blaðið - 09.05.2005, Page 30
mánudagur 9. maí 2005 ! blaðið
30 íþ
Valurdeildar-
bikarmeistari
Valsstúlkur urðu á laugardag deildarbik-
armeistarar í knattspyrnu þegar þær
burstuðu KR 6-1 í úrslitaleik. Staðan í
hálfleik var 3-0. Nína Ósk Kristinsdóttir
skoraði þrjú mörk fyrir Val, Málfríður Sig-
urðardóttir, Laufey Ólafsdóttir og Dóra
María Lárusdóttir skoruðu eitt mark hver
fyrir íslandsmeistara síðasta árs. Hrefna
Jóhannsdóttir skoraði mark KR. Þetta er
í annað sinn sem kvennalið Vals sigrar í
deildarbikarnum í knattspyrnu.
Þór vann Val
Þór vann Val á laugardag í minningarleik
um Guðmund Sigurbjörnsson, fyrrum
formann Þórs, en leikur liðanna fór fram
á Akureyri. Það var Jóhann Traustason
sem skoraði markið eftir um hálftíma
leik. Leikurinn fór fram í Boganum og
var ágætlega sóttur.
Martins til Spurs?
Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins
Tottenham eru að undirbúa 13 milljón
sterlingspunda tilboð í Obafemi Martins,
sem leikur með Inter á (talíu. Obafemi,
sem er tvítugur að aldri, þykir einhver
alfljótasti framherjinn í boltanum núna.
Roberto Mancini hefur verið að gera hos-
ur sínar grænar fyrir Stephen Makinwa
sem leikur með Atalanta og þykir um
margt mjög líkur leikmaður og Martins.
Almennt er ekki búist við að Inter taki
tilboði Tottenham og að Spurs verði að
hækka sig þónokkuð ef Martins eigi að
fara til Lundúna.
NBA boltinn
Dallas Mavericks burstaði Houston
Rockets 116-76 í sjöunda leik liðanna í
fyrstu umferð úrslitakeppni NBA-körfu-
boltans. Dirk Nowitski og félagar mæta
Phoenix Suns í næstu umferð en þar
leikur Steve Nash sem lék um árabil
með Dallas. Nash var um helgina valinn
besti leikmaður NBA-deildarinnar í vetur
en hann hefur stjórnað liði Suns af mikilli
snilli. I hinni viðureign undanúrslita Vest-
urdeildar mætast San Antonio Spurs og
Seattle Supersonics. I undanúrslitum
Austurdeildar mætast Miami Heat og
meistarar Detroit Pistons leika gegn Indi-
ana Pacers sem sló út Boston Celtics
um helgina með því að vinna á útivelli í
sjöunda leik með 70 stigum gegn 97.
FjórirNorðurlanda-
meistarar í júdói
Við íslendingar eignuðumst á laugardag
fjóra Norðurlandameistara í júdói. Þor-
valdur Blöndal sigraði í opnum flokki.
Gígja Guðbrandsdóttir fékk gullverðlaun
í mínus 70 kg flokki og varð í 3. sæti í
opnum flokki. Þormóður Árni Jónsson
sigraði í plús 100 kg flokki og Vignir
Stefánsson sigraði svo i mínus 81 kg
flokki. Birgir Benediktsson varð í 2. sæti
í opnum flokki. Jósef Birgir Þórhallsson
varð í 3. sæti í opnum flokki. Margrét
Bjarnadóttir og Katrín Ösp Bjarnadóttir
fengu bronsverðlaun í mínus 63 kg
flokki. Guðmundur Gunnarsson varð
svo í 3. sæti í plús 100 kg flokki og Sæv-
ar Már Jónsson fékk bronsið i mínus
81 kg flokki.
Eiður Smári fékk
gullpeninginn
- á laugardag fyrir sigurinn í ensku úrvalsdeildinni
vbv@vbl.is
Liðsmenn Chelsea fengu á laugardag
afhentan bikarinn og gullverðlauna-
peninginn fyrir sigurinn í ensku úr-
valsdeildinni á leiktíðinni 2004-2005.
Chelsea hefur haft fádæma yfirburði
í deildarkeppninni í vetur og þegar
liðið á tvo leiki eftir er Chelsea með
91 stig í langefsta sæti. 28 sigurleikir,
sjö jafntefli og aðeins einn tapleikur
er staðreynd eins og málin standa nú.
Vamarleikur liðsins hefur verið frá-
bær í vetur en Chelsea hefur aðeins
fengið á sig 13 mörk. Einhver spek-
ingurinn sagði einhvem tíma að til
að vinna titla yrði að leika góða vöm.
Það sannaðist best hjá Chelsea í vet-
ur, sem vann Charlton 1-0 á laugar-
dag með marki frá Claude Makelele
á 90. mínútu. Eiður Smári Guðjohn-
sen var að vanda í byijunarliði Chels-
ea og lék allan leikinn en Hermann
Hreiðarsson var ekki með Charlton
að þessu sinni.
