Bændablaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 11

Bændablaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 3. september 2002 BÆNDABLAÐIÐ 1] Broddaneshreppur á Strðndum veitir milljón ó bæ til að fegra og bæta Verkefnið Fegurri sveitir hefur verið í gangi síðustu misserin og felst í því að fá bændur til að snyrta hjá sér bæði íbúðarhús og útihús sem og umhverfið. Sveitarstjórn Broddaneshrepps á Ströndum hefur gert myndar- legt átak í þessum efnum með því að veita á hvern bæ einni milljón króna í styrk til þeirra sem vilja bæta og fegra hjá sér. Sigurður Jónsson, bóndi á Stóra-Fjarðarhomi, er oddviti Broddaneshrepps. Hann sagði í samtali við Bændablaðið að það gætu orðið upp undir 20 milljónir króna sem hreppurinn myndi veita í verkefnið. Að fegra og lagfœra „Við greiðum mönnum kostnað við lagfæra útlit húsa sinna, svo sem ef þeir þurfa að lag- færa veggi eða þök þeirra og að mála þau. Þessi styrkur heyrir líka undir gæðastýringuna í sauð- íjársamningnum ef menn eru að setja loftræstiviftur í fjárhús, ný- tísku brynningarbúnað eða annað sem heyrir undir gæðastýringuna Húsnæði og atvinna Leitum að konu til dvalar hjá fullorðinni konu á sveitaheimili skammt frá Flúðum. í boði er frítt húsnæði, en greitt er fyrir vinnu við umönnun og heimilisaðstoð. Einnig er möguleiki á að geta stundað vinnu í nágrenninu Gæti verið góður kostur fyrir fólk með skerta starfsorku. Viðkomandi þarf að hafa bílpróf. Þeir sem hafa áhuga að kynna sér málið vinsamlega hafið samband við: Pálmar í síma 486 6685 - 892 2370 eða Aðalsteinn í síma 486 6605 - 898 1591 Systkinin frá Herríðarhóli sem sáu um veitingar á Merkigili í sumar, talið frá vinstri Kristín, Sigrún, Knútur, Ástaog Mæja. Bændablaðsmynd/Örn Kafli eftir messu... „Það hefur verið boðið upp á kaffi á Merkigili eftir messu í Abæjarkirkju í áratugi. Monika Helgadóttir sem bjó þar lengst gerði þetta meðan hún hafði heilsu til, síðan tók Helgi bróðir minn við og viðhélt þessum sið og okkur systkinum hans fannst við verða að halda þessa gömlu venju í heiðri. Mér finnst að fólk sé ánægt með þetta og þakklátt þegar það kveður okkur. Sumir hafa komið um langan veg og hafa virkilega þörf fyrir hressingu, og svo er líka ákveðin stemming sem þarna skapast. Umhverfíð er líka svo stórbrotið og sérstakt að ég held að flestir sem þarna koma komist í ákveðna snertingu við landið," sagði Kristín Jónsdóttir hús- freyja í Hraungerði í Vestur- Skaftafellsýslu þegar frétta- maður hitti hana á Merkigili um verslunarmannahelgina. Kristín er ein 15 systkina sem kennd eru við bæinn Herríðarhól í Rangárvallasýslu. Helgi Jónsson, bróðir Kristínar, bjó á Merkigili í Austurdal í Skagafirði frá 1974 til 1997, en þá lést hann af slysförum. Helgi lét sér alla tíð annt um Abæjarkirkju og var síðasta sóknar- bamið í Abæjarsókn. Systkini hans sem eru 12 á lífi eiga nú Merkigil og hafa haldið jörð og húsum í horfinu. í kirkjunni er messað um verslunarmanna- helgina á ári hverju. Þangað er seinfarinn vegur, en engu að síður kemur allmargt fólk til að vera við messuna. Það hefur vakið athygli að systkinin frá Herríðarhóli hafa boðið öllum kirkjugestum til kaffi- drykkju eftir messu, en það eru yfirleitt um 120-150 manns. Árið 1997 voru þó kirkjugestir um 500 talsins. Systkinin búa öll á Suður- landi, sex á höfuðborgarsvæðinu, fimm í Rangávallasýslu og Kristín í Vestur-Skaftafellssýslu. Hún á um lengstan veg að fara til messu, en heiman frá henni er um 7 klukkustunda akstur að Merki- gili./ÖÞ. þegar hún fer í gang. Sömuleiðis greiðum við kostnað við að hreinsa upp ónýtar girðingar í framhaldi af því sem var í síðasta búvörusamningi og ef menn fara í að hreinsa fjörur sínar," sagði Sigurður. Hann var spurður hvort hreppurinn þyrfti ekki að taka lán til að geta veitt styrkina. Hann sagði svo ekki vera. Sveitar- sjóðurinn stæði mjög vel. Hreppssjóðurinn vel staddur „Það hefur orðið fólksfækkun hér í sveitinni og bæir farið í eyði. Við vildum því nota þá peninga sem hreppurinn á til að styrkja þá sem vilja halda áfram búskap til að lagfæra og fegra hjá sér. Það hefur verið talað um að bændur væru hættir að mála hús sín vegna þess að þeir hefðu ekki efni á því," sagði Sigurður. Hann sagði að menn væru byrjaðir að vinna samkvæmt þessari ákvörðun hreppsnefndar- innar og sumir raunar langt komnir með milljónina. Hann tók það fram að menn fengju ekki peningana fyrr en þeir væru búnir að gera hlutina. Það þýddi ekkert fyrir þá að segjast ætla að gera eitthvað. Þeir verða að fram- kvæma. Harðplast- gluggar og hurðir í allar byggingar! * Aratuga rcyii sla hcrlendis Dalvegur 28 • 200 Kópavogi • Sími 564 4714 • Fax 564 4713 Bændablaðið kemur næst út 17. september VIÐSKIPTAVINIR Munid ný símanúmer Fóðurblöndunnar Aðalnúmer: Fax: Verksmiðja: Lager: 570-9800 570-9801 570-9814 570-9817 FÓÐURBIAN DAN HF. l/í\j'JU7VL) <Jr3 \/JUF 'Jj Borgarplast er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt alþjóðastaðlinum ISO 14001, eitt fyritækja í eigu íslendinga. Fyrirtækið framleiðir fjölmargar úrvalsvörur til verndar náttúrunni. Borgarplast framleiðir rotþrær, olíuskiljur, sandföng, brunna, vatnsgeyma og einangrunarplast. Öll framleiðsla fyrirtækisins er úr alþjóðlega viðurkenndum hráefnum og fer fram undir ströngu gæðaeftirliti. Rotþrær, olíu- og fituskiljur Borgarplasts eru viðurkenndar af Hollustuvernd ríkisins. EINANGRUNAR- PLAST BORGARPLASTf Sefgarðar 1-3 ■ 170 Seltjamames Sólbakka 6 • 310 Borgames Slmi: 561 2211 ■ Fax: 561 4185 Sími: 437 1370 ■ Fax: 437 1018 borgarplasteborgarplast.is ■ www.borgarplast.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.