blaðið - 09.05.2005, Side 38
mánudagur 9. maí 2005 ! blaðið
... í Nauthólsvík
Hvað á að gera í sumar?
Slúðrið um okkur!
Haukur Ingi Sigurðsson
Ég ætla að njóta sumarsins
og hjóla mikið.
Aníta Jónsdóttir
Vera með fjölskyldunni.
Arnar Sigurðsson
Ferðast um landið eftir GPS-leiðsögu-
kerfinu frá Loftmyndum.
Sigrún Birna Norðfjörð
Ég ætla nú bara að eiga barn.
Guðbjartur Sigurbergsson
Bara að hjóla út um allt.
Af einhveijum ástæðum fylgist öll heimsbyggðin með sumum samböndum en oft er ekki þverfótað fyrir slúðri sem berst
dagslega af hinum og þessum pörum. Sjónvarpstöðin E! hefur tekið saman lista um „slúðurvænstu" samböndin í Holly-
wood en þessi listi inniheldur hvorki meira né minna en 101 par. Hér eru þau 20 sambönd sem tróna á toppi hstans og
dæmi nú hver fyrir sig.
Aðþrengd
eiginkona
fékk það
seint
Eva Longaria, sem leikur í De-
sperate Housewives þáttunum,
hefur greint frá því að hún hafi
ekki fengið fullnægingu fyrr en
hún varð 26 ára. Hún sagðist
alltaf hafa haldið að hún væri
að fá það en þegar það loksins
gerðist skildi hún ekki hvað var
í gangi í líkama sínum. Eva,
sem er þrítug, sagði jafnframt
að hún tryði því að kynlífið yrði
betra með aldrinum og getur
ekki beðið eftir því að verða fer-
tug.
1. Jennifer Lopez & Ben Affleck
2. Pamela Anderson & Tommy Lee
3. Brad Pitt & Jennifer Aniston
4. Demi Moore & Ashton Kutcher
5. Whitney Houston & Bobby Brawn
6. Julia Roberts & Lyle Lovett
7. Ellen DeGeneres & Anne Heche
8. Britney Spears & Justin Timberlake
9. Woody Allen & Soon-Yi Previn
10. John F. Kennedy jr. & Carolyn Bessette
11. Angelina Jolie & Billy Bob Thornton
12. Farrah Fawcett & Ryan O’Neal
13. Jerry Seinfeld & Shoshana Lonstein
14. Elizabeth Taylor & Richard Burton
15. Courtney Love & Kurt Cobain
16. Díana prinsessa & Karl príns
17. Hugh Grant & Liz Hurley
18. Roseanne Barr & Tom Arnold
19. John Lennon & Yoko Ono
20. Tom Cruise & Nicole Kidman
Einkaþotan hans P. Diddy þurfti að nauðlenda
eftir að hún varð fyrir eldingu. Rappkóngurinn
var á leiðinni frá New York á fund í Miami þeg-
ar atvikið varð. Sem betur fer skaðaði engan og
P. Diddy náði á fundinn í tæka tíð þar sem hann
mætti í silfurlituðum Rolls Royce og hélt erindi
um hvernig hann byggði upp Sean Jean fatalínu
sína.
P. Diddy
nauðlendir
r 4 Jr .• V a . m v 1 í FULLKOMNU JAFNVÆGI
Flottari línur og flatari magi
Kljl.l’
'M> (,IU I N
Kelp and Greens
Þaratöflur
m/grænu tei.
Flottari línur, hár,
húð og neglur.
Inniheldur:
Kelp, Spírulína
Blue Green Algae
Chlorella
Slimming
Krómblanda.
Dregur úr hungur-
tilfinningu og
eykur brennslu
Inniheldur:
Garclna Cambogia
HCA
Gymnema, Sylvestre
Chromium
iniheldur ekki: Matarllm (gelatlna) né
»fni, rotvarnarefni, korn, hveiti, glúten,
jólkurafurðir. - Fæst f naesta apóteki.
