Bændablaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 9. júlí2002
BÆNDABLAÐIÐ
3
Notendur
dkBúbótar
Dreifíng á bókhaldskerfinu
dkBúbót gengur vel. Nær
fjögurhundruð bændur hafa
keypt forritið, auk búnaðar-
sambanda og annarra sem sjá
um bókhaldsþjónustu fyrir
bændur. Notendum gengur
vel að læra undirstöðuatriðin í
forritinu og almenn ánægja
virðist ríkja með eiginleika
þess.
Bókhaldsnámskeið
I haust munu Bænda-
samtök íslands, í samvinnu við
búnaðarsamböndin, bjóða upp
á bókhaldsnámskeið fyrir
bændur. Þar verða kennd
grundvallaratriði í tvíhliða
bókhaldi, svo sem skráningar
fylgiskjala, afstemmingar og
uppgjör. Einnig verður fjallað
um hvernig hægt er að hagnýta
bókhaldið til þess að bæta
reksturinn og styðja við
áætlanagerð.
A þessum námskeiðum
verður auk hinnar almennu
bókhaldsfræðslu sýnt hvernig á
að vinna bókhaldið í dkBúbót.
Það er því ljóst að þeir sem nota
forritið munu geta nýtt sér
námskeiðin enn betur til að ná
færni í að hagnýta sér það.
Argjald upp í kaupverð.
Þeir aðilar sem skipta núna
úr gömlu Búbót yfír í dkBúbót
sleppa við greiðslu árgjalds
gömlu Búbótar fyrir líðandi ár.
Það er einfalt mál að byrja að
færa bókhald í dkBúbót á miðju
bókhaldsári. Hafí menn hug á
því að skipta yfír í dkBúbót er
því engin ástæða til þess að
geyma það til áramóta./SE
LeiObeiningaþjúnustan
skerpt lyrir atbeina
Á fundi í stjórn Framleiðnisjóðs
landbúnaðarins fyrir skömmu
var gerð bókun vegna fyrir-
spurnar sem hafði borist frá
Búnaðarsamtökum Vesturlands,
en samtökin óskuðu
eftir að fá að vita
hvort væri hugsan-
legt að FL mundi
styðja við endur-
skipulagningu starfs-
stöðvar þeirra, sem
til álita hefur komið
að flytja úr Borgar-
nesi að Hvanneyri.
Stjórn FL ræddi
málið almennt á
síðasta stjórnar-
fundi og lýsti sig
reiðubúna til við-
ræðna um málið. í
bókuninni kemur Bjarni Guðmundsson
fram að hér er ekki ræðustól á LKfundlnum.
einvörðungu átt við
Vesturland og stjórn
FL setur ákveðna fyrirvara
gagnvart aðkomu sjóðsins. I
máli Bjarna Guðmundssonar,
formanns sjóðsins, á aðalfundi
LK, kom fram að sjóðurinn
hefði um árabil stutt leið-
beiningaþjónustu í landbúnaði
og vildi skoða mögulegt sam-
starf við BV á þessu sviði ef
það gæti skerpt leiðbeininga-
þjónustuna enn frekar.
Samþykkt á aðalfundi BV Á
aðalfundi BV í vor var samþykkt
að fela stjóm BV að
athuga áfram með
flutning aðalstöðva
samtakanna að Hvann-
eyri. I greinargerð
sagði að þess yrði að
gæta að stofna ekki
fjárhag samtakanna
í óvissu með
flutningnum. Leita
þyrfti samstarfs við
LBH, RALA, BÍ og
aðrar þær stofnanir
sem heppilegar tejjast
til samstarfs. „Áður
en ákvarðanir verði
teknar verði málið
kynnt meðal félags-
manna BV og ekki
farið í flutning í
andsstöðu við meirihluta bænda á
félagssvæðinu," sagði í greinar-
gerð.
Stjóm BV taldi að þó það ef
til vill gæti veikt BV sem hags-
munasamtök að flytja úr Borgar-
nesi, en þangað eiga margir bænd-
ur leið vegna annarra erinda, þá
muni vera hægt að ná fram hag-
ræðingu í rekstri á Hvanneyri, t.d.
með þáttöku ráðunauta í kennslu
og samnýtingu á tæknilegum
búnaði. Þá telur stjórnin að gæði
leiðbeiningaþjónustunnar gætu
aukist með því að leiðbeininga-
miðstöðin nálgist þann stað þar
sem mikið af rannsóknum í land-
búnaði fer fram. Stjóm BV fór
þess á leit við Framleiðnisjóð
landbúnaðarins að stjóm sjóðsins
fjallaði um hvort hugsanlegt væri
að FL styrkti endurskipu-
lagninguna.
Vilja styðja umbœtur
en setja fyrirvara
Bjami Guðmundsson, for-
maður FL, fjallaði m.a. um
leiðbeiningaþjónustu í landbúnaði
í ávarpi sínu á aðalfundi LK.
Hann greindi frá samþykkt FL,
sem getið er í upphafi, og minnti á
að um árabil hefði FL stutt
leiðbeiningaþjónustu BÍ og
búnaðarsambandanna. Varðandi
mögulegan stuðning við BV setti
stjóm FL þrjá fyrirvara. í fyrsta
lagi þarf að liggja fyrir heildar-
áætlun um eflingu markmiðssetts
Ieiðbeiningastarfs á svæðinu, m.a.
með formlegri samþættingu þess
við aðrar fagstofnanir land-
búnaðarins. í öðru lagi að áformin
séu skilgreindur hluti endurskipu-
lagningar leiðbeiningaþjónustu
landbúnaðarins, sbr. búnaðar-
samning frá 6. mars sl. og ályktun
Búnaðarþings 2002 um skipan
leiðbeininga í landbúnaði. í þriðja
og síðasta lagi þarf að liggja fyrir
sem nákvæmust áætlun um
kostnað og fjármögnun þessara
áforma. Bjami sagði að með
þessu vildi stjórn FL árétta vilja
sinn til að styðja umbætur á
leiðbeiningastarfi fyrir bændur.
Mykjutankar\
haugsugur og dælur
Skádælur,
TP360VS
Til að nota í grunnum sem djúpum
kjöllurum. Tengt á þrítengi og vökvatjakk
ofan á burðarramma. Dæluafköst 13.000
Itr/mín við dælingu í tank. Auðvelt að beina
stútnum upp og niður og til beggja hliða.
A' DeLaval
Brunndælur
Fyrir mismundandi dýpt á haughúsum,
frá 1,6 - 4,0 mtr. Dæluafköst 7,500 Itr/mín
við upphræringu og 6.000 Itr/mín við
dælingu í tank.
A' DeLaval
haugsugur
og mykjutankar
Abbey haugsugur og mykjudreifarar eru
fáanleg í eftirtöldum stærðum:
5000 Itr - 5900 Itr - 7000 Itr - 9100 Itr
Staðalbúnaður:
• Afkastamikil vacumdæla.
• Vökvabremsur og vökvastýring
á dreifistút.
• Vökvaopnun á topplúgu,
sjónglas á tank og Ijósabúnaður.
• Flotmiklir hjólbarðar, 6” barki,
5 mtr langur með harðtengi.
• Vökvaopnun á topplúgu.
VÉLAVERf
Lágmúli 7 Reykjavík Sími: 588 2600 • Akureyri Sími 461 4007 • www.velaver.is