blaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 15
I-
blaðid I mánudagur 9. maí 2005
Bílaapótek
ernak®vbl.is
Lyfin í lúgu - bílaapótek
Lúguverslanir njóta sífellt meiri vin-
sælda og ýmis starfsemi hefur að-
lagað sig þessum breyttu verslunar-
háttum. Fyrir nokkrum árum opnaði
fyrsti bílabankinn við Landsbanka-
útibúið í Grafarvogi og fyrr á þessu
ári opnaði íyrsta bílaapótekið. Lyfja-
val við Hæðasmára í Kópavogi hefur
gengið vonum framar frá opnun og
Guðni Kristinsson lyfjafræðingur
í lúgunni.
aðgengi að apótekinu við Reykjavík-
urveg er þægilegt.
Stuðningur
Öryrkjabandalagsins
Guðni Kristinsson, lyfjafræóingur
og annar eigandi Lyfjavals, segir
bílaapótek vera til mikilla þæginda
fyrir ýmsa við-
skiptavini, auk
þess sem þeir
fái hraða af-
greiðslu. „Bíla-
lúgur eru mjög
þægilegar fyrir
barnafólk. Þær
spara mikinn
tíma og fyrir-
höfh því ekki
þarf að taka
börn úr bílstói-
um, smella
þeim í aftur
og þvæla þeim
þreyttum eft-
ir leikskólann
inn í verslan-
ir yfirfullar af fólki. Öryvu annar
hópur sem hagnast vel á þessu fyrir-
komulagi, enda margír hreyfihaml-
aðir sem án bílalúgunnar þurfa að
senda einhvern fyrir sig í apótekið.“
Öryrkjabandalagið lagðist á sveif
með Lyfjavalsmönnum við að sann-
færa Lyfjaeftirlitið um kosti þessa
fyrirkomulags en því voru sett þau
skilyrði að lyfjafræðingar yrðu við af-
greiðslu í lúgunum.
Keypt í næði
Guðni segir bílaapótek vera algeng
í Bandaríkjunum og þaðan sé fyrir-
myndin fengin. Hann segir íslend-
II--------
Við komum
mjög vel út
í verðsam-
anburði og
fólk kann
ekkert
alltof vel
við þessa
fákeppni
(0)
ORKAN
Allar stöðvar
104,2 kr.
Ártúnshófði
105,4 kr.
Geirsgata
105,5 kr.
Borgartun
105,4 kr.
Alfheimum
105 kr.
Hafnarfjarðvegur
105,2 kr.
Birkimelur
105,2 kr.
ÓeGO
Hægt er að fá SMA-þurrmjólkina tilbúna
á pelann.
inga hafa tekið þessari nýbreytni
fagnandi, ekki síst þá sem vilja kaupa
sín lyf án þess að aðrir í versluninni
geti fylgst með hvað næsti maður er
að kaupa. „Margir vilja kaupa lyfin
sín og annan varning í næði, geðlyf,
viagra og ýmislegt annað.“
Mikil samkeppni
Lyfjaval, sem einnig er í eigu Þoivald-
ar Ámasonar lyfjafræðings, rekur
aðra verslun í Mjóddinni og gengur
hún vel. Guðni segir þó að þar hafi
þeir félagar lent í mikilli samkeppni
við Lyf og heilsu sem setti upp annað
apótek til höfuðs Lyfjavali í Mjódd-
inni. „Þeir opnuðu Apótekarann í tíu
metra fjarlægð við okkur rétt eftir að
við opnuðum árið 2003 en núna erum
við stærri í Mjóddinni. Það kemur
til af því að við komum mjög vel út í
verðsamanburði og fólk kann ekkert
alltof vel við þessa fákeppni á mark-
aðnum," segir Guðni.
Gleyptu í
þig brúnkuna
iEfy
•*<>n
Nýverið komu á markaðinn
Imedeen Tan Optimizer töflurn-
ar, húðnæring í hylkjum sem örva
náttúrlega framleiðslu á melaníni
húðarinnar. Melanín er efnið sem
gefur húðinni brúnan lit. Töflum-
ar eiga að undirbúa húðina undir
áhrif sólarinnar, minnka roða og
viðkvæmni fyrir sólinni. Auk þess
vemda þær húðina gegn ótíma-
bærri öldrun af völdum sóiarljóss.
Til að ná hinum eft-
irsótta brúna lit á aó
taka eitt hylki á dag
í mánuð, fyrir sólböð og meðan á
þeim stendur, og eftir sólböð. Bng-
in sólarvörn fæst þó með töku Ime-
deen og því nauðsynlegt að nota sól-
arvöm með notkun taflnanna.
Framleiðandi Imedeen er danska
fyrirtækið Ferrosa A/S og innflytj-
andi er Icepharma.
CbLYFJA
Bndi - Lrfið heil
www.lyfja.is
Taktu eitt skref í einu, hvert á eftir öðru, og finndu muninn sem verður þegar þú
hefur ákveðið að breyta um Irfsstíl. Hver dagur býóur uþþ á ótal tækifæri til að
auka hreyfinguna - og þar með vellíðan. Að hlauþa uþþ og niður stiga í stað
þess að taka lyftuna, ganga meira í stað þess að aka, hjóla, taka hálftíma
sundsþrett. Það snýst ekki um kostnað að breyta lífi sínu tíl hins betra, heldur
fyrst og fremst að nýta tækifærin sem gefast á hverjum degi, og fylgja þeim
eftir. Að ganga í vinnuna er kannski bara sþurning um að leggja aðeins fyrr af
stað - og lifa heil.
rði - Stykkishólmi - Buðardal - Húsavik - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd