Bændablaðið - 03.09.2002, Page 15

Bændablaðið - 03.09.2002, Page 15
Þriðjudagur 3. september 2002 BÆNDABLAÐIÐ 15 Göð samstaOa nm helstu niMWnr fnadarins sagöi Þðrólfur Sveinsson, íormaður LK eídr aðadundinn „Stærsta mál fund- arins var umfjöllun um starfsskilyrði mjólkurfram- leiðslunnar, hvort næðist að gera nýjan samning nú fljótlega og hvað sá samningur ætti að fela í sér. í ályktun var iögð áhersla á að nú- gildandi samningur verði framlengdur sem næst óbreyttur,” sagði Þórólfur Sveins- son, formaður Lands- sambands kúabænda þegar aðalfundinum lauk. -Var eitthvað öðru fremur sem fulltrúar vildu breyta ? „Það voru þrjú atriði sem talin var ástæða til að skoða, í fyrsta lagi að viðskiptahættir með greiðslu- mark verði teknir til skoðunar, en viðskipti með greiðslumark verði þó heimil áfram. Að sveigjanleiki við verðlagsáramót verði aukinn, einnig og að heimilaður verði samrekstur greiðslumarkshafa þannig að hægt sé að nýta greiðslumark eins lögbýlis að öllu leyti með fram- leiðslu á öðru lögbýli. -Var samstaða um niður- stöðuna? „Já. Það voru 32 fulltrúar á fundi og tilllagan fékk 31 atkvæði.” -Hver voru viðbrögð land- búnaðarráðherra ogformanns land- búnaðamefndar við þessu máli? „Landbúnaðarráðherra, Guðni Agústsson, lýsti sig samþykkan því að ganga til samninga og að samninganefnd yrði skipuð. For- maður landbúnaðamefndar, Drífa Hjartardóttir, lýsti stuðningi við að núverandi samningur verði fram- lengdur.” -Er ekki í gangi vinna við stefnumörkun fyrir nautgripa- rœktina í kjölfar RANNÍS- skýrslunnar? Hvað er að frétta af þessu starfi? „Jú, þessi vinna er í gangi. Það eru stjóm og fulltrúar Landssam- bands kúabænda í fagráði sem einkum vinna að þessu. Aðal- fundurinn ákvað að fresta umljöllun um þetta núna, enda felst að sjálfsögðu mikil stefnumörkun í þeim atriðum sem um er samið í mjólkursamningum. Jafnframt var ákveðið að halda verkinu áfram á jseim nótum sem unnið hefur verið hingað til.” -Voru fleiri mál sem þú vilt nefna? „Það er nú erfitt að gera upp á milli ályktana, en þær munu hafa verið 22 sem er með mesta móti. Þama var t.d. ályktað um nauðsyn á endur- skoðun lagaumhverfis landbúnaðarins með hliðsjón af fjölgun einkahlutafélaga, lýst andstöðu við hugsan- lega aðild fslands að Evrópusambandinu og fleira.” -Hvemig erafkoma kúabœnda um þessar mundir? „í erindi Jónasar Bjamasonar kom fram að hann teldi afkomuna hafa verið viðunandi á síðasta ári. Undir það má taka. Það er fyrst og ffemst skuldaaukningin sem er áhyggjuefni, svo og afkoma þeirra sem framleiða nautakjöt.” -Er eitthvað handfast fram- undan um betri tíð fyrir nautakjöts- framleiðendur? „Nei, því miður er það ekki. Við eigum í viðræðum við landbúnaðar- ráðuneytið um hvað sé hægt að gera en niðurstaða hggur ekki fyrir.” -Var góð samstaða á fundinum? „Já, það má fullyrða að afar góð samstaða var um helstu niðurstöður fundarins,” sagði formaðurinn að lokum. Núverandi og fyrrverandi stjórnarmenn í LK ásamt framkvæmdastjóra. F.v. Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri LK, Kristín Linda Jónsdóttir, Egill Sigurðsson, Sigurður Loftsson, Gunnar Sverrisson, Birgir L. Ingþórsson, Jóhannes Jónsson og Þórólfur Sveinsson. Gunnar og Birgir hurfu úr stjórn en Sigurður og Jóhannes komu inn í staðinn. Skúli á Tannstaðabakka ræðir við Guðna ráðherra á fundi LK. Námskeið um minni vatnsveitur Námskeið um minni vatnsveitur verður haldið dagana 10. og 11. september að Hótel Örk í Hveragerði. Námskeiðið er liður í átaki um hreint neysluvatn sem Hollustuvernd ríkisins vinnur að með ýmsum aðilum um þessar mundir Námskeiðið er ætlað eftirlits- og framkvæmdaaðilum og eigendum minni vatnsveitna. Farið verður yfir helstu þætti við gerð, frágang og viðhald vatnsveitna, rædd verða vandamál við vatnsbólagerð. í því sambandi verður stuðst við reynslu manna og málin einnig rædd á fræðilegum grunni. Nokkrar vatnsveitur verða skoðaðar og rætt um það sem fundarmenn sjá og heyra. Dagskrá Þriðjgdgggr 1Q, septamþar 12:30 Skráning 13:15 Setning. Elín Guðmundsdóttir, Hvr 13:30 Mikilvægi hreins neysluvatns Embætti yfirdýralæknis 14:00 Vatnsvernd. Gunnar Steinn Jónsson, Hvr 14:30 Vatnsleit. Freysteinn Sigurðsson, Orkustofnun 15:00 Kaffi. 15:30 Vatnsbólagerð.Sigríður Hjaltadóttir, Hvr og HNv 16:00 Frágangur vatnsveitna og skipulagsmál Birgir Þórðarson, HS 16:30 Samveitur. Óttar Geirsson, Bændasamtökunum 17:00 Samantekt. 19:00 Kvöldverður. 20:30 Létt spjall um neysluvatnsmál. Óttar Geirsson, Bændasamtökunum Miðvikudaaur 11. september 9:15 Undirbúningurfyrir verkefni. Birgir Þórðarson, HS 9:30 Verkefni - skoðun á vatnsveitum. Birgir Þórðarson, HS 12:00 Hádegisverður. 13:00 Niðurstöður verkefna. Birgir Þórðarson, HS 15:00 Vatnsreglugerð og 3. og 4. hluti átaks um hreint neysluvatns. Ingólfur Gissurarson, Hvr Skráning á námskeiðið er í síma 585 1000 milli klukkan 9:00 og 16:00 alla virka daga og fram til föstudagsins 6. september. Einnig er hægt að senda fyrrirspurnir og skrá sig með því að senda post á netfangið ingolfurg@hollver.is . Námskeiðið kostar: 11.000 kr á mann í tveggja manna herbergi, 13.500 kr á mann í eins manns herbergi og 7.000 kr á manninn án gistingar Innifalið: Námskeiðsgjald, ritið "Val og hönnun minni vatnsbóla", kvöldverður fyrri daginn, hádegisverður síðari daginn og síðdegiskaffi. Morgunverður fylgir með gistingu. Styrktaraðilar Átaks um hreint neysluvatn eru: Samtök afuröastööva í mjólkuriðnaðl Bændasamtökln, Umh verflsráðuneytlð FRAMKVÆMDASTJÓRI Staða framkvæmdastjóra Búnaðarsambands Austurlands er laus til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá 1. oktober nk. Framkvæmdastjóri sinnir verkefnum sem héraðsráðunautur t.d. á sviði búfjárræktar, jarðræktar eða búrekstrar. Auk þess sér framkvæmdastjóri um daglegan rekstur, starfsmannahald, uppgjör og reikninga. Umsækjendur skulu hafa lokið kandidatsprófi (B.Sc.-prófi) í búvísindum eða öðrum fræðigreinum eftir því sem við getur átt. Auk þess er nauðsynlegt að umsækjendur hafi staðgóða þekkingu á sviði upplýsingatækni. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist skrifstofu búnaðarsambandins, Miðvangi 2-4, 700 Egilsstöðum í síðasta lagi 20. september nk. Upplýsingar um starfið veitir Jón Snæbjörnsson, núverandi framkvæmdastjóri í síma 471 1226 eða Sigurbjörn Snæþórsson, stjórnarformaður, í síma 471 3835. Sparaðu fé og fyrírhöfn 0Dráttarvéladekk [/] Hey vinnu véladekk (7]Vörubíladekk (TjJeppadekk [7]Fólksbíladekk Kannaðu málið á www.gv.is Sendum um allt land - Sama verð frá Reykjavlk ú / / / V Felgur Hjá Gúmmivinnslunni Rafgeymar SZSJ&JÍf*. *«inum stað! Keðjur && Básamottur &L/ Öryggíshellur Gúmmívinnstan hf. Réttarhvammi 1 - Akureyri Hringiö og fáiö frekari upplýsingar Simi 461 2600 • Fax 461 2196 V/SA Þýsku básamotturnar frá Gúmmfvinnslunní Má nota jafnt undir hosta, kýr, svín og ftoiri dýr Eigum á iager 100,110 og 120 cm breíöar mottur í ýmsum lengdum, oinnig dregla og mottur í korrur.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.