blaðið - 26.05.2005, Page 18
fimmtudagur, 26. maí 2005 i blaðið
Sælgæti
á sumrin
halldora@vbl.is
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er mikil
salatkona, sérstaklega yfir sumartím-
ann, en gott salat er að hennar mati
eitthvað sem ekki má missa sín á
sumrin. Ingibjörg telur fjölbreytni í
matargerð mikilvæga og býr því jafn-
an til salöt úrþví sem hendi er næst.
„Ég nota oft bara það sem til er en
passa upp á að hafa salötin breytileg
dag frá degi. Fjölbreytnin auðgar!
Þetta salat er gott og kjammikið en
ég bjó það til fyrir strákinn minn sem
var í próflestri fyrir stúdentspróf og
veitti því ekki af hollu fóðri.“
Poki af blönduðum
rucola-salatblöðum
1 lárpera
slatti af rækjum
3 harðsoðin egg
rauðlaukur
rauð paprika
brokkolí
svolítið af kóríanderlaufum
Sósa:
1 dós af 10% sýrðum rjóma
1/2 engiferrót, söxuð smátt
1 hvítlauksrif
safi úr 1/2-1 sítrónu
salt og pipar úr piparkvörn
Þessi sósa er góð með öllu, t.d. steiktum
fiskbollum eða grilluðu kjöti.
Hollara salt
mun betra í matargerðina
Ferskir ávextir og grænmeti
besta nartið í sólinni
Margir láta sólargeislana leika við
andlitið á sumrin með ferskan kokkt-
eil við hönd í garðinum á blíðviðris-
V . degi en það þykir lýsandi stemmning
yfir dekurstund þegar sólin skín.
Ferskur drykkur í hitanum er góður
en ekki er verra
að vera með körfu
af svalandi
ávöxtum. Ávextir,
sem og grænmeti,
er okkur mjög hollt
og öll ættum við
að gera meira að
því að borða slíka
fæðu milli mála í
stað súkkulaðikex
eða annars sem
ekki gerir okkur
eins gott. Þegar
hlýtt er í veðri og
bjart yfir öllu er
ekkert betra en
vínber, jarðar-
ber, melónur
eða fleira
sem er sval-
andi og gott.
Hættum í
sætindunum
og temjum
okkur hollan
og góðan bita á
milli mála. Við
erum fljót að kom-
