blaðið - 26.05.2005, Blaðsíða 14
fimmtudagur, 26. maí 2005 I blaðið
blaðiö
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri:
Karl Garðarsson. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn og auglýsingar:
Bæjariind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510-3700. Símbréf á fréttadeild: 510-
3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510-3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettin@vbl.is,
auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
Hverjir eru hæfir kjörforeldrar?
Fjölmiðlar hafa á síðustu dögum fjallað um mál Lilju Sæmunds-
dóttur kennara, sem ekki fær leyfi dómsmálaráðuneytisins til
að ættleiða barn frá Kína. DV fjallar um mál þetta í leiðara sín-
um síðastliðinn þriðjudag undir fyrirsögninni „Gefumst ekki
upp fyrir kerfisköllum”. Eins og svo oft áður í DV er leiðarinn
lítið annað en upphrópanir og sjálfshól og því aðeins að litlu
leyti um efni málsins.
Blaðið hefur ekki farið sérstaklega ofan í saumana á máli
Lilju Sæmundsdóttur, sem nú er rekið fyrir dómstólum af ein-
hverjum færasta mannréttindalögfræðingi landsins, Ragnari
Aðalsteinssyni hæstaréttarlögmanni.
I ljósi frétta af máli Lilju reyndi Blaðið að átta sig á því hveij-
ir væru hæfir uppalendur kjörbarna hér á landi, m.ö.o. hveijir
það eru sem mega ættleiða börn. Um ættleiðingu gilda fyrst og
fremst ættleiðingarlög nr. 130/1999 og reglugerð nr. 238/2005
um ættleiðingu, sem dómsmálaráðherra setti með heimild í
42. gr. ættleiðingarlaganna.
Samkvæmt ættleiðingarlögunum er meginreglan sú að ætt-
leiðandi verður að hafa náð 25 ára aldri þegar leyfi til ætt-
leiðingar er veitt. Hvergi er í lögunum að fmna ákvæði um
hámarksaldur ættleiðenda. Þar er aðeins að finna almenn
skilyrði í þá veru að leyfi til ættleiðinga verði ekki veitt nema
barnaverndarnefnd hafi áður komist að þeirri niðurstöðu að
það sé bæði ættleiðendum og kjörbarni fyrir bestu að leyfa ætt-
leiðingu. Dómsmálaráðuneytið virðist hins vegar hafa tekið
sér það vald að binda leyfi til ættleiðingar einnig við tiltekinn
hámarksaldur, sem samkvæmt ættleiðingarreglugerð ráðu-
neytisins er 45 ár. Kjörforeldri getur því almennt ekki verið
yngra en 25 ára og ekki eldra en 45 árarSú spurning hlýtur að
vakna hvað það er sem segir að sá senrer eldri en 45 ára geti
ekki skapað kjörbarni jafhgott atlæti og sá sem yngri er. Jafn-
framt má spyija hvaðan dómsmálaráðuneytinu kom heimild
til að takmarka aldurinn upp á við. Þá heimild er ekki að finna
í ættleiðingarlögunum og því er hér væntanlega um ólögmætt
skilyrði að ræða. Það er þó ekki bara aldurinn einn sem getur
gert fólk að óhæfum kjörforeldrum. Dómsmálaráðuneytið hef-
ur í ættleiðingarreglugerðinni ákveðið að það geti í sérstökum
reglum kveðið á um einhver heilsufarsskilyrði kjörforeldra um-
fram það sem ættleiðingarreglugerðin kveður á um. Vafasamt
verður að telja að dómsmálaráðuneytið hafi heimild til þess að
setja reglur um að einhveijir sjúkdómar geri fólk að óhæfum
kjörforeldrum. Má þá ekki allt eins setja lög og reglugerðir um
að fólk með tiltekna sjúkdóma megi ekki eignast börn? Hver
er munurinn á kjörforeldrum og kynforeldrum að þessu leyti
og hvernig horfa svona ákvæði t.d. við jafnréttisákvæði stjórn-
arskrárinnar?
Eins og þessi tvö dæmi sýna og sanna ríkir fullkomin óvissa
um hveijir geta talist hæfir kjörforeldrar. Mál Lilju Sæmunds-
dóttur kann að skýra réttarstöðu kjörforeldra eitthvað en auð-
vitað færi best á því að löggjafinn setti lög sem geymdu á dæm-
andi veg þau skilyrði sem setja má ættleiðingum. Með því væri
réttaröryggi kjörforeldra tryggt, í það minnsta betur tryggt en
nú er.
blaði
Átök í afmælisveisiunni
AÐEINS FYRSTA FLOKKS DEKK • FAGMENNSKA í FYRIRRÚMI
(unglingavinnunar) sem ber hitann
og þungann af því hreinsunarstarfi
sem á sér stað í Reykjavík á sumrin.
Borgarbúar hafa kvartað yfir því að
töluvert vanti á að borgin sé eins vel
hreinsuð á sumrin og áður var gert.
Gengið á græn svæði
Á hátíðarstundum tala borgarfulltrú-
ar R-listans um þéttingu byggðar en
raunin er sú að byggðin í borginni hef-
ur aldrei verið jafnstrjál og mun hún
dreifast enn frekar með nýrri byggð í
Norðlingaholti og hlíðum Úlfarsfells.
Á móti kemur að R-listinn leggur nú
mikla áherslu á blokkarbyggingar
sem víðast í grónum íbúðahverfum
borgarinnar. Með slíkri uppbyggingu
er vissulega verið að þétta byggð en
hún er víða í ósamræmi við eldri
byggð. Með slíkum óafturkræfum
skipulagsákvörðunum R-listans er
oft gengið á vinsæl útivistarsvæði í
mikilli andstöðu við vilja íbúa.
Málefni eða völd?
í ljósi alls þessa þarf það ekki að koma
á óvart að gremja og óánægja VG yf-
ir R-lista samstarfinu komi fram á
vettvangi umhverfismála. Ekki skal
þó fullyrt um hvort hér sé um deilu-
mál að ræða, sem menn láta steyta
á í samstarfinu, eða hvort málið sé
blásið upp til að tryggja VG sterkari
stöðu við samningaborðið vegna fram-
tíðar R-listáns. Það hafa nefnilega
verið fastirdiðir í aðdraganda slíkra
samningaviðræðna, eða meðan á
þeim stendur, að ný og gömul ágrein-
ingsmál skjóta upp kollinum meðal
allra þeirra flokka sem standa að R-
listanum, og ýmsir flokkshestar stíga
fram á sviðið til að lýsa yfir efasemd-
um um áframhaldandi samstarf. Sá
grunur vaknar að með slíkum uppá-
komum sé verið að setja þrýsting á
viðræðurnar, búa til skiptimynt sem
síðan er notuð við samningaborðið til
að krefjast fleiri sæta eða áhrifa fyrir
sinn flokk.
Tími til að breyta
Allir sjá að mikil valdþreyta hrjáir R-
listann og innan hans er djúpstæður
ágreiningur um málefni, skiptingu
embætta þg jafnvel fjölda sæta sem
hver flokkur hefur á sjálfum listan-
um. í þessari súpu er málefnunum
fyrst fórnað til að viðhalda einhverju
sýndarjafnvægi innan listans. Úr-
lausnum mikilvægra mála er slegið á
frest til að halda friðinn, eins og sam-
göngumál, skipulagsmál og nú síðast
raforkumál, eru klárt dæmi um.
Reykvíkingar og raunar lands-
menn allir þurfa á því að halda að
betur sé haldið á málum í höfuðborg-
inni. Reykjavík er enn gífurlega öflug
og skemmtileg borg en þegar litið er
yfir 11 ára valdatíma R-listans er
augljóst að hún hefur tapað forystu-
hlutverkinu á ýmsum sviðum. Pottur
er víða brotinn í umhverfismálum,
eins og rakið er hér að framan. Borg-
ina skortir forystu og framtíðarsýn
í skipulagsmálum, lóðaskortur er
viðvarandi og samgöngumálin eru
í ólestri. íbúafjölgun í Reykjavík er
nú undir landsmeðaltali á sama tíma
og nágrannasveitarfélögin slá hvert
metið af öðru á þvi sviði. Fjármál
Reykjavíkurborgar eru öll í ólestri og
nægir að minna á að hreinar skuld-
ir hennar, án lífeyrisskuldbindinga,
hafa vaxið úr fjórum milljörðum í 60
á valdatíma R-listans.
Reykvíkingar eiga betra skilið
og það er í þágu þeirra að sem fyrst
verði skipt um stjórn í borginni.
