blaðið - 26.05.2005, Page 8
Stór heimilistæki
Þvottav. 1000 sn. 39.900
Þurrkarar 24.900
Kæliskápar 24.900
Frystiskápar 29.900
Eldavélar 29.900
Ofnar 19.900
Viftur 6.990
:l^WkÉ3tjCÍ : ■
Eldavél 58,5 cm
AEG
Uppþvottavél A/A
Óll sýningareldhús
á útsölu
Ryksuga 1800W
VERÐDÆMI
Smátæki
Kaffivélar 990
Brauðristar 990
Handþeytarar 990
Hraðsuðukönnur 990
Gufustraujárn 990
Heilsugrill 3.990
Samlokugrill 1.490
Djúpst.pottar 3.990
Hrísgrjónapottar 2.490
Blandarar 1.990
Eggjasjóðarar 1.490
Matvinnslutæki 990
Töfrasprotar 1.490
Dósaopnarar rafm. 990
Safapressur 990
Eldhúsvogir 990
Nuddtæki 990
Naglasnyrtitæki 990
Hárklippur 499
Hárblásarar* 299
Baðvogir 990
Hitablásarar 1.490
Hnökrarakvélar 799
Handryksugur 1.490
Magn 10-200 stk af
ofangreindum vörum.
Alhliða safapressa
Hárblásari og krullubursti
Handþeytari með skál
Borðvifta 23 cm
*Aðeins 1 stk. á mann
neyten
fimmtudagur, 26. maí 2005 ! blaðið
r
Flutningar geta verið þreytandi, enda
mikil vinna sem í þeim felst. Kostn-
aður við flutninga getur einnig verið
mikill því það þarf að útvega kassa,
einangrun og límband, auk þess sem
flestum reynist nauðsynlegt að fá fag-
menn, a.m.k. til að koma búslóðinni
á milli gamla húsnæðisins og hins
nýja.
Litlir kassar á iækjarbakka...
Margvísleg þjónusta stendur fólki til
boða þegar kemur að flutningum. Ef
flutt er á milli landa má fá fagmenn
til að ganga frá öllu um borð í bíla
og skip. Einnig má fá fagmenn til að
pakka heilu búslóðunum. Margir þeir
sem standa í flutningum leita á náð-
ir matvöruverslana þegar kemur að
kössum og margir segja að kassamir
frá ÁTVR séu hinir ákjósanlegustu
fyrir bækur, enda burðargeta þeirra
mikil. Oft vill það brenna við að versl-
anir hendi kössum jafnóðum og fyr-
ir þá sem koma að tómum kofanum
má benda á Kassagerðina sem hefur
kassa í úrvali. Helstu kassar í flutn-
inga eru þar seldir fyrir 5.700 krón-
ur, 25 stykki í pakka. Fyrirtækið Spír-
all býður einnig upp á kassa í ýmsum
stærðum sem fá má í stykkjatali ffá
238 krónum og upp í 515 krónur.
Pakka fyrir fólk
Kassa, plöst og bylgjupappa má einn-
ig fá hjá flutningaþjónustunni Flutn-
ingur.is. Þar er boðið upp á alla þjón-
ustu sem viðvíkur flutningum. Hægt
er að fá tvo til fjóra menn í flutning-
inn, eftir því hvað fólki liggur mikið
á, og ráða þeir yfir hárri vörulyftu
sem getur auðveldað flutning stórra
hluta úr fjölbýlishúsum. Hjá Flutn-
ingi.is er einnig boðið upp á allsherj-
arflutningaþjónustu sem felur í sér
að menn ffá fyrirtækinu koma inn
á heimili og pakka öllu í kassa,allt
ffá niðursuðudósum til nærfatnaðar.
Kristján Kristjánsson, eigandi fyrir-
tækisins, segir að það færist í vöxt
að fólk nýti sér þessa þjónustu, sem
kostar um 3.500 krónur á tímann á
mann. Hann segir að það taki um
þijá daga að pakka saman og flytja
úr meðalstórri þriggja herbergja íbúð
svo það er kannski ekki á allra færi
að nýta sér þessa þjónustu.
- á meðan þú kemur þér fyrir á nýja staðnum
í fasteignasprengjunni sem staðið
hefur undanfarin misseri hafa marg-
ar íbúðir og hús skipt um eigendur.
Mikið rask hlýst af flutningum og
sumir undirbúa sig í margar vikur,
tína smám saman í kassa og ef færi
gefst, flytja smám saman. Að mörgu
þarf að huga því það þarf ekki einung-
is að koma allri búslóðinni á nýjan
stað. Einnig þarf að ganga frá gamla
húsnæðinu í viðunandi ásigkomulagi.
Eitt af þjóðareinkennum íslendinga
er að þeir gera allt sjálfir. Þó hefur
það færst í vöxt á undanfómum árum
að fólk kaupi sér ýmiss konar flutn-
ingaþjónustu, svo sem eins og þrif og
pökkim.
Guðmundur Vignir Hauksson hef-
ur lengi starfað við þrif en hann rek-
ur fyrirtækið „Þrif og þvottur". Hann
býður upp á allsheijarþrif við flutn-
inga. Guðmundur segir að við slík
tækifæri sé allt húsnæðið þrifið, hátt
og lágt. „Það er bara allt tekið, veggir,
loft, gólf og skápar, og ef fólk vill eru
skápar einnig þrifnir að innan ásamt
bakarofni og öllu.“ Guðmundur reikn-
ar verðið út frá fermetrafjölda og tek-
ur 350 krónur á fermetrann, án virð-
isaukaskatts, ef íbúðin er tóm. Vilji
fólk einnig fá þrif inni í skápa kostar
það 175 krónur aukalega. Guðmund-
ur Vignir, sem hefur starfað við þrif
írá árinu 1970, segir að það færist í
vöxt að fólk nýti sér þessa þjónustu
en mismunandi sé hversu mikið fólk
vill að þrifið sé. Hann segir að fjölda-
mörg fyrirtæki á þessu sviði hafi
bæst í samkeppnina á síðustu misser-
um, enda hefur að undanfórnu verið
mikið um flutninga.
Ókeypis internet um allan bæ
OPIÐ ALLA HELGINA
Opið virka daga 9-18, laugardag 10-18
og sunnudag 13-17
Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavík Sími 5880500
Þeim flölgar sífellt stöðunum sem
bjóða viðskiptavinum sínum upp á
þráðlausa háhraða nettengingu. I net-
tengingunni felst öll algeng netþjón-
usta en reynt er að koma í veg fyrir
misnotkun á erlendu niðurhali. Þeir
staðir sem bjóða þjónustuna eru víða
um bæinn og eru margir greinilega
merktir. Þar má nálgast leiðbeining-
ar um hvernig þráðlaus nettenging
er notuð.
Bæði OgVodafone og Síminn bjóða
þessa þráðlausu netþjónustu svo
allir ættu að komast í hana, t.d. á
kaffihúsum. Þjónustan er gjaldfrjáls
hjá báðum fyrirtækjunum en sjálfir
þurfa notendur að útvega fartölvu
með þráðlausu netkorti. Öryggiskröf-
ur eru eins og best verður á kosið svo
notendur ættu ekki að lenda í nein-
um vandræðum við notkunina. Þó
ber alltaf að fara varlega og er best
fyrir notendur að verða sér úti um
veiruvarnarforrit.
Nánari upplýsingar um þessi þráð-
lausu net má finna á heimasíðum Og-
Vodafone og Símans.