Bændablaðið - 01.12.1993, Síða 12
GCTUft ftftFSVIÐ CVÐILAGT BÚJflftGlft
Landsbanki
íslands
banki allra landsmanna
IÐ HOFUM ÞORAÐ
AÐ BYGGJA UPP
MEÐ ÞJÓÐINNI
Landsbanki íslands var stofnaöur
til þess aö styöja uppbyggingu
atvinnulífs og betra mannlífs
um land allt. jón Sigurösson og
samtíbarmenn hans vissu aö
frelsi þjóöarinnar væri háö afkomu-
möguleikum og aö til þyrfti
sterkan banka sem heföi afl og þor.
Mikilvægi bankans fyrir íslenskan
landbúnaö er öllum Ijóst.
40% af öllum lánum banka og
sparisjóða til landbúnaöar koma frá
Landsbankanum.
Á bænum Minna - Núpi í
Gnúpverjahreppi telur bóndinn
að rafsviö hafi valdið miklum af-
föllum í sauðfjárbúskap. Á bæ
einum í Vatnsdal þrifust hvorki
kálfar né mjólkurkýr fyrr en
komið var í veg fyrir rafsvið í
fjósinu. Á sama bæ er talið að
endurvarp frá sjónvarpsskjá
eyðileggi orkuinnihald heyfengs
af ákveðnum túnum og hamli
sprettu.
Dæmin eru niiklu fleiri og sum
snerta beint heilsufar fólks, bæði í
kaupstað og sveit. Kemtingar sem
þessar eru af mörgum taldar á
mörkum hins yfirskilvitlega og
jafnvel hreinasta kukl. Aðrir líta á
þetta sem réttmætar vísinda-
kenningar, studdar aðferðum raf-
magnsfræðinnar.
Skaðlegt
samspil rafsviða
Sagt var frá lambalátinu að Miima-
Núpi i Gnúpverjahreppi í Tímanum
fyrir allmörgum árum og þá m.a.
bent á hversu glannalega nærri
bænum háspennulína frá Þjórsár-
virkjunum liggur. Þá var það mat
bæði bóndans og héraðsdýralæknis
að endurtekinn fósturdauði lamba á
bænum ætti væntanlega rót sína að
rekja til rafsviðsins. Engar bætur
hafa þó fengist vegna þessa og
heíðbundiim búskapur er nú að
mestu aflagður á Miima-Núpi, eins
og víðar.
Þegar Landsvirkjunarlínan var
lögð árið 1970 var kúabú á Minna-
Núpi en var aflagt nokkrum árum
síðar og til stóð að koma upp íjár-
búi. Þær fyrirætlanir gengu þó verr
en skyldi því mikið var um að
æmar gytu lömbunum löngu fyrir
burð. Eitt vorið gutu þarrnig 109 ær
af 160 sem bera áttu og má því
nærri geta að sá búskapur var ekki
arðsamur. Þegar fénu var hleypt út
lá það tíðum á svæðum nærri lín-
unni og undir henni og að nokkru
tókst að verjast þessum kvilla með
því að loka féð inni allan veturinn.
Á síðastliðnu ári fékk Kristján
Guðmundsson bóndi á Minna-Núpi
til sín Brynjólf Snorrason
rannsóknarmann sem hefur
rannsakað rafsvið af þessu tagi um
allt land. Brynjólfur mældi rafsvið
bæði í útihúsum og íbúðarhúsi og
tafdi umhverfrð allt mjög mengað
af rafsviði, ekki einasta vegna há-
spennulínunnar frá 1970 heldur
væri orsakanna að leita í flóknu
samspili eldri spennustöðvar,
náttúrulegra rafsviða og fyrr-
nefndrar háspemiulínu.
Eftir mælingar sínar hefur
Brynjólfur meðal annars reynt að
afstýra skaðlegum rafsviðum með
sérstökum rafkeflum sem hann
kemur fyrir á ákveðnum stöðum.
Rafvætt fjós
f Vatnsdalnum
í Hvammi í Vatnsdal er rekið kúa-
bú en Gunnari Ástvaldssyni bónda,
sem tók þar við um miðjan áttunda