blaðið - 26.05.2005, Page 4
4 innlent
fímmtudagur, 26. maí 2005 I blaðið
Meðhöndlaðir við
berklum við Kárahnjúka
Nokkrir erlendir starfsmenn Impre-
gilo við Kárahnjúka eru þessa dagana
í meðhöndlun vegna kveisuberkla-
smits. Engin sönnuð berklatilfelli
hafa þó komið upp heldur eru starfs-
mennirnir meðhöndlaðir vegna
„reiknaðra líka“ á berklasmiti, eins
og Þorsteinn Njálsson, læknir við
Kárahnjúka, orðaði það í samtali við
Blaðið.
Stór hópur af erlendum starfsmönn-
um vinnur um þessar mundir fyrir
ítalska verktakafyrirtækið Impregilo
við virkjunarframkvæmdir.
Að sögn Þorsteins er eftirlit með
heilsufari starfsmanna við Kára-
hnjúka til fyrirmyndar. Þar eru nú
starfandi tveir læknar og einn hjúkr-
unarfræðingur, og allir starfsmenn
hafa góðan aðgang að heilbrigðisþjón-
ustu.
„Það hafa einfaldlega verið teknar
lungnamyndir af þessum einstakling-
um og þeir eru settir á berklameðferð
meðan ekki er 100% hægt að útiloka
að um berkla sé að ræða. Þetta er
gert af öryggisástæðum - þetta eru
eðlilegar vinnureglur. Það sýnir að
allrar varkárni er gætt,“ sagði Þor-
steinn að lokum.
- WT 'l r
ffí |EJ
|íf í 1 j [j Ll
"
Á þriðja hundrað
Landcruiser-
jeppar innkallaðir
Innkalla þarf 270 Toyota Landcruis-
er bfla af árgerðinni 2001-2003 hér á
landi á næstunni vegna galla í spind-
ilkúlum og fá eigendur þessara bfla
bréf í pósti þar að lútandi á næstu
dögum. Þessi tiltekni galli getur leitt
til trosnunar og ótímabærs slits, en
61.000 Landcruiser-bflar verða kall-
aðir til athugunar vegna þessa á
heimsvísu. Eiríkur Einarsson, tækni-
Borgarstjóri bjartsýnn
á framtíð R-listans
- segir deilur innan Reykjavíkurlistans
hefðbundnar í aðdraganda uppstillingar
og stefnumótunar fyrir kosningar
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borg-
arstjóri Reykjavíkur, hefur ekki
áhyggjur af þeim væringum sem
verið hafa innan Reykjavíkurlistans
undanfarna daga og minn-
ir á að ámóta deilur hafi
einatt risið á þessu stigi
máls. „Menn setja fram
sínar ítrustu kröfur en síð-
an er mæst á miðri leið.“
Borgarstjóri telur engin
þau deilumál hafa komið
upp sem ekki megi leysa
ef viljinn er fyrir hendi.
„Ég er bjartsýn og treysti
á að fólkið sem er að vinna
þessa vinnu fyrir okkur
sýni þá ábyrgð að leysa
ágreininginn þannig að
Reykjavíkurlistinn verði áfram til,“
segir Steinunn og bætir við að hann
lifi á fleiru en fortíðinni. „Við höfum
framtíðarsýn og þótt Reykjavíkurlist-
inn hafi verið lengi við völd hefur átt
sér stað mikil og stöðug endurnýjun,
bæði á mönnum og málefnum."
Hnútur hafa gengið milli liðs-
manna Reykjavíkurlistans undan-
farna daga og hafa ýmsir innanbúð-
armenn gengið svo langt að segja
samstarfíð í hættu og framboð list-
ans að ári beinlínis ólíklegt.
Forsíðuviðtal Fréttablaðsins við
Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins, í gær var
svo ekki til þess fallið að róa menn
niður því þar var því slegið upp að
afstaða Vinstri grænna í málefhum
Orkuveitu Reykjavíkur skipti engu.
Síðar um daginn sagði Alfreð að orð
hans hefðu verið mistúlkuð í blað-
inu en þó ekki fyrr en
stjóm Vinstri grænna
í Reykjavík hafði birt
yfirlýsingu þar sem
harmaðar voru „hót-
anir Alfreðs" um sam-
starf við sjálfstæðis-
menn í Orkuveitunni
og sagt að í þeim fæ-
list jafnframt hótun
um að slíta meirihluta-
samstarfinu í Reykja-
vík.“
Flugleiðir
græða
Afkoma FL Group, sem áður hét
Flugleiðir, batnaði um 880 milljónir
króna fyrstu þrjá mánuði ársins mið-
að við sömu mánuði í fyrra. Þetta
er næstbesta afkoma starfsemi
félagsins á þessum árstíma frá upp-
hafi að sögn félagsins. Hagnaður
þessa fyrstu þrjá mánuði ársins var
25 milljónir.
