Bændablaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 3. september 2002 BÆNDABLAÐIÐ 7 19|f . j&MiíM'r ™H WRí' - . . fflH \ .1 ^ ~Æ sm / 1 . <;SÉmm |gjpi£| * - ' 5*^.1 * ■— V 1 Wp r í - j t f | \ |R ' LjB Þingmenn Norðurlands eystra og Austlendinga fóru fyrir skömmu um Hólssand og Hólsfjöll og kynntu sér landgræðslu. Á meðfylgjandi mynd má sjá þingmenn og aðra þátttakendur. Áð var við Kvensöðul, hraungíg neðarlega á Hólssandi, og meðfylgjandi mynd tekin. Þarna tókst Landgræðslunni, með aðstoð harðduglegra bænda, að stöðva gífurlega sandöldu sem var á hraðri leið niður í Öxarfjörð og hefði valdið þar ómældri eyðingu ef ekkert hefði verið að gert. Búin að skrá um 800 örnefni í gamla Fjallahreppi Anna Bragadóttir heitir ung kona sem er fædd og uppalin á Grímsstöðum á Fjöllum. Hún stundar nám í landafræði og hefur verið að safna saman örnefnum í gamla Fjallahreppi. Bændablaðið ræddi við Önnu sem hefur fengið styrki frá Öxarfjarðarhreppi, Ömefnastofnun, Kísilgúrsjóði og vegna atvinnumála kvenna á vegum Vinnumálastofnunar. Einnig hefur Landgræðslan lánað Önnu loftmyndir af svæðinu og verið henni innan handar. - Hvenær hófst verkið? Það var Stefán Skaftason hjá Land- græðslunni sem kom með hugmyndina að þessu verkefni fyrir um ári síðan. Undirbúningur hófst eftir áramótin og í sumar hef ég unnið þá útivinnu sem þarf. I vetur verður svo unnið úr þeim upplýsingum og verkefnalok eru áætluð í júní næsta sumar. Markmiðið er að finna rétta staðsetningu ömefna svo þau glatist ekki. Eg vinn út frá ömefnalýsingum sem Ömefnastofnun varðveitir, en þar er skrá yfir ömefni á hverri jörð og einhver lýsing um hvar þau eiga við. Þetta byggðarlag er að deyja út og aðeins eru fáir menn sem geta sagt til um hvaða ömefni eiga við um hvem stað og bætt upp það sem vantar í ömefnaskrámar. - Er þetta ekki þáttur í þínu námi? Munt þú gera e-ð meira af svona? Ég stefni á að útskrifast næsta vor en ég er að byrja á lokaári í landafræði. I loka- ritgerðinni ætla ég að skoða nánar þau ömefni sem vísa til gróðurfars og bera saman við gróðurfar eins og það er í dag. Það er búið að vera mjög gaman að vinna að þessu, sérstaklega vegna þess að þetta er í minni heimasveit. Ég mun halda áfram að skrá niður ömefni á svæðinu ef fleiri rifjast upp fyrir mönnum. Og ef útkoman úr þessu verkefni verður góð þá væri gaman að halda áfrám í sveitunum í kring. - En hvernig hefur þetta gengið? Þetta hefur allt saman gengið ágætlega, en enn er mikil vinna eftir. Þetta er fyrsta svona verkefni sem ég vinn og það þarf að gjalda fyrir það. Mestu máli hefur skipt að hafa heimildarmenn sem þekkja svæðið vel. Það em ljórir menn sem hafa aðstoðað mig en það em Bragi Benediktsson frá Grímsstöðum, Gunnlaugur Ólafsson frá Víðirhóli, Ragnar Guðmundsson frá Nýhóli og Sverrir Möller frá Hólsseli. Án þeirra hefði þetta ekki gengið upp. - Hvernig afmarkast svæðið? Svæðið sem um ræðir er gamli Fjalla- hreppur, en hann var stofnaður 1893 og aflagður 1994 og tilheyrir nú svæðið Öxar- fjarðarhreppi. Þetta er um 950 knr sem tilheyrðu Fjallahreppi. - Hvað ertu komin með mörg örnefni? Ætli það séu ekki um 800 ömefni á svæðinu. Það eru því miður nokkur sem ómögulegt er að staðsetja, m.a. vegna breytinga á landinu í gegnum