Everton er á góðri leið með að
tryggja sér fjórða og síðasta sætið í
Meistaradeildinni á næstu leiktíð
en Everton vann Newcastle 2-0 með
mörkum frá David Weir og Tim Ca-
hill. Everton er með 61 stig og á tvo
leiki eftir en Liverpool og Bolton hafa
55 stig. Bolton gerði jafntefli, 1-1, á
útivelli við Portsmouth þar sem El-
Hadji Diouf skoraði fyrir Bolton. Aiy-
egbeni Yakubu jafnaði þó metin fyrir
Portsmouth um tuttugu mínútum fyr-
ir leikslok. Liverpool og Arsenal léku
í gær og þegar Blaðið fór í prentun
var leiknum ekki lokið. Botnbaráttan
er áfram slagur á milli fjögurra liða;
W.B.A. sem er með 31 stig, Crystal
Palace með 32, Southampton með 32
og Norwich sem er með 33 stig. Öll lið-
in hafa leikið 37 leiki. Norwich vann
Birmingham 1-0 með marki frá Dean
Ashton á 45. mínútu. Crystal Palace
gerði 2-2 jafntefli við Southampton,
þar sem Danny Higginbotham jafnaði
metin fyrir Southampton á síðustu
mínútu leiksins. W.B.A. fór til Manc-
hester og mætti rauðu djöflunum.
Ryan Giggs skoraði fyrir United á
21. mínútu en Robbie Eamshaw jafn-
aði metin úr vítaspymu þegar seinni
hálfleikur var um það bil hálfnaður.
Önnur úrslit urðu þau að Blackbum
steinlá á heimavelli fyrir Fulham 1-
3 þar sem Steed Malbranque skoraði
tvö marka Fulham. Aston Villa tapaði
á heimavelli fyrir Manchester City,
1-2. Hinn eftirsótti Shaun Wright-
Phillips var þar á skotskónum frægu
í liði City. Middlesbrough vann Tot-
tenham 1-0 í miklum baráttuleik
um sæti í Evrópukeppni félagsliða
á næstu leiktíð. Það var George Boa-
teng sem skoraði eina mark leiksins
á 11. mínútu. Middlesbrough er í sjö-
unda sæti með 54 stig en Tottenham
er í 9. sæti með 51 stig.
John Terry, Frank Lampard og Eiður Smári Giðjohnsen með bikarinn.
vjmh
Ný sjónvarpsstöð fyrir enska boltann
- Skjár einn opnar í haust stöð sem verður aðeins fyrir enska boltann
Guðjón Valur Evrópumeistari
í handbolta
- Fimm íslendingar gátu orðið Evrópumeistarar um helgina
vbv@vbi.is
í slenska sj ónvarpsfélagið hefur ákveð-
ið að opna nýja sjónvarpsstöð í haust
sem verður tileinkuð enska boltanum.
Um er að ræða áskriftarstöð og þessi
nýja stöð mun sýna frá fleiri leikjum
í ensku úrvalsdeildinni en áður hef-
ur þekkst í íslensku sjónvarpi, segir
í fréttatilkynningu frá SkjáEinum.
Stöðin mun sýna samstundis frá fleiri
en einum leik í einu á mismunandi
rásum. SkjárEinn ætlar auk þess
að gölga til muna efni tengdu ensku
knattspyrnunni,
svo sem fréttum
afliðum, leikmönn-
um og fallegustu
mörkunum. Einn-
ig verða ítarlegir
spj allþættir við sér-
fræðinga um enska
boltann.Meðþessu
geta kröfuharðir
sparkfiklar val-
ið á milli leikja í
ensku úrvalsdeild-
inni sem leiknir
eru samtímis. Með
tilkomu áskriftar-
stöðvarinnar flyst
enski boltinn af dagskrá SkjásEins
og allir leikimir verða sendir út í staf-
rænum gæðum. Síminn mun sjá um
drefingu efnisins í gegnum dreifikerfi
sitt og einnig annast dreifingu á mót-
tökubúnaði fyrir íslenska sjónvarps-
félagið. Áhugasömum einstaklingum
er bent á að hægt er að skrá sig á
heimasíðu SkjásEins, www.sl.is, til
að tryggja sér aðgang að stöðinni og
einnig vegna uppsetningar á móttöku-
búnaði og tímasetningu.
vbv@vbl.is
Ólafur Stefánsson átti möguleika á að
verða Evrópumeistari í Meistaradeild
Evrópu í handknattleik þegar Ciudad
Real mætti Barcelona en leikurinn
fór fram í Katalómu. Ciudad vann
fyrri leikinn með einu marki, 28-27,
og lokasekúndur leiksins í Barcel-
ona voru æsispennandi. Ciudad Real
leiddi með tveimur mörkum, 23-25,
en þá skoruðu heimamenn þijú mörk
í röð og sigruðu í leiknum með tveggja
marka mun, 29-27. Þar með varð
Barcelona Evrópumeistari. Ólafur
og Talant Dujsibaev voru bestir í liði
Ciudad Real í leiknum og Hombrados
markvörður var mjög góður í seinni
hálfleik.
