blaðið - 26.05.2005, Side 16
fimmtudagur, 26. mai 2005 i blaðið
Vantar
þig hjól?
Þrátt fyrir að reiðhjól hafi lækkað
mjög mikið í verði á undanförnum
árum er alltaf gaman að gera góð
kaup. Ef þú ert að leita að reiðhjóli
fyrir lítinn pening má benda á
prýðilega heimasíðu HFR - www.
hfr.is - en þeir hýsa afar gjöfult
sölutorg. Þar ganga gömul og ný
hjól kaupum og
sölum, sem og
varahlutir af öll-
um stærðum
og gerðum.
Hlaupaskór
og heilræði
Það er mjög mikilvægt að vanda
valið þegar á að kaupa hlaupaskó
og hætt er við að byrjendur í fóta-
búnaðarkaupum sjái ekki skóinn fyr-
ir trjám, ef svo má að orði komast.
Aðspurðir segja hlauparar þó að
merkin skipti ekki öllu máli, enda
um gæðavöru að ræða í öllumtilvik-
um - það skiptir öllu að finna skó
sem hentar hverjum og einum. Mik-
munur er eftir tegundum á sniði
og lögun og leitin snýst í raun
um að finna skó sem situr
þægilega á fæti. Ef áhuginn
kviknar þegar rétti skórinn
er fundinn mæla álitsmenn
Blaðsins með því að kíkja
í hlaupagreiningu, en hana
má nálgast til dæmis í Útilff
og Stoðtækni.
Ef lóan boðar vorið þá boðar skokk-
arinn sumarið. Einn stærsti skokk-
klúbbur landsins gerir út ffá lík-
amsræktarmiðstöðinni Laugum og
engur undir nafninu Laugaskokk.
samtali við Blaðið segir Pétur Ingi
Frantzson að hópurinn telji um 70
meðlimi Lauga, en um 30 manns
mæta á hverja æfingu. Æfingar eru
alla daga og æfingatímar eru gefnir
upp á www.laugaskokk.is. Ekki er
erfitt að finna Laugaskokkara sem
hittast á æfingatímum í anddyri lík-
amsræktarstöðvarinnar. Hópurinn er
mjög fjölbreyttur en þar hlaupa hlið
við hlið algerir byijendur og nokkrir
af bestu maraþonhlaupurum lands-
ins. Einnig er boðið upp á töluvert
úrval af mismunandi hlaupaleiðum
sem eru hugsaðar fyrir mismunandi
reynslu og hlaupagetu. Pétur segist
sjá að um þetta leyti sé til dæmis
fólk, sem hyggur að undirbúningi fyr-
ir Reykjavíkurmaraþon, að bætast í
hópinn. Laugaskokkarar hyggja einn-
ig á helgarferð til Mývatns í lok júní,
og má ljóst vera að það verður allt á
fullu hjá Laugaskokkurum í sumar.
Iðkendurfjallabruns ná
allt að 80 km hraða.
Beinbrot
Fjallabrun er nýjasta æðið meðal
Það er í raun með ólíkindum að
ímynda sér að einhverjum hafi dottið
í hug að hefja þá iðju sem nú nefnist
fjallahjólabrun. Þetta nýjasta sport
landsins, sem einhveijir tugir ung-
menna stunda um þessar mundir,
gengur út á að fara upp á hól eða fjall
á flallahjóli og bruna síðan niður eins
hratt og mögulegt er. Einn viðmælandi
Blaðsins orðaði það þannig að orsaka-
sambandið væri augljóst - því minna
vit - því hraðar þyrði hver og einn að
bruna. Hvort það sé satt skal ósagt lát-
ið en ljóst er að talsverðan kjark þarf
til að bruna af stað niður misbrattar,
ósléttar og óárennilegar brekkurnar. í
fjallabrunkeppni í fyrra náði sá sem
hraðast fór um og yfir 80 kílómetra
hraða, og því má ekki gleyma að ekki
er farið um slétta braut. Einn þeirra
sem stunda þetta fífldjarfa sport við-
urkenndi að meiðsl og jafnvel beinbrot
væru alls ekki óalgeng.
Allt að 400.000 króna hjól
Það hefur lengi verið sagt að því
eldri sem drengurinn eða karlmað-
urinn verði - því dýrara verði dótið
hans og það á ekki illa við í þessu sam-
bandi. Dæmi eru um að iðkendur hafi
fjárfest í hjólum fyrir allt að 400.000
krónum, en hægt er að fá gott fjalla-
brunhjól fyrir um 200.000 kr. Hjólið
er þó ekki nema hluti af búnaðinum
því iðkendur líta út svipað og þeir sem
stunda mótorkross, þ.e. hver og einn
er með sérstaka vettlinga, alls konar
brynjur og hjól, sem er miklu líkari
mótorhjólahjálmi en hefðbundnum
reiðhjólahjálmi.
í fyrra keppti á annan tug
kappa í fjallabrunskeppni á
Sauðárkróki.
Góð aðstaða við Bláfjöll
Erlendis hefur þessi íþrótt notið
vaxandi vinsælda, bæði meðal iðk-
enda og áhorfenda. í Þýskalandi eru
kláfar notaðir til að komast upp á hin
ýmsu fjöll og síðan er brunað niður.
Hér á landi eru slík farartæki ekki
til staðar en iðkendur horfa mjög til
t.d. Bláfjalla til þessarar iðju, enda
hægt að nýta skíðalyftur til að flytja
reiðhjól og knapa upp að sumarlagi,
á nákvæmlega sama hátt og skíði og
skíðamann yfir veturinn.
Nokkur mót í þessari nýju jað-
aríþrótt eru á döfinni í sumar, það
fyrsta í Bláfjöllum 19. júní næstkom-
andi.
«?lnagh
URVALIÐ
Hjólalistir í Nauthólsvík
Siglunes, miðstöð ÍTR í Nauthóls-
vík, og Hjólreiðafélag Reykjavíkur
(HFR), hafa tekið höndum saman
og bjóða upp á námskeið og æfingar
í alls kyns hjólalistum í sumar. Boð-
ið verður upp á fjallahjólanámskeið
fyrir unglinga á aldrinum 13-18 ára
unglinga þrisvar í viku fyrir þá sem
vilja þeysa um grundir og hlíð með
fríðu fóruneyti. Einnig ætla ÍTR og
HFR að standa fyrir þrautabraut fyr-
ir BMX- og Freestyle-hjól í Öskjuhlíð
í sumar, þar sem ungir ofurhugar
geta leikið listir sínar.
Námskeiðin eru tilvalin fyrir þau
ungmenni sem vilja ferskt loft,
hreyfingu og góðan félagsskap. í
kaupbæti ættu þau að læra ýmsar
kúnstir, en seint verður það talin
vond hugmynd að sýna sig svoh'tið
yfir sumartímann.