tíðina. - Hvað hefur komið þér mest á óvart? Það er sá áhugi sem fólk hefur sýnt ömefnum þegar er farið að tala um þau á annað borð, og eins sagan sem hvert nafn hefur að geyma. Margir staðir em kenndir við hesta eða kindur sem hafa drepist á staðnum og sýnir hversu mikill missir það var að tapa húsdýri og beinin minntu menn á hvað hafði gerst á þeim stað. - Eru mörg örnefni glötuð? Já, það er augljóst að mörg ömefni em glötuð. Dreifing ömefna er þéttust þar sem byggð er en verður dreifðari þegar lengra er farið út frá þeim. Héma eru nokkur eyðibýli og í kringum sum eru aðeins varðveitt sárafá ömefni. - Verður gert kort af svæðinu með hliðsjón af þinni vinnu? Já, ég stefni á að gera ömefnakort af svæðinu. Mælt af munni fram Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra hélt fundi með bændum á Austurlandi snemma i sumar. Bar að vonum margt á góma á þessum fundum og hafði landbúnaðar- ráðherra mörg orð um það sem hann ætlaði að bæta og breyta bændum til hagsbóta. Sá snjalli hagyrðingur, Jóhannes Sigfússon á Gunnarsstöðum, var á einum fundinum og orti að honum loknum: Allt sem vonum okkar brást, allt sem mátti klaga, allt sem drottni yfirsást ætlar Guðni að laga. Mamma ræður Lítill snáði var að segja frá því í veislu að það væri nú þannig á hans heimili að mamma réði þar öllu. Faðir hans heyrði þetta og sagði að þetta væri nú ekki alveg rétt, hann réði nú sumu. „Já," sagði snáðinn, „en mamma ræður hverju þú ræður." Sautján rollur kollóttar Einhverju sinni þegar séra Bolli Gústafsson bjó í Laufási láöist honum að senda landbúnaðar- skýrslu með skattaframtalinu og vantaldi því sauðfé sitt. Þá orti Hjálmar Freysteinsson: Séra Bolli býr hjá Nolli, býsna hollur Drottni var. Lenti í solli, sveik frá tolli sautján rollur, kollóttar. Hrosshausinn Maður nokkur sem var einn á ferð og aðeins við skál kom eitt sinn að kvöldi dags inn á veitingastað í Borgamesi. Þetta var á þeim áaim þegar Steingrímur Hermannsson var forsætisráðherra. Hópur manna var þar inni, en dauft yfir mann- skapnum. Maðurinn ákvað að hrista eilítið upp í þeim sem fyrir voru og sagði: „Hann Steingrímur Hermannsson er ekkert annað en hrosshaus." Dauðaþögn sló á viöstadda þar til einn úr hópnum gengur til mannsins og segir grimmdariega: „Gerirðu þér grein fyrir því hvað þú sagðir?" „Hva, ekki vissi ég að forsætisráðherrann ætti svona miklu fylgi að fagna á þessum slóðum." „Fylgi Steingríms kemur þessu máli ekkert við. Við erum hestamenn," svaraði sá grimmdariegi. Hann er að koma heim Dægurlagatextinn....ég er glöð og ég er góð, Jón er kominn heim," er eftir Iðunni Steinsdóttur. Hún er gift Bimi Friðfinnssyni sem var framkvæmdastjóri kísiliðjunnar við Mývatn þegar Kröflueldar hófust þar hér um árið. Þá gerðist það að sprunga opnaðist undir bílskúr við heimili þeirra hjóna. Sagt var að þau hefðu ákveðið að flytja burt vegna þessa og Björn gerðist bæjarstjóri á Húsavík í kjölfar þessara jarðhræringa og eldsumbrota. Þá orti Egill Jónasson á Húsavík: Opnaðist jörðin undir Bimi engin stoðar valdagimi, upp þar leggur eim. Loftið allt er lævi þrungið, langt að neðan heyrist sungið „hann er að koma heim." Umsjón Slgurdór Sigurdórsson. Netfang: ss@bondi.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.