blaðið - 26.05.2005, Qupperneq 6
fimmtudagur, 26. maí 2005 í blaðið
Forseti Indlands kemur í heimsókn:
Það stendur til að undirritaður verði
loftferðasamningur á milli íslands
og Indlands, sem hluti af opinberri
heimsókn forseta Indlands hingað
til lands. A.P.J. Abdul Kalam kemur
við á íslandi dagana 29. maí-1. júní í
opinberri heimsókn, sem er hluti af
tveggja vikna ferð hans um Evrópu.
Engin viðskiptasendinefnd verður
með í fór líkt og var þegar Ólafur
Ragnar Grímsson fór til Kína um dag-
inn heldur er um kurteisisheimsókn
forseta Indlands til forseta íslands að
ræða.
Flug ekki á teikniborðinu
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, styður eindregið
samninginn milli landanna. „Þeim
mun fleiri og betri loftferðasamn-
inga sem við gerum, þeim mun meiri
möguleikar opnast. Þetta getur skipt
máli fyrir bæði farþega- og fragtflug
og alls konar aðra starfsemi tengda
flugi.“ Aðspurður segir hann aldrei
að vita hvort Icelandair fari að fljúga
á milli landanna.
Ræðismaður Indlands á íslandi sendiráð hér á landi en fréttir þess
segir það úr lofti gripið að Indverjar efnis birtust í fjölmiðlum í gær.
séu með hugmyndir uppi um að opna
Loftferðasamningur milli
íslands og Indlands
En ekki sendiráð
Dagur af Reykjavíkur
listanum að óbreyttu
Vísindaveiðar:
íslendingar fordæmdir
Gömlu hvalveiðiskipin í Reykjavíkurhöfn.
Dýraverndunarsamtökin The Int-
emational Fund for Animal Wel-
fare (IFAW) hafa slegist í hóp með
sendiherrum Bretlands, Frakklands
og Þýskalands gegn fyrirhuguðum
hvalveiðum íslendinga í sumar. Sam-
tökin fordæma veiðarnar sem ónauð-
synlegar, grimmar og fjárhagslega
óhagkvæmar og biðja Sjávarútvegs-
ráðuneytið að hætta við þær.
Vilja 139 hrefnurá næstu tveim-
ur árum
Talsmaður Hafrannsóknarstofnun-
ar segist ekki skilja hvers vegna öll
þessi gagnrýni berist einmitt núna.
Engin sérstök tillaga hafi verið send
ríkisstjórninni en vissulega sé vitað
í Sjávarútvegsráðuneytinu hvaða
áætlanir stofnunin hafi. Þetta séu
ársgamlar tillögur sem allt í einu
hafi orðið fréttaefni nýlega. Hafrann-
sóknarstofnun vill klára fyrra hundr-
aðið af tveimur hundruðum dýra með
veiðum á 39 hrefnum í ár og klára
það seinna á næsta ári.
Símaskrá komin út:
Mikið af nýjungum
Og fullt af fólki
Bjóði Reykjavíkurlistinn fram í
borgarstjórnarkosningunum að ári
má ljóst telja að Dagur B. Eggertsson
hverfi af þeim vettvangi því ekki
er rými fyrir fulltrúa „óháðra" á
listanum.
Þótt viðræður flokkanna þriggja,
sem standa að Reykjavíkurlistanum;
Framsóknarflokks, Samfylkingar og
Vinstri grænna, gangi stirðlega hafa
þær samt sem áður þokast áfram
á sumum sviðum. Eitt af því sem
viðræðunefndin varð fyrst ásátt um var
að ef samkomulag tækist um framboð
Reykjavíkurlistans í fjórða sinn myndu
einungis fulltrúar flokkanna sitja í
efstu átta sætum hans. Um fulltrúa
„óháðra" yrði ekki að ræða á nýjan leik
og því sjálfhætt fyrir Dag nema hann
gangi í einhvem flokkanna.
Breiðbandsnotkun:
ísland í 4.
sæti á heimsvísu
í nýjustu tölum Efnahags- og fram-
farastofnunar Evrópu (OECD) er
ísland í fjórða sæti í útbreiðslu breið-
bands. Þau lönd sem standa okkur
framar eru Suður-Kórea, Holland og
Danmörk. ísland er um 0,7 prósent-
ustigum frá Danmörku og Hollandi.
í 27 af 30 ríkjum OECD er ADSL
útbreiddasta breiðbandsþjónustan
en hlutfall þeirrar þjónustu er hæst
á íslandi, 17,4%. ■
Kunnugir segja Dag ekki munu
ganga í Samfylkinguna að svo
stöddu þótt flestir líti á hann sem
óopinberan liðsmann hennar, ekki
síst eftir stuðningsyfirlýsingu hans
við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
í formannskjöri Samfylkingarinnar
á dögunum. Hann líti svo á að
hann hafi verið kjörinn sem fulltrúi
óflokksbundinna borgarbúa, sem hafi
viljað leggja Reykjavíkurlistanum
lið, og hann vilji sitja sem slíkur
út kjörtímabilið. Hvað þá taki við
sé svo önnur saga. Þá styttist í
alþingiskosningar og áhugi mun vera
fyrir því meðal Samfylkingarfólks í
Reykjavík að fá hann til framboðs á
þeim vettvangi.
Ný stjórn Trygginga-
miðstöðvarinnar
Páll Þór Magnússon og Kjartan
Broddi Bragason voru kosnir í stjórn
Tryggingamiðstöðvarinnar á hlut-
hafafundi í gær. Auk þeirra eru Geir
Zoéga, Guðbjörg M. Matthíasdóttir
og Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs-
son í stjórn. Einnig voru Jón Krist-
jánsson og Sindri Sindrason kosnir
sem varamenn en Sindri vék sæti úr
aðalstjóm. Úr stjórn gengu Sigur-
björn Magnússon, Ægir Páll Frið-
bertsson og Gunnar I. Hafsteinsson.
Eins og undanfarin ár er forsíða
Símaskrárinnar prýdd listaverki
og er það Verkið Æi, æ 2003, eftir
Maríu Hrannar Gunnarsdóttur,
nemanda í myndlistardeild Listahá-
skóla íslands, sem fær þann heiður
að þessu sinni.
Fyrir utan 335 þúsund skráning-
ar og götukort í skránni má t.d.
finna lista yfir algengustu nöfn ís-
lendinga og tilurð þeirra. Nýjungar
eru m.a. ýmsar tölulegar upplýs-
ingar um ísland; flatarmál, helstu
stöðuvötn og fossa. Einnig má finna
ýmsar töflur um mál og vog, heiti
hjúskaparafmæla, upplýsingar um
hvernig á að reikna út bensíneyðslu
bíla og orðalista yfir SMS-skamm-
stafanir.
Skráin liggur frammi í öllum
verslunun Símans, á afgreiðslustöð-
um Flytjanda og öllum bensínstöðv-
um Essó, Olís og Shell til 1. júlí
næstkomandi endurgj aldslaust. Inn-
bundin fæst hún eingöngu í verslun-
um Símans og stærstu bensínstöðv-
um. Ekki var gefið upp um kostnað
við gerð Símaskrárinnar. ■
Ótrúlega flottar maður
a morgun
Nýjung fyrir alla.
Café Presto
Hlíðarsmóra 15, Kóp
'• ' V' -
I . 'l 1 ■’
M'