Skátafélagið Einherjar 20 ára - 29.02.1948, Síða 33
þótti skemmtunin takast vel. Auglýst var, að aðgangseyrir
yrði endurgreiddur þeim, sem ekki gœtu hlegið, en enginn
krafðist þess.
Aðalfundur félagsins var haldinn í Gagnfræðaskólanum
27.janúar. Fór fram kosning starfsmanna, Ágúst Leós, var
endurkjörinn gjaldkeri, Tryggvi Þorsteinsson, ritari í stað
Har. Öl., sem baðst eindregið undan endurkosningu og skála-
vörður Gísli B. Kristjánsson. Df. var Gunnar Andrew, en Rs.
for. Sigurður Baldvinsson.
Á fundinum var samþykkt að bjóða 6—10 skátum frá
Reykj avík á skíðavikuna í vor.
1 febrúar dvöldu þeir Sig. Baldvinsson, Magnús Kristjáns-
son og Sigurður J. Þórólfs vikutíma á Þingeyri og undir-
bjuggu stofnun skátafélags þar á staðnum. Þann 14. febrúar
fóru fleiri skátar vestur, og var félagið stofnað þann dag, og
hlaut það nafnið „Útherjar.“ Síðan var haldin skemmtun á
Þingeyri til ágóða fyrir hið nýja félag.
Afmæli félagsins var haldið hátiðlegt með skenuntun í
Templarahúsinu 22. febr. og var þangað boðið öllum for-
eldrum skáta og fleiri aðstandendum. Skemmtun þessi fór liið
bezta fram og tóku margir boðsgesta til máls. Á þessari
skennntun sæmdi Ágúst Leós., fyrir hönd B. 1. S., Gunnar
Andrew Þórshamrinum.
Þann 8. marz fóru þeir Magnús Kristj ánsson, Gunnar
Andrew og Sigurður J. Þórólfs, til Súgandafjarðar, til að
undirhúa stofnun skátafélags þar á staðnum. Þann 28. marz
var félagið stofnað, og lilaut það nafnið „Glaðherjar."
Þann 11. marz tók Magnús Kristjánsson við stjóm ylfinga.
Skátar aðstoðuðu mikið við Skíðaviku Isafjarðar, sem fór
fram um bænadagana. I Fossavatnshlaupinu tóku þátt þrír
Einherjar, af 9 keppendum, þeir Magnús Kristjánsson, Bolli
Gunnarsson og Halldór Magnússon. Magnús sigraði, en Bolli
varð nr. 3. — 10 km. ganga um Vestfjarðahornið fór einnig
fram í apríl og tóku þeir sömu þátt í henni. Magnús var einnig
AFMÆLISRIT EINHERJA
31