Treysti á að
menn leysi
ágreininginn
svo R-listinn
verði áfram til
stjóri hjá P. Samúelsson, segir að
við reglubundnar skoðanir á Toyota
Landcruiser bflum af þessum árgerð-
um hafi aðeins einn bíll komið fram
með bilaða spindilkúlu. Bilanir hafa
fundist í 21 af þeim 883.000 Toyota-
bflum sem kallaðir eru inn um allan
heim en þar af hefur bilunin aðeins
leitt til slyss í einu tilfelli.
Illa fengnir fulltrúar á
landsfundi Samfylkingar?
Félagar í flokksfélagi Samfylkingar-
innar á Akranesi á aldrinum 15-35
ára voru allir sem einn færðir úr fé-
lagatalinu yfir á félagaskrá Ungra
jafnaðarmanna (UJ) fyrir Landsfund
Samfylkingarinnar um liðna helgi,
sem hefði fært fimm fulltrúa Skaga-
manna yfir til UJ ef það hefði ekki
komist upp í tæka tíð.
Blaðið hefur heimildir fyrir því að
flokksfélög Samfylkingarinnar víðar
um landið séu að kanna félagaskrár
sínar og hvernig þessum málum var
háttað fyrir landsfund. Leiða menn
líkur að því að starfsmaður UJ á
skrifstofu Samfylkingarinnar hafi
gerst fifllákafur í félagaöflun fyrir
hreyfinguna og tengja það kosninga-
baráttu Ágústs Ólafs Ágústssonar til
varaformannsembættis flokksins.
Geir Guðjónsson, formaður Sam-
fylkingarfélagsins á Akranesi, vildi
sem minnst tjá sig um málið að svo
stöddu, málið væri í athugun á flokks-
skrifstofunni. „Ef þetta er einangrað
tilvik þá verður það bara leiðrétt en
ef það kemur í ljós að flokksskránni
hafi verið breytt kerfisbundið á þenn-
an hátt er málið miklu alvarlegra.
Ég var búinn að senda félagatalið
frá mér en þegar ég fékk það til baka
viku síðar voru yfir 40 horfnir úr því
og skráðir í UJ á landsvísu."
Á skrifstofu Samfylkingarinnar
fékkst það staðfest að athugasemd-
ir frá Akranesi hafi leitt í ljós að
einhver mistök hafi átt sér stað við
vinnslu félagatala vegna landsfund-
ar. Hins vegar vildu starfsmenn ekki
svara því hvort rannsakað hefði verið
hvort hið sama hefði komið fyrir fé-
lagatöl annarra félaga, en sögðu að
ekkert annað félag hafi gert athuga-
semd við félagatölin eins og þau bár-
ust frá flokksskrifstofunni.
Gangi menn í Samfylkinguna má
gera það með því að ganga í hin ýmsu
flokksfélög, en fólki á aldrinum 15-
35 ára býðst að ganga í félög Ungra
jafnaðarmanna án þess þó að það
sé skylda, enda starfa þau ekki alls
staðar. Þegar fulltrúafjöldi einstakra
félaga á landsfundi er ákveðinn er
farið eftir félagaskrám þeirra en einn
fulltrúa má senda fyrir hverja tíu
flokksfélaga.
Ágúst Ólafur Ágústsson, nýkjörinn
varaformaður Samfylkingarinnar,
hefur enn ekki látið ná í sig þrátt fyr-
ir ítrekaðar tilraunir Blaðsins.
Drengjamiðað
nám
Forráðamenn Hússtjórnarskólans á
Hallormsstað hafa sótt um aukafjár-
veitingu til menntamálaráðuneytis-
ins. Ástæðan er verkefni sem miðar
að því að fjölga drengjum sem
stunda nám við skólann.
Að sögn Þráins Lárussonar skóla-
meistara eru drengir mjög tregir til
að sækja um nám við skólann.
„Við viljum bjóða upp á fjölbreytt-
ara nám og fjölga greinum sem
geta höfðað til drengja," sagði
Þráinn í samtali við Blaðið. „Sem
dæmi viljum við bjóða upp á nám
í leðurvinnslu, tréskurði og fleiru.
Skólinn hefur gengið gríðarlega
vel að undanförnu og það vel að
við teljum okkur hafa að mestu
efni á nýju námi. Það eina sem við
þurfum að fjámiagna er launakostn-
aður kennara," sagði Þráinn að
lokum.
- Kassaklifur - GPS ratleikir - Bátasiglingar - Vatnaleikir - Frumbyggjastöp
ÚLFLJÓTSVATNI
Upplýsingar og skróning ó netinu:
www.ulfljotsvatn.is
7-8
ára
Einstök krakkanámskeið
Útilíf og œvintýri!
ý-12
ára
Almenn námskeið
Vinir, fjör og hópefli!
INNRITUN ER HAFIN - Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.is,