Orlando
genginr
Fréttir herma að sjarmatröll-
ið Orlando Bloom sé kominn
með nýja gellu upp á arminn.
Sú heppna heitir Vanessa og er
kynnir á MTV-sjónvarpstöðinni
og fyrrum „Miss Teen USA“.
Það sást til þeirra skemmta
sér á Manhattan og að sögn
sjónarvotta létu þau mjög vel
hvort að öðru. „Þau hvísluðust
á, dönsuðu dónalega og létu
hvort annað ekki vera. Stelpur
sem reyndu að ná sambandi
við Orlando voru algjörlega
hunsaðar," sagði einn gestana.
Vanessa stjómar þáttum eins
og TRL og MTV hits í Banda-
ríkjunum.
Sú saga geng-
ur nú um bæ-
inn að Þossi,
sem áður var
útvarpsmaður
á X-inu, sé á
leiðinni á klak-
ann en hann
hefur verið
búsetturíKaup-
mannahöfn
undanfarin ár.
Hann mun þó ekki vera aðgerða-
laus því fregnir herma að hann sé
kominn í lið 365 og hafi verið ráðinn
til að endurvekja X-ið. Eins og kunn-
ugt er var X-inu lokað fyrir nokkrum
mánuðum en nú virðist sem
Gunnar Smári hafi séð að það er
markaðurfyrir Rokk. X-fm kom, sá
og sigraði í síðustu útvarpskönnun
Gallup...
Ríkiskerf ið er tæpast annálað
fyrir snör handtök en í síðustu viku
hélt Umhverfisráðuneytið upp á
flutning sinn í ný húsakynni með
glasaglaumi, fögnuði og formlegri
afhendingu Halldórs Ásgrimssonar
á þessari nýju starfsstöð. Flutningur-
inn hófst í nóvember í fyrra. Leiðin
var raunar ekki löng, úr Vonarstræt-
inu í Skuggasund. Gárungar í Stjóm-
arráðinu segja að ráðuneytismenn
hljóti að hafa flutt hvert einasta
snitti í höndunum, eitt í einu, til
þess að sporna við gróðuhúsaút-
blæstri sendiferðabíla...
Morgunblaðsgrein Elínar G. Ólafs-
dóttur, fyrrverandi borgarfulltrúa
Kvennalistans og stöllu Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur, um formanns-
slaginn í Samfylkingunni hefur vakið
nokkra athygli stjórnmálarýna. í
henni gaf Elín ekkert séríega fínlega
í skyn að klofningur væri fram undan
í Samfylkingunni yrði Ingibjörg Sól-
rún ekki formaður. Hér þykir kveða
við nýjan tón en fram að þessu hafa
frambjóðendurnir ítrekað að bæði
muni una úrslitunum, hver sem þau
verði. Aðrirtelja þó myndmál Elínar
í greininni athyglisverðara því þar
líkir hún Össuri Skarphéðinssyni við
Pétur postula þegar hann afneitadi
Jesú. Mörgum hefur þótt hástemmt
lofið um Ingibjörgu Sólrúnu á vef
hennar háði líkast en enginn hefur
þó hingað til gengið svo langt að
líkja henni við endurlausnarann
Jesúm Krist, líkt og Elín gerir í trúar-
játningu sinni...
Inga Lind Karlsdóttir, sem býður
okkur góðan dag í íslandi í bítið,
var heldur betur ósátt þegar hún sá
Blaðið. Henni þykir víst Btaðið vera
allt of líkt Fréttablaðinu og allt of
ólíkt blaðinu sem hún gaf út á 10.
aldursári undir nafninu Blaðið. Hún
er ekki sú eina sem hefur gefið út
blað undir nafninu Blaðið því Gunn-
laugur Þór gerði það einnig á sínum
tíma með SUS og Ævar nokkur
Ragnarsson með Flensborgarskóla.
Það er því Ijóst að Blaðið þykir vera
gott nafn á fréttablaði og eins og
einhver vitur maður sagði: „Allt er
þegar þrennt er!“