blaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 24
mánudagur 9. maí 2005 I blaðið
"ffSh
nun
Gataðir gúmmískór, sem loftar vel
um og hindra frekar
sveppasýkingar, eru vinsælir
á ströndina.
Frakkinn Stanislas Bohic hefur getið sér gott orð sem einn fær-
asti garðahönnuðurinn á landinu
sivinsælir á sumrin
halldora@vbl.is
Að eiga stóran garð er eitt - að eiga
fallegan garð er annað. Fátt er eins
mikið konfekt fyrir augað og glæsileg-
ur garður sem unninn hefur verið af
mikilli fagmennsku og næmi. Mikið
hefur verið um það síðustu árin að
fólk láti taka garðana sína í gegn. Er
þá yfirleitt allt tekið í burtu og búin
til ný hönnun frá grunni, sem breytir
í flestum tilvikum mjög miklu. Fólk
hefur meira gaman af því að bjóða fjöl-
skyldunni í grill þegar gott er veðrið.
Stórar framkvæmdir geta auðvitað
kostað mikið en ekki er óalgengt að
garðvinna við stór og mikil hús kosti
í kringum 6-7 milljónir.
Frakkinn Stanislas Bohic kom
fyrst til íslands 1980 og hefur verið
með annan fótinn héma síðan. Hann
er menntaður landslagsarkitektúr og
hefur víða hlotið viðurkenningar fyr-
ir störf sín, sem þykja einkennast af
mikilli fagmennsku. Stanislas býr hér
á landi núna en hann hefur séð um út-
lit margra af fegurstu görðum sem til
em á íslandi, enda annar hann varla
eftirspum. Aðspurður segir hann
þann gríðarlega áhuga sem hann hafi
á fallegu umhverfi hafa nýst sér vel
og að fólk sé ýfirleitt mjög ánægt með
störf hans. JÉg hef gert mjög mikið
af görðum héma á Islandi. Þetta er
svona mitt áhugamál frekar en vinna
- ég hef unun af fallegum blómum og
fleira sem áberandi er í görðum. Það
hafa verið miklar breytingar í garða-
hönnun upp á síðkastið og fólk er
farið að verða opnara fyrir hugmynd-
um. Það er mjög sniðugt að fá utan-
aðkomandi aðila til að teikna garða
fyrir sig, það sparar svo mikinn tíma
og peninga." Stanislas segir marga
eyða miklum íjármunum í endumýt-
ingu á görðum, hvort sem það er við
hús þeirra eða sumarbústaði, enda sé
gott að hafa fallegt umhverfi í kring-
um sig. „Síðustu misseri hefur verið
mikið um að ríka fólkið panti mig en
ég vil ekki vera að nefna nein nöfn.
Fólk sem á mikið af peningum eign-
Myndin Ingó
ast rosalega fallega garða en mikið
er inn heita potta, tjamir, brýr, gufu-
böð, sturtuhús og fleira."
Frekari upplýsingar er hægt að nálg-
ast á Stanislas.is
Gúmmískór hafa notið vinsælda
hér á landi um áratugaskeið og
vora áður ódýrasti kosturinn sem
bauðst. Nú til dags era gúmmískór
í úrvali í ýmsum skóverslunum og
margir hveijir era litríkir og falleg-
ir með áprentuðum mynstram.
Fyrr á áram vora gúmmískór
þó einfaldari í útliti. Þeir vora
framleiddir hér á landi úr göml-
um bílslöngum, og auðvelt var
að bæta þá með gúmmíbótum
sem kallaðar vora rónabætur.
Sigurbjöm Þorgeirsson skósmíða-
meistari segir að hann hafi verið
sendur með íslenska framleiðslu í
sveitina þegar hann var bam, fyrir
seinna stríð. í stríðslok var svo haf-
inn innflutningur á svokölluðum
Sebó-skóm frá Tékklandi. „Þetta
vora ódýrastu skór sem hægt var
að fá og það vora allir í þessu á
öllum aldri. Vinsælastir vora þeir
í sveitum um sumartímann því
þeir vora stamir í blautu grasinu
en leðurskór voru eins og skautar
á svelli." Sigurbjöm, sem hóf störf
sem sjálfstæður skósmiður árið
1954, segir að hann hafi séð sömu
tískubylgjumar í skótísku koma
aftur og aftur og furðar hann sig
ekkert á því að gúmmískómir njóti
nú vinsælda. Þ’að er svo sem allt í
lagi að nota gúmmískó en fætumir
á fólki soðna ef þeir fá ekki loft og
þessu geta því fylgt alls konar fót-
sveppir."
®3IM05
Gífurleg aukning í
sðlu hjólhýsa hér á landi
halldora@vbl.is
Á síðasta ári jókst sala á hjólhýs-
um til muna og svo virðist sem sú
aukning haldi áfram í ár. Sýningar
og kynningar á nýjum árgerðum og
tegundum hjólhýsa fóra af stað af
miklum krafti í janúar og hafa hald-
ið áfrarn nær óslitið síðan. Æ fleiri
íslendingar gera sér grein fyrir kost-
um hjólhýsanna en þau henta afar
vel fyrir íslenskt veðurfar. Þau halda
algerlega vatni og hita þannig að rign-
ingartíð og næturkuldi koma vart í
veg fyrir að fólk geti notið íslenskrar
náttúra. Auk þess hefur það færst í
vöxt að fólk fari í sínar fyrstu ferðir á
vögnunum í mars-apríl og leggi þeim
ekki fyrr en jafnvel í nóvember.
300 hjólhýsi seld í ár
Margir þættir spila inn í þessa aukn-
ingu en hringvegurinn og fjölmargar
leiðir utan hans era nú malbikaðar,
ökutæki landsmanna era orðin kraft-
meiri og stærri, og síðast en ekki síst
hefur orðið gjörbreyting á byggingu
hjólhýsanna. Öll hjólhýsi sem íslensk
fyrirtæki flytja hingað til lands stand-
ast ítrastu öryggiskröfur sem gerðar
era til slíkra tengivagna og getur fólk
því haldið áhyggjulaust í fríið og not-
ið þess að ferðast á þennan hátt.
Rristín Anný Jónsdóttir, sölustjóri
hjá Víkurverki, segir aukninguna
rosalega og að þetta sé hálfgerð tísku-
bylgja. „Þetta er bara eins og æðið
sem var héma fyrir nokkrum áram
þegar allir fóru úr tjaldvögnum yfir
í fellihýsi. Nú era svo hjólhýsin að
taka við af fellihýsunum. I fyrra vora
seld um 100 stykki á íslandi en nú í
ár tel ég líklegt að sú sala eigi eftir að
þrefaldast." Uppsveiflan er greinilega
mikil í þessu hér á landi og Kristín
segir fólk vera að kaupa hjólhýsi yfir
háveturinn fyrir sumarið. „Þetta hef-
ur verið rosaleg sprengja og fólk var
farið að koma í stríðum straumum í
janúar og febrúar til þess að undir-
búa sumarið og kaupa sér hjólhýsi."
Nú er bara um að gera að fjárfesta
í einu stykki en hægt er að fá fjögurra
manna gott og þægilegt hjólhýsi á um
það bil tvær milljónir.