Nú í vikunni eru 11 ár liðin frá því
að R-listinn komst í meirihluta í borg-
arstjórn. Nú, eins og í fyrra, halda
aðstandendur afmælisbamsins upp
á þennan viðburð með því að rífast
heiftarlega á opinberum vettvangi
um stefnu og starfsaðferðir innan
meirihlutans. í fyrra var blásið tfl
veislu vegna tíu ára valdaafmælis R-
listans, sem átti að ná hámarki með
sameiginlegu málþingi. Ekki varð þó
af því vegna innbyrðis ágreinings. Nú
sýður upp úr vegna óánægju Vinstri
grænna með þátttöku Reykjavíkur-
borgar í uppbyggingu stóriðju og
hótana Alfreðs Þorsteinssonar, borg-
arfulltrúa og stjórnarformanns Orku-
veitunnar, um að í þeim efnum skipti
afstaða VG engu máli.
Enginn árangur í umhverfismál-
um
Þótt andstaða Vinstri grænna við
stóriðju sé að stórum hluta á misskiln-
ingi byggð þá hlaut að koma að því að
þeir sýndu tennurnar á þvf sviði sem
heita á að flokkurinn þeirra er stofn-
aður um; nefnilega umhverfisvernd.
Eftir því sem það verður augljósara
að R-listinn hefur ekki náð neinum
árangri í umhverfismálum hljóta
borgarbúar að spyrja sig að því hvaða
hlutverki Vinstri grænir þjóni í meiri-
hlutasamstarfinu.
Mörg axarsköft R-listans í um-
hverfismálum helgast af fúski og
flumbrugangi í skipulagsmálum, sem
borgarfulltrúar Samfylkingarinnar
hafa staðið fyrir og knúið í gegn með
offorsi. Hvað eftir annað hafa Vinstri
grænir látið slíkar ákvarðanir yfir sig
ganga, sem hafa orkað tvímælis eða
valdið miklum skaða á umhverfinu.
T.d. tóku þeir þátt í að höggva risa-
stórt skarð'.í Geldinganes og valda þar
með óbætanlegum umhverfisspjöllum
á nesinu og umhverfinu í kring. Þá er
ljóst að gengið var fram hjá umhverf-
isráði þegar Háskólanum í Reykjavík
var úthlutað lóð undir Öskjuhlíð. Af-
ar óeðlilegt var að umhverfisráð fengi
ekki að fjalla um málið áður en svæð-
inu var úthlutað undir byggingar og
bílastæði, enda var svæðið að stórum
hluta til skipulagt sem grænt svæði
og í næsta nágrenni við vinsæl úti-
vistarsvæði - Öskjuhlíð, Nauthólsvík
og göngustíginn með ströndinni. Um-
hverfisráð bókaði alvarlegar athuga-
semdir við að hafa ekki fengið að
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi.
fjalla um málið og það einsetti sér að
láta slíka handvömm ekki henda aft-
ur. Bókunin var samþykkt einróma
í ráðinu en formaður þess er Katrín
Jakobsdóttir, varaborgarfulltrúi VG.
Margt fleira má tína til varðandi
umhverfismálin og er gremja VG
varðandi þann málaflokk vel skilj-
anleg. Fækkun endurvinnslustöðva
í Reykjavík og styttri afgreiðslutími
er ekki til þess fallin að hvetja borgar-
búa til að not-
færa sér þjón-
ustu þeirra.
Hið sama má
segja um stór-
aukna gjald-
töku vegna
móttöku á
sorpi og hef-
ur það færst
. í aukana að
það sé losað á
víðavangi sem
hefur verið
nánast óþekkt
vandamál í
borginni hing-
að til. Á valda-
tíma R-hstans
hefur síðan verið dregið stórlega úr
starfsemi Vinnuskóla Reykjavíkur
R-listasam-
starfinu
þarf ekki
að koma á
óvart
FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK
DEKKJAHÓTEL
VIÐ GEYIMUM DEKKIN FYRiR PIG ALLT ÁRIÐ GEGN VÆGU GJALDI
GÚMMÍVINNUSTOFAN EHF.
RÉTTARHÁLSI 2 • 110 REYKJAVÍK • SÍMI 587 5588
WWW.GVS.IS / WWW.TILBODSDEKK.IS
L