Bændablaðið - 03.09.2002, Síða 10
10
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 3. september 2002
sambandi vildu fundarmenn að
samfélagið allt tæki þátt í þessum
kostnaði enda allra vilji að fuglalíf
sé blómalegt. Hvatt var til meiri
samvinnu við veiðifélög í
baráttunni við villimink og máv
sem leggjast á fisk og seiði í ám og
vötnum.
bættinu með tilkomu Umhverfis-
stofnunar, sagði frá rannsóknum á
mink og hvatti til aukinna
haustveiða á mink í gildrur.
Sagt var frá ferð á æðarslóðir í
Noregi, ástandi æðarræktarinnar þar
lýst og sýndar myndir af aðstæðum.
Æðarræktinni þar hefur hnignað
mjög á síðustu áratugum og er ýmsu
um að kenna, ekki hvað síst tilkomu
minks sem var fluttur til Noregs á
sama tíma og minkarækt hófst hér á
landi. Bændur ráða ekki við að
veijast honum og þekkja t.d. ekki
notkun minkahunda, og auk þess er
minkurinn friðaður yfir gottímann.
Á fundinum voru samþykktar
nokkrar tillögur og fjölluðu þær um:
1) Breytingar á embætti veiðistjóra í
þá átt að tengja það heildar-
samtökum bænda og auka beinar
leiðbeiningar og aðstoð við veiði-
menn við að halda ref, mink og
vargfugli í skeijum. Fjármagn til
þessa verði aukið og komi úr
sameiginlegum sjóði þar sem tjón af
völdum þessara dýra varðar allt
samfélagið. 2) Að æðarbændum
utan Skaftafellssýslna verði heimilt
að skjóta skúm í friðlýstu æðarvarpi
ef veijast þarf ágangi þeirra. 3) Að
kannað verði hversu mikið af æðar-
fugli og öðrum fugli ferst í netum
sem lögð eru í sjó, og gerðar verði
tillögur til úrbóta. 4) Að Æðar-
ræktarfélag íslands veiti einstökum
deildum styrk með sama hætti og
verið hefur. 5) Að reglur um búnað
loðdýrahúsa verði endurskoðaðar og
komið í veg fyrir að dýr sleppi úr
þeim. Reglumar verði þannig að
gerlegt verði að fara eftir þeim og
skýrt sé kveðið á um eftirlitsskyldu.
Stjóm félagsins skipa: Jónas
Helgason, Æðey, formaður. Her-
mann Guðmundsson, Stykkishólmi,
og Níels Ami Lund frá Miðtúni á
Sléttu. I varastjóm em: Ingibjörg
Eyþórsdóttir, Kaldaðamesi, og sr.
Guðni Þór Ólafsson, Melstað. /ÁS,
HÞ.
Hópur fundargesta við minjasafnið Bustarfelli._______Bændablaðið/HÞ.
www.bi n
Þú fellur aldrei á tíma
- í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans
Greiðslubyrði fólks sveiflast iðulega milli mánaða og hjá öðrum
sveiflast tekjurnar einnig. Þegar endar ná ekki saman vill raunin oft
verða sú að fólk dregur að greiða einhverja reikninga og endar síðan
í vítahring dráttarvaxta og vanskila.
... í stað þess að greiða vexti .
Komdu skipulagi á fjármálin á einfaldan og þægilegan hátt með ■
útgjaldadreifingu Búnaðarbankans. Þú losnar við sveiflur í útgjöldum
milli mánaða, sleppur við dráttarvexti og átt jafnvel góðan afgang.
Kaupakonur
Nú fer að styttast í göngur og réttir og því mikilvaegt að þjálfa reiðhestana
vel fyrir átökin sem í vændum eru. Kaupakonurnar á Ytri-Tjörnum í
Eyjafjarðarsveit, þær Svala Magnúsdóttir frá Reykjavík (til vinstri) og
Sandra Fritsch frá Þýskalandi, eru hér að leggja upp í reiðtúr á Þyt og
Blossa og vita fátt skemmtilegra en að þeysa um í guðsgrænni náttúrunni
og "finna fjörtök stinn".
Dúntekja
Morguninn eftir hófst aðal-
fundurinn í Miklagarði. Á honum
kom m.a. fram að tíðarfar var
æðarræktinni mishagstætt eftir
landshlutum. Á Suður-, Vestur- og
Norðvesturlandi var tíðarfar
hagstætt og varp frá því að vera í
tæpu meðallagi upp í það að vera
afar gott. Á Norðaustur- og
Austurlandi gerði hret talsverðan
usla, sérstaklega það sem kom 17.
júní. Margir æðarbændur urðu
fyrir tjóni í því hreti. í heild er þó
talið að dúntekja ársins sé í
meðallagi.
Aðalfundur Æðarræktarfélags Islands
Aðalfundur Æðarræktarfélags
Islands var haldinn á Vopnafirði
25. ágúst sl. og var þetta í fjórða
sinn sem hann er haldinn utan
Reykjavíkur. Fundurinn var vel
sóttur, en æðarbændur úr
flestum landshlutum sátu hann.
Æðarræktardeild Norðaustur-
lands hafði veg og vanda af
undirbúningi fundarins.
Flestir fundargesta komu til
fundar á hádegi þann 24. ágúst, en
Helgi Þorsteinsson og Ámi
Magnússon sáu um skipulagða
dagskrá þann dag. Farið var í
æðarvarpið á Ytra - Nýpi og það
skoðað undir leiðsögn bænda.
Síðan var farið í skoðunarferð um
sveitina, minjasafnið á Burstafelli
skoðað og endað með sjóferð um
fjörðinn. Að lokum var sam-
eiginlegur kvöldverður og kvöld-
vaka.
Barátta við mink og máv
Mönnum varð tíðrætt um þann
varg sem herjar á æðarfuglinn.
Rætt var um að sveitarstjómir
standa sums staðar illa að lög-
boðnum refa- og minkaleitum og
kom fram að kostnaður við slíkt er
sumum þeirra um megn. I því
Gagnrýni á embœtti veiðistjóra
Margir æðarbændur gagnrýndu
embætti veiðistjóra og töldu sam-
skipti við hann stirð. Menn höfðu á
orði að veiðistjóri væri upptekinn
við rannsóknir og skýrslugerðir en
aðstoðaði ekki sveitarstjómir og
veiðimenn eins og þörf væri á.
Mönnum fannst það skjóta skökku
við að veiðistjóri sinnti ekki sem
skyldi þörfum þeirra sem hafa
framfærslu sína af því að rækta sín
hlunnindi með því að halda mink,
ref, og flugvargi í skefjum.
Ávörp gesta
Gestir fundarins voru Ari
Teitsson, formaður Bændasamtaka
Islands, og Áki Ármann Jónsson,
veiðistjóri. Ari Teitsson ávarpaði
fundinn og flutti kveðjur frá BÍ.
Hann kvað það ljóst að megin-
vandi greinarinnar væri sífellt
erfiðari barátta við tófu, mink og
annan varg og ræddi hvemig
heildarsamtök bænda gætu komið
þar að málum. í máli veiðistjóra
kom fram að reglur um fækkun
refa og minka væm um margt
óljósar, t.d. um það hvað teldist
nægjanlega vel að verki staðið.
Hann greindi frá breytingum á em-
(8) BÚNAÐARBANKINN
^' -tráustur banki