Bændablaðið - 01.12.1993, Síða 14
4. TBL. 7. ÁRG. JÓLABLAÐ 1993
Ástin stjórnar þróun byggðanna
Ekkert mál er þannig vaxið að
það hafi aðeins eina hlið. Það
blasi svo augljóslega við að
öllum megi vera ljóst hvernig
það sé vaxið og sé öllum
ásættanlegt. Reynslan hefur
hinsvegar sýnt mér að hvert
mál hefur margar hliðar og
hver og einn lítur sínum augum
á silfrið.
Margir hafa reynt að skilgrcina
landsbyggðarflóttann svonefnda.
Hvers vegna íbúum á lands-
byggðinni fækki svo mjög og
straumurinn liggi til höfuð-
borgarsvæðisins. Hinar viðteknu
kenningar eru að aflaheimildir
fari stöðugt minnkandi og um-
svif við sjávarsíðuna minnki
þannig að afkoma fólksins
skerðist. Landbúnaðarafurðir
seljist treglega og því neyðist
bændur til að flytja á mölina.
Atvinnumöguleikar séu fá-
breyttir. Að samgöngur séu erf-
iðar og tækifærin séu ekki hin
sömu og fyrir "sunnan". Smæð
sveitarfélaganna geri það að
verkum að þau megni ekki að
rísa undir þeim kröfum sem til
þeirra eru gerð. Vitanlega eiga
eiga þessar kenningar allar rétt á
sér og hafa allar, hver með sín-
um hætti, á einhvem hátt orðið
til að skapa vanda þann sem
landsbyggðin er í. En aldrei er
nefnt að hinar mannlegu tilfinn-
ingar eigi þátt í þessari þróun,
heldur sé þetta allt undirorpið i
ytri aðstæðum.
Rétt eins og nú þegar hátt ber í
umræðunni að lífsspursmál sé
Gamlar bamagælur
Einhver var að hlœja
þegar ég kom inn
kannski það hafi verið
kötturinn
jœja, nújœja
lútum hann hlceja
kannski að hann hltei i annað
sinn.
Komdu hingaó kindin min
kokkurinn vill þig Jinna
hann gefur þér brauð og
brennivín
bláan klút og tvinna.
Hefurðu heyrt um hann Hóla-
Jón
hann œtlaði að fara í verið.
Dullurinn allur dattíspón
og drengjunum gaf hann
smérið.
Kallinn undir klöppunum
klórar sér með löppunum
baular undir bökkunum
og ber sig eftir krökkunum á
kvöldin.
Áégað segja þér sögu
af kellingunni rögu.
Hún fór á miUiJjóss og hlöðu
og Jlengdi sig með snarpri
grautarþvögu.
Áégað segja þér söguna
um hana Sönn
hún settist eitt sinn á beran
rassinn
út í snjófónn.
Áégað segja þér söguna
af honum Skugga
hann steypti sér beint á hausinn
út um opinn eldhúsglugga.
Einu sinni átti ég gott
á ailri œvi minni
þá var soðinn rjúpurass
reyttur upp úr skinni
hjá henni stjúpu minni
Róum við á selabát
fyrst við erum Jjórir
það eru bœói þú og ég
stýrimaður og stjóri
Á tunnuna ég tylli mér
og til þess er hún gerð
enginn veit nema undir liggi
óþekk krakkamergð.
Mánudaginn, þriójudaginn
kelling sat og spann.
Miðvikudaginn, fimmtudaginn
hélt hún verki fram.
Föstudaginn, laugardaginn
hvíldi hún lúin bein.
En á sjálfan sunnudaginn
tók hún út sín laun
þá var hún hýdd við stóran
stein.
Halló manni, halló manni
hatturinn þinn fauk,
strax og stormurinn sá hann
stórvel leist honum á hann.
Halló manni, halló manni
hatturinn þinn fauk.
Maðurinn með hattinn
stendur upp við staur.
Hann borgar ekki skattinn
því hann á engan aur.
Súlurýju rak á vog
rétt upp i hann Sigurð.
Hún var 10 álnir og
eftirþví ádigurð.
Barnagælur þessar fékk
blaðið hjá Ingibjörgu
Bjamadóttur (f.1940) en hún
var alin upp í Hveragerði og
á ættir að rekja austur í
Rangárþing. Vísumar lærði
hún í uppvexti sínum.
' Eínhverjar af þessum vísum
I hafa birst á prenti en líkast
tlf ekki allar.
BÆNDABLAÐIÐ &
LANDSBYGGÐIN
Mannlegur þáttur í
leikriti lífsins
fyrir byggð og mannlíf á Vest-
jörðum að fá 300 milljónir í
formi opinberrar aðstoðar til við-
eisnar atvinnulífi. Ekki dreg ég í
efa að þessarar fjármuna er full
þörf, en þeir verða aidrei til þess
að hindra að Vestfirðingar haldi
áfram að flytja suður, eða sunn-
anfólk vestur. Þama kunna
mannlegar tilfinningar að
blandast inn í málið, í mörgum
tilfellum ástin.
