Bændablaðið - 03.09.2002, Page 9
Þriðjudagur 3. september 2002
BÆNDABLAÐIÐ
9
Frumutalningar-
tæki í ferðaútgáfu
Eins og margir hafa orðið varir
við í fjölsendum tölvupósti sem
í fróðleiksskyni hefur gengið
manna á milli síðustu vikumar, er
á næsta ári væntanlegt á markað
handhægt, rafhlöðuknúið frumu-
talningartæki. Þetta er eiginlega
ferðatæki sem m.a. gæti hentað
einstökum mjólkurframleiðendum,
mjólkureftirlitsmönnum og fleimm
slíkum. Fregnin barst frá
Danmörku þar sem fjallað hefur
verið um tækið (Direct Cell
Counter, DCC) í landbúnaðartíma-
ritum sem athyglisverða nýjung.
Tækið er fyrirferðarlítið, nákvæmt
og hraðvirkt. Hver mæling tekur
um 45 sekúndur. Lesa má um
tækið t.d. á vefsíðunum lands-
bladet.dk og landbrugfyn.dk.
Mjólkursýnið er tekið í
sérstaka "kassettu", eða þar til gert
plasthylki með efnablöndu sem
veldur því að tækið nær að greina
á milli fruma annars vegar og
gerla, fitukúla og próteinhnökra
hins vegar. Það er DNA í frumu-
kjamanum sem mælt er, eða öllu
heldur "talið" af smjásjármynd
sem tækið tekur.
Margir bændur og aðrir les-
endur Búnaðarblaðsins Freys
munu kannast við stutta klausu um
slíkt undratæki í grein sem undir-
ritaður reit í blaðið fyrir nokkrum
ámm (tbl.7/98). Tækið var þá talið
væntanlegt á markað a.m.k. innan
tveggja ára. Þetta er auðvitað sama
tækið, sem þá hafði verið í
prófunum á Rannsóknarstofu
mjólkuriðnaðarins nokkm áður,
tilraunum sem reyndar fóru hljótt á
meðan margt var enn á huldu um
framhaldið. Þetta var á erfiðum
tímum fyrir marga bændur, sem
gekk misjafnlega að laga mjólk-
urframleiðsluna að nýjum kröfum
um frumutölu mjólkur og fregnin
vakti því mikla athygli. Fyrir-
spurnir bámst í hrönnum.
Tækið er ekki þróað hjá
DeLaval, eins og orðanna hljóðan
er í fregnum að utan nema e.t.v. að
litlu leyti, heldur hjá litlu hátækni-
fyrirtæki í Danmörku sem RM átti
nokkurt samstarf við. Síðar var
ákveðið að selja DeLaval fmm-
gerð tækisins og tæknina í heild
sinni. Það vafðist hins vegar fyrir
kaupandanum að koma tækinu í
framleiðslu og setja það á markað,
þar til nú að örlar á markaðs-
setningunni.
A sínum tíma lá ljóst fyrir að
að tækið yrði verðlagt þannig að
það gæti orðið nánast almennings-
eign, enda liggur ljóst fyrir að
framleiðandinn mun til lengdar
litið þéna mesta peninga á að selja
sýnatökuhylkin. Þau yrðu aðal-
tekjulindin til framtíðar. Nú er
bara að sjá hvaða verðstefnu fram-
leiðandinn tekur. / SM
Frumutalningartækið, DCC.
Sýnatökuhylki, svipað því sem
þart við notkun tækisins.
Varahlutir og
rekstrarvörur
fyrir
landbúnaðinn
VÉLAVAL Varmahlíð hf
Sími 453 8888 Fax 453 8828
Auglýsing í
Bændablaðinu
ber árangur!
Hringdu í síma
563 0300 og ræddu
við Eirík Helgason,
auglýsingastjóra.
Bændur og fyrirtækjaeigendur
Meindýraeyding
Bændur!
Nú er rétti tíminn til að láta eitra fyrir
músum, rottum og öðrum nagdýrum svo sem í fjósum, fjárhúsum,
fóðurgeymslum og við heyrúllur.
Er eingöngu með viðurkennd efni.
Geri einnig starfssamninga við fyrirtæki um eyðingu á
meindýrum í verslunumog matvælafyrirtækjum. Set upp
eiturstöðvar og hef eftirlit með þeim með ákveðnu millibili.
Hialti Guðmundsson
meindýraeyðir
Huldugili 6, 6Ö3 Akureyri
Símar: 462-6553 / 893-1553 / 853-1553
LANDSTlP1
Mykjupokinn
# Pokinn er lokaður - lágmarksuppgufun köfnunarefnis
# Auðvelt að setja upp, fylla og tæma
Stærðir 200 - 4000 m3
Nú eru um þrír mánuðir liðnir síðan fyrsti bóndinn tók þessa
athyglisverðu nýjung í notkun hér á landi. Það sannaðist hjá honum
að uppsetning er afar einföld og fljótleg, og pokinn hefur staðið undir
öilum væntingum enn sem komið er. Sjón er sögu ríkari.
Ath. Einnig hægt að fá færanlega poka fyrir tímabundna notkun.
Lárus Pétursson Arnar Bjarni Eirfksson
s: 437 0023 / 869 4275 s: 486 5656 / 898 919
Bændur athugið !
Okkur vantar kýr, naut, folöld
og takmarkaö magn af hrossum
til slátrunar.
Skráning gripa í síma 460-8850
Sláturhús Norðlenska
FLATVAGNAR
106I5
VERÐLÆKKUN!
Burðargeta 12 tonn
Stærð palls = 2,55x9,0m
H. Hauksson ehf.
Suðurlandsbraut 48
Sími: 588-1130. Fax. 588-1131.
Heimasími: 567-1880