ljóst væri hins vegar að til þess að svo mætti verða yrði að breyta vemlega kynbótaáherslum í íslenskri nautgriparækt. Ending íslenskra kúa hefur styst jafnt og þétt sl. 25 ár og er nú svo komið að hún er svipuð og t.d. hjá SDM kúm í Danmörku, en munurinn á þeim og íslensku kúnum er hins vegar sá að ending- artími SDM er að aukast. Að jafnaði bera íslenskar kýr fyrsta kálfi við tæplega tveggja og hálfs árs aldur, þannig að Andrés sagði á nálægum slóðum væri gríðarlega mikið búið að vinna að uppgræðslu og stöðvun jarð- vegseyðingar ffá því að áætlunin um stöðvun uppblásturs á Hóls- fjöllum var gerð upp úr 1990. Þar sæist frábær árangur af samblandi beitarfriðunar og sáningar og áburð- argjafar sem framkvæmd hefði verið af Landgræðslunni og land- græðslubændum á Grímsstöðum á Fjöllum. heildarlíftími þeirra er ca. 5,5 ár. Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda sagði sagði að hér væri um mjög stórt mál að ræða, en taldi rétt að hrapa ekki að fullyrðingum. “Vitað er að ending kúnna hefur styst jafnt og þétt og svo virðist að heldur hafi hert á þeirri þróun með nýjum reglum um frumutölu 1998. Dauð- fæddir kálfar eru margir í saman- burði við það sem annars staðar gerist, og kúm hefur fækkað um nærri 3300 ffá nóvember 1997 til sama tíma 2001. Mjög nauðsynlegt er að skoða betur þann breytileika sem er í endingu kúnna og hvaða leiðir eru færar til að lengja líftíma þeirra. Þá þarf að glöggva sig betur á því hvort og þá hvaða líkur eru á að kynið geti ekki lengur haldið núverandi fjölda. Það er líka ljóst að ef til langframa þarf að setja á hvem einasta kvígukálf sem lifað getur fer lítið fyrir þeim þætti kynbótanna sem gerist með úrvali gegnum móður-dóttur,” sagði Þórólfur. Fagráð í nautgriparækt mun fjalla um þetta mál á fundi mjög fljótlega.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.