blaðið - 26.05.2005, Blaðsíða 10
I
fimmtudagur, 26. maí 2005 i blaðið
Kona flutt á spítala eftir að hafa særst í sprengingu í gær.
ETA-sar ntökin bendluð
við bílsi prengingu í Madríd
Bíll var sprengdur í loft upp í Madríd
fyrir hádegi í gær eftir að ETA, Fé-
lag aðskilnaðarsinnaðra baska, hafði
sent frá sér sprengjuviðvörun. Atvik-
ið átti sér stað á vinnusvæði norðar-
lega í borginni en það var vaktað af
lögreglunni, sem hafði fengið tilkynn-
ingu um að sprengju hefði verið kom-
ið fyrir í sendiferðabíl. Enginn lét lífið
í sprengingunni en þrír slösuðust og
voru fluttir á sjúkrahús. Forsætisráð-
herra Spánar, Jose Luis Rodriguez
Zapareto, gaf óbeint til kynna, stuttu
eftir atvikið, að nú væri svo komið að
ETA yrðu beittir hörðu. „Úr þessu er
ekki annar kostur í sjónmáli en að
ETA leggi niður vopn og að samtök-
in leysist upp,“ sagði Zapareto, en
sprengingin var sú sjötta sem samtök-
unum er kennt um síðan hann bauðst
til að setjast að samningaborði með
félögum þess til að binda enda á ára-
tuga ofbeldistilræði. Fjórar sprenging-
ar sprungu lö.maí sl., auk þess sem
smásprenging varð um síðustu helgi.
ETA-samtökin hafa verið bendluð við
öll atvikin.
Bandarísk olíuleiðsla opnuð
Yfirvöld Tyrklands, Kasakstan, Georg-
íu og Azerbaijan lýstu á miðvikudag
formlega yfir opnun fyrsta hluta 1.760
km langrar leiðslu sem mun flytja olíu
ffá Kaspíahafinu að mörkuðum Vest-
urlanda. Forsetar ríkjanna fjögurra
voru allir viðstaddir hátíðlega athöfn
í Azerbaijan þar sem þessu var lýst
yfir.
Bandaríkjamenn fjármagna ffam-
kvæmdina að mestu leyti.
Leiðsla liggur ffá höfðuborg Azerb-
aijan, Baku, til tyrknesku hafnarinnar
Ceyhan, og er tahð að hún muni létta
vestrænum olíumörkuðum róðurinn
þar sem þeir eru flestir háðir olíu Mið-
austurlanda. Áður fóru olíuflutningar
ffá ríkjum við Kaspíahafið aðallega
um rússneskar leiðslur.
Leiðslan kostar 3,2 milljarða doll-
ara og mun flytja oh'u sem samsvar-
ar milljón tunnum á dag en það mun
þurfa um 10 milljón tunnur af olíu til
að fylla leiðsluna þegar hún verður
fullgerð.
Stjómendur ffamkvæmdanna segja
að það taki um einn og hálfan mán-
uð að ljúka við hlutann í Azerbaijan.
Georgíski hlutinn verður tilbúinn
skömmu síðar en tyrknesk yfirvöld
telja að ffamkvæmdum ljúki þar í
kringum 15. ágúst.
Egyptar greiða atkvæði
Egyptar ganga nú til kosninga til
að greiða atkvæði um stjórnarskrár-
breytingu. Stjórnarandstæðingar
segja kosningarnar skrípaleik og
hvetja fólk til að sniðganga atkvæða-
greiðsluna.
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, hefur sætt sívaxandi gagnrýni
ýmissa ríkisstjórna og mannréttinda-
hópa. Lagabreytingarnar, sem kosið
er um, eiga að auðvelda stjómmála-
mönnum að bjóða sig ffam gegn sitj-
andi forseta sem verið hefur við völd
óslitið síðan 1981. Margir segja breyt-
inguna sníða ff ambj óðendum ofþröng-
an stakk því í henni felist fjöldamörg
skilyrði sem fáir geti uppfyllt nema
þeir séu velviljaðir forsetanum. T.d.
þarf ffambjóðandi að vera meðlimur
í opinberum stjórmálaflokki en flest-
ir stjórnarandstæðingar hafa sætt
miklum ofsóknum yfirvalda, sem
viðurkenna aðeins útvalda flokka.
Ætli menn í einstaklingsffamboð er
skilyrði að þeir hljóti samþykki stórs
hluta sitjandi þingmanna og ýmissa
sveitarstjórnarmanna sem margir
eru mjög hliðhollir forsetanum.
Mubarak hefur verið sakaður mn
valdmðslu og spillingu allt ffá upp-
hafi stjórnartíðar sinnar og velvild
hans í garð Bandaríkjanna hefur
mætt harðri gagnrýni pólitískra and-
stæðinga hans sem fullyrða margir
að hann starfi undir verndarvæng
þeirra.
„Egyptar, haldið ykkur heima!" var
fyrirsögn egypska blaðsins al-Wafd
daily, sem er málgagn stjórnarand-
stöðimnar. Niðurstöðu kosninganna
er að vænta seinna í dag en stjórn-
málaskýrendur telja að hún muni
ekki hafa merkjanleg áhrif á egypsk
stjórnmál.
Almenningur
mótmælir í miðborg
Kaíró í gær
Með þvi að lata Postinn sjá um
allan pakkann sparar þú rekstj
kostnað. Pósturinn kemurá M
fyrirfram ákveðnum tíma, tefci
altar sendingar og skilar þdp.
fljótt og örugglega til viðtal«i>d
Hafðu samband við söluftpfrúí
í síma 580-1090 eða í nelrrangið
sala@postur.is og fáðj/nánari
upplýsingar. / Égk
www.postur.is
POSTURINN