blaðið - 26.05.2005, Síða 11
blaðið 1 fimmtudagur, 26. maí 2005
*
Bruggarar mótmæla
banni við bjórdrykkju
á vinnutíma
Starfsmenn
d a n s k a
bruggfyrir-
tækisins
Harboe í
Skælsk0r
á Sjálandi
lögðu nið-
ur störf
og héldu
heim til
sín í mót-
mælaskyni
sl. mánu-
dag eftir
að stjórn-
endurbrugg-
verksmiðjunn-
ar bönnuðu þeim að drekkabjór
í vinnunni. Starfsmennimir mættu
aitur til verksmiðjunnar seinna um
daginn ásamt verkalýðsleiðtogum til
að semja um skilyrði bjórbannsins.
Það er ekki langt síðan bjórdrykkja
starfsmanna í bruggverksmiðjum
var algerlega fijáls en mörg stærstu
fyrirtækin bjóða starfsmönnum sín-
um nú að bragða á framleiðslunni
innan vissra marka - t.d. mega marg-
ir starfsmenn Carlsberg-verksmiðj-
unnar í Danmörku drekka þrjá bjóra
yfir daginn.
Biðst afsökunar
á dvergafrétt
Breskur nemandi hefur beðið net-
veija afsökunar á að hafa skáldað
upp frétt, sagt hana vera frá BBC
World og sett á netsíðu sem hann
hannaði á þann hátt að taka mátti
hana sem netsíðu frá BBC. Fréttinni
var síðan dreift víðs vegar um heim
og vakti hún athygli. í henni var sagt
að bardagi hefði brotist út milli ljóns
og dverga í Kambódíu. Dvergamir
voru 42, sem er að sögn öll herdeild
kambódíska dvergahersins þar í
landi. I fréttinni var sagt að 28 dverg-
ar hefðu fallið og hinir 14 særst alvar-
lega í átökum við ljónið.
Nemandinn, sem vill ekki segja til
nafhs, segist hafa skáldað fréttina
eftir deilur við vin sinn sem hélt því
fram að 42 vopnlausir dvergar gætu
sigrað ljón í bardaga. „Ég reyndi að
sannfæra hann um að ljónið myndi
örugglega vinna en fékk hugmynd-
ina um að búa til ffétt og sannfæra
hann þannig.“
Alþjóða heilbrigðisstofnunin:
Nýjar reglur um
útbreiðslu sjúkdóma
Alþjóða heilbrigðisþingið, sem staðið
hefur í Genf undanfama daga, hefur
samþykkt nýja reglugerð á heilbrigð-
issviði sem hefur það að markmiði
að hindra alþjóðlega útbreiðslu smit-
sjúkdóma og sjúkdóma af völdum
eitur- og geislavirkra efna án þess að
valda ónauðsynlegri röskun á umferð
manna um heiminn og í viðskiptum.
Þörf á nýjum alþjóðlegum reglum
og samstilltum viðbrögðum á heims-
vísu varð ljós í kjölfar bráðalungna-
bólgunnar (HABL) 2003 og fugla
inflúensunnar sem hófst í Asíu 2004.
Nýju reglumar taka til allra sótta
sem breiðst geta út og ógnað þjóðum
heims.
Endurskoðun alþjóða heilbrigðis-
reglugerðarinnar hefur staðið yfir
áram saman. Samningaviðræðurfull-
trúa ríkjanna 192, sem eiga aðild að
WHO, hafa staðið yfir um nýju reglu-
gerðina frá því í nóvember 2004. Full-
trúar Islands í þeim samningum vom
Haraldur Briem sóttvarnalæknir og
Sólveig Guðmundsdóttir, yfirlögffæð-
ingur í heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu.
Af fundi Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar (WHO)
AEG ÞVOTTADAGAR
FULLKOMIN LÖGUN OG LEIKNI
NYJA ISLENSKA ÞVOTTAVELIN
OG ÞURRKARINN FRA
EFTIRSÓTTASTA PAR LANDSINS
Auglýsingadeild 510-3744
I ri Fr.TT.T-i
AEG þvottavél
með íslensku stjórnborði
LAVAMAT 76820 ÍSLAND
AEG barkalaus þurrkari
með íslensku stjórnborði
LAVATHERM 57820 ÍSLAND
• Taumagn: 6 kg • Vinduhraði 1600/1200/1000/600 snúningar á mín.
• Ljós sýnir hvar vélin er stödd í þvottakerfinu • Mjög hljóðlát og
sparneytin vél • Þvottahaefni: A+ • Þeytivinduafköst: A • Orkuflokkur: A
• 24 þvottakerfi ásamt sérstöku sparnaðarkerfi • Sérstakt
vindingarkerfi fyrir viðkvæman þvott og ull • Hægt er að stilla
gangsetningu fram í tímann • Aqua-Control: Öryggiskerfi gegn leka
• 3ja ára ábyrgð
• Taumagn: 6 kg • Mjög lágvær
• Rakaskynjari: 9 mismunandi þurrkstig
• Klukkurofi: 30 mínútur • 2 hitastig
• Krumpuvörn: Veltir tromlu af og til í 30 mín. eftir þurrkun
• Hægt er að stilla gangsetningu fram í tímann
• Gaumljós fyrir vatnstank, lógsigti og þéttibúnað
• Stórt hurðarop - 33 sm
Kr. 90.000,-
Kr. 85.914,-
í TILEFNI AEG ÞVOTTADAGA BJÓÐUM VIÐ PARIÐ Á KR. 159.000,-
ítarleg notendahandbók á íslensku fylgir báðum tækjunum.
ISLENSKT
STJÓRNBORÐ
Nánari upplýsingar á
www.ormsson.is
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
_____rfik_____
5 • Akureyri Sími 461 5000
Þvottavélar, þurrkarar
og uppþvottavélar
á tilboðsverði!
ORMSSON
LÁGMÚLA • SMÁRALIND
luglýsingastofa Guðrúni