í Essen voru fjórir íslendingar að
mætast, Guðjón Valur Sigurðsson
með Essen og Sigfús Sigurðsson, Am-
ór Atlason og þjálfarinn Alfreð Gísla-
son í Magdeburg, þegar hðin mættust
í seinni úrslitaleik liðanna í Evrópu-
keppni félagsliða. Magdeburg vann
fyrri leikinn með átta marka mun,
30-22, og því reiknuðu flestir með að
þeir yrðu meistarar. Essen gerði sér
lítið fyrir og vann seinni leikinn með
níu marka mun, 31-22. „Það var mik-
ið afrek hjá okkur að tapa með átta
mörkum í Magdeburg og enn meira
afrek að vinna seinni leikinn með níu
marka mun, og það lið eins og Magde-
burg,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson
í samtali við Blaðið í gær, í skýjunum
með Evrópumeistaratitilinn. Jíg skor-
aði þegar 25 sekúndur voru eftir af
leiknum og þá var staðan 30-22. Ef
leikurinn hefði endað þannig þá hefði
farið ffarn vítakeppni. Magdeburg tók
hraða miðju og þeir skutu að marki
en tókst ekki að skora. Við fengum
boltann, brunuðum ffarn í sókn og
Torgovanov skoraði þetta dýrmæta
mark þegar um þijár sekúndur voru
eftir,“ sagði Guðjón Valur þegar hann
var beðinn um að lýsa síðustu sekúnd-
um leiksins. „Þetta var alvöru leikur
og það var fínt að kveðja Essen með
titli." 6.000 áhorfendur voru á leikn-
um. Guðjón Valur er að ljúka samn-
ingi sínum hjá Essen og leikur með
Gummersbach á næstu leiktíð.
SÍMI577 1313 • kistufaliekittuftll.com
Gæðavara i góðu vcrði
<£>
Spyrnur, spindilkúlur og stýrisendar Pakkningar og pakkningasett
öfc. m
Tímareimasett Vatnsdælur
Einnig vcntlar, tímareimar,
olfudælur, knastásar og
knastásasctt.
www .kistufell.com
Juve með vænlega stöðu
- eftir sigur á AC Milan í gær
vbv@vbl.is
Juventus er í góðum málum á Ítalíu
þegar þremur umferðum er ólokið eft-
ir 0-1 sigur á AC Milan á Guiseppe
Meazza í Mílanóborg. Það var Dav-
id Trezeguet sem skoraði eina mark
leiksins með skalla á 20. mínútu í
toppslag þessara risa. Þar með er
Juve með 79 stig og á eftir að leika
gegn Parma og Cagliari á heimavelli
og gegn Livomo á útivelli. Milan,
sem er með 76 stig, á eftir að leika
tvo útileiki, gegn Lecce og Udinese,
og svo heimaleik gegn Palermo. Int-
er er í þriðja sæti með 65 stig eftir
0-3 sigur á Brescia þar sem Obafemi
Martins skoraði tvö marka Inter og
Christian Vieri setti eitt. Sampdoria
og Udinese eru jöfn að stigum í fjórða
til fimmta sæti með 59 stig. Sampdor-
ia vann Lecce auðveldlega 3-0 og Udi-
nese gerði góða ferð til Rómarborgar
og vann Lazio 0-1. Atalanta heldur
enn í vonina um að halda sæti sínu
í deildinni eftir óvæntan 2-1 sigur á
Messina. Cagliari og Palermo gerðu
markalaust jafntefli, Chievo tapaði
heima fyrir Fiorentina 1-2 og þar var
um mjög mikilvægan sigur Flórens-
manna að ræða í botnbaráttunni sem
er hörð. Reggina og Bologna gerðu 1-1
jafntefli, Parma vann Roma 2-1 og Li-
vomo tapaði á heimavelli fyrir Siena
í markaleik helgarinnar, 3-6.
Real með stórsigur
Real Madrid fór hamfómm gegn
Racing Santander á laugardag þegar
Real vann 5-0. Micahel Owen var enn
að skora fyrir Real en hann hefur upp
á síðkastið oft verið orðaður við lið á
Englandi. Ronaldo skoraði tvö mörk
og gulldrengur þeirra Madrídinga,
Raul, skoraði einnig tvö mörk. Real
er með 75 stig og á þijá leiki eftir en
Barcelona er í efsta sæti. Barca átti
að leika við Valencia í gær og leikn-
um var ekki lokið þegar Blaðið fór í
prentun. Osasuna og Mallorca gerðu
1-1 jafntefli og Real Betis vann Se-
villa í miklum nágrannaslag með einu
marki gegn engu. Það var Ricardo Oli-
veira sem skoraði markið. Sevilla er í
þriðja sæti með 58 stig.
■