blaðið - 09.05.2005, Síða 27
blaðið I mánudagur 9. maí 2005
Fjölnota bilar
1. Nissan Almera Tino
Nissani hreppti
með naumindum
efsta sætið í þess-
um flokki. Almera
Tino hefur mjög
gott orð á sér fyrir
áreiðanleika, góða
vél og lága bilanatíðni. Það var helst
að mönnum fyndist innréttingin ekki
alveg fyrsta flokks.
2. Mazda Premacy
Premacy er einkar áreiðanlegur og
vél og gírkassi þóttu bera af í þessum
flokki. Eins voru eigendurnir afar
ánægðir með hönnunina að utan sem
innan. Helst nefndu menn rekstrar-
kostnað sem vankant á bílnum.
3. Hyundai Matrix
Allir bílar frá Hyundai nutu þess í
einkunn að umboðsmennirnir þóttu
standa sig með afbrigðum vel. Grind-
in þótti mjög góð í Matrix og nær eng-
ar kvartanir bárust úr farþegarými.
Rekstrarkostnaður var þó aðeins
hærri en í meðallagi.
Jeppar
1. Kia Sorento
Sorento fer beint
í fyrsta sætið og
reyndist skora
mjög hátt í öllum
flokkum nema
einum. Vélarnar
bila helst ekki og farþegarýmið þyk-
ir mjög gott. Stöku kvörtun barst þó
um frágang yfirbyggingar.
2. Honda CR-V
Áreiðanleiki CR-V þótti bera af í
þessum flokki en þær kvartanir sem
bárust voru nær allar um bremsur
og §öðrun. Þægindi í farþegarýminu
þóttu mikil og aksturseiginleikum
var sérstaklega brósað.
3. Hyundai Santa Fe
Eigendur Santa Fe mæla óhikað með
honum og mjög athygbsvert er að í
efstu þremur sætimum í þessum
flokki skuli Kóreumenn hreiðra um
sig í tveimur þeirra. Vélarbilanir
í Santa Fe eru svo til óþekktar, far-
þegarýmið þykir mjög þægilegt og
rekstrarkostnaður afar lágur.
Bestu bílaframleiðendumir
Þegar litið er til frammistöðu allra
tegunda einstakra framleiðenda kem-
ur ýmislegt fieira í ljós en dómar um
einstakar tegundir gefa til kynna.
©
1. Lexus
Lexus framleið-
ir ekki bara
glæsilega bíla
heldur einstak-
lega áreiðan-
lega. Það bilar nánast ekkert í þeim
og það er afar gaman að þurfa aldrei
að fara á verkstæði nema til reglu-
legrar skoðunar. Fyrst og fremst
voru Lexus-eigendur þó ánægðastir
með bvað það væri gaman að aka
þeim.
2. Skoda
Skoda hefur kom-
ist í fremstu röð
með undraskjót-
um hætti og þar
á bæ ætla menn
greinilega ekki að
láta deigan síga.
Það segir sína sögu að Fabia og Oct-
avia deila fjórða sætinu saman á
aðallistanum. Bilanir er fátíðar og
bæði ökumenn og farþegar hrósa bfl-
unum.
3. Honda
Honda heldur
áfram að styrkja
sig og á fjóra bíla
í 15 efstu sætun- HONDA
um með Honda
Jazz í efsta sæti,
annað árið í röð. Eigendurnir eru af-
ar ánægðir með áreiðanleika bílanna
og vandaða smíði.
j _i
i&i yjjj/ jjyiíj
nmj u Jjjjij
B&L frumsýndi um helgina nýja
BMW 3 línu en þetta er fimmta
kynslóðin af þessari vinsælu gerð
BMW. Nýi bíllinn á þó lítið skylt við
fyrirrennara sína annað en stærðar-
flokkinn. Uppruninn leynir sér raun-
ar ekki í útlitinu en nýja 3 línan er
nokkru stærri en áður. A hinn bóginn
eru nýjar málmblöndur bæði í grind,
yfirbyggingu og vél, svo að þyngdin
er nánast hin sama.
Hér á landi verður nýja 3 línan fá-
anleg í fjórum afbrigðum: 320i, 320d,
325i og 330i, en þar að baki búa þrjár
nýjar vélargerðir: 211 ha bensínvél,
163 ha díselvél og sex strokka 258 ha
bensínvél og er sú síðastnefnda jafn-
framt hin fyrsta frá BMW, sem er
gerð úr léttmálmunum áli og magne-
síumi. Verðið er frá 3.150.000 upp í
rúmar 4,5 milljónir króna.
3 línan hefur frá upphafi verið
burðarásinn í sölu BMW um heim all-
an allt frá því hún kom fyrst á mark-
að árið 1975, en segja má að einmitt
hún hafi breytt BMW úr þýskum
smábíl á heimamarkaði í alþjóðlegt
stöðutákn.
Að sögn Karls S. Óskarssonar, sölu-
stjóra B&L, felst helsta sérstaða nýju
línunnar í aksturseiginleikvmum en
31ínan erm.a. með 50:50jafnaþyngd-
ardreifingu, nýtt fjöðrunarkerfi og
bætta stöðugleikastýringu. Svo má
einnig fá hann með viðbragðsstýri,
sem vinnur gegn ójöfnum á vegi,
hliðarvindi eða öðru því sem kann
að bera bílinn af réttri leið. Af öðrum
nýjungum má nefna lykillausan að-
gang og ræsingu, þráðlaust símkerfi
og beygjuljós, sem fara í beygjurnar á
undan manni.
60-80%
AFSLATTUR
MYNDAALBUM, MOPPUR, BLYANTAR,
STROKLEÐUR, TÖSKUR, PENNAVESKI,
LEIKSKÓLATÖSKUR, SKRIFFÆRI, RITFÖNG,
LÍMBÖND, FÖNDURSETT, LITIR,
STÍLABÆKUR OFL. OFL.
Vorútsalan í Mjódd stendur til og með 13. maí
I Eymundsson