Að hitta eina af
dætrum Reykjavíkur
Alkunna er að ungt fólk yfir-
gefi heimaslóð og fari til náms,
t.d til Reykjavíkur. Oft er dvöl-
in þar aðeins fyrirhuguð um
skamman tíma. Ljúka á námi á
skömmum tíma og koma svo
aftur heim í sveitina. En óvæntir
hlutir geta gerst. Sveitastrák-
urinn hittir eina al' Reykjavíkur-
dætrunum sem getur verið býsna
örlagaríkt. Og þá verður heim-
leiðin torfær. Strákur sest að í
Reykjavík lil að njóta samvista
við stúlkuna sína, jafnvel þó ytri
tækifæri, svo sem atvinna, séu
samskonar á heimaslóð. At-
burðir í þessum dúr eru alltaf að
gerast. Og líklega hefur gagn-
kvæm ást milli pilts og stúlku
haft meiri áhrif á byggðaþróun í
landinu en margur hyggur.
Þó einstaklingur setjist að í
Reykjavík vill það gerast að hug-
urinn flytji ekki með. Hann er
eftir sem áður heima í sveitinni
og "römm er sú taug er rekka,
dregur föðurtúna til." En kona
og böm í Reykjavík binda
manninn í báða skó. Leiðin heim
á leið er fær. Og þegar einstak-
lingur sest að í Reykjavík fara
fleiri úr sömu fjölskyldu að
setjast þar að. Fjölskyldumeðlim-
ir vilja njóta samvista og stuðn-
ings hvers annars. Það er í hinu
mannlega eðli.
En fleira hefur áhrif í þessu
sambandi en ástin. Sjaldgæfit er
að sagt sé með berum orðum að
fólk flytji af landsbyggðinni af
leiðindum. En þó römm sé taug
sumra er hún ekki allra og sumir
kjósa heldur að búa í þéttbýlinu.
Vitaskuld heilla veitingastaðir-
nir, kvikmyndahúsin, skemmt-
anir og það mikla framboð sem
þar er á hverskonar afþreyingu
og þjónustu. Þeir sem hæst hafa
í umræðu um byggðamál á
íslandi geta ekki endalaust
sagt landsbyggðarflóttann vera
einvörðungu tilkominn af ytri
aðstæðum. Hinar mannlegu
tilfínningar leika stórt hlutverk í
þessu leikriti lífsins og þær
skyldum við ekki vanmeta í
málum sem þessum.
Og talandi um að ástin stjómi
því hvar lólk sest niður á
landinu vil ég gera orð Halldórs
Kiljans Laxness, í bókinni um
Sölku Völku, að mínum þar sem
segir: "Ekkerl á jörðinni cr eins
yndislegt og sönn ást milli pilts
og stúlku í góðu veðri um nótt á
vori, þegar heslamir í túninu eru
sofnaðir."
Sigurður Bogi Sævarsson.
NAM UIÐ
GARÐYRKJUSKÓLA RÍKISINS
Hluíverk skólans
Garðyrkjuskólinn veitir inenntun í garðyrkjufræðum, umhverfisfræðum og
blómaskreytingum á fimm námsbrautum.
Ennfremur vinnur skólinn að tilramium, endurmenntmi, námskeiðahaldi,
útgáíii Garðyrkjufrétta og annarri þekkmgarmiðlun.
NÁMSBRAUTIR ERU:
Gardplöntubraut
Skrudgardyrkjubraut
Umhverfisbraut
Landgræðsla, náttúruvemd og skógrækt
Ylræktar- og útimatjurtabraut
Nám o ö innfökuskilyrði:
Náun í garðyrkju- og umhverfisfræðum tekur ]njú ár.
Verknám er samtals 17 mánuðir án leyfa.
Þrír mánuðir em reynslutími, en fjórtán mánuðir em á kjörsviði, þ.e. í
samræmi við námsbraut (dagbókarskyldir).
Bóknám er 4 annir auk verkeíha. Aðm' en nemandi getur hafið nám í 1. bekk
þarf hann að hafa lokið tólf mánaða verknámi, þar af níu ineð dagbók.
Auk verknáms þarf nemandi að hafa lokið bóknámi sem svai ar til tveggja til
fjögurra anna í framhaldsskóla.
Blómaskreytinga- og markaðsbraut
Nám oö innfökuskilyrði:
Nám á blómaskreytingabraut tekur tvö ár.
Verknám er samtls 14 mánuðir án leyfa. Þrír mánuðir em reynslutími, en
ellefu mánuðir em á Igörsviði (dagbókarskyldir).
Bóknám er 2 annir auk verkefha. Áður en nemandi getur hafið nám á fyrri önn
þarf hann að hafa lokið sjö mánaða verknámi, þar af fjórum með dagbók. Auk
verknáms þarf nemandi að hafa lokið bóknámi sem svarar til tveggja til
fjögurra anna í framhaldsskóla.
Nánari upplýsinöar veitir skrifstofa skólans frá kl. 8-16 í síma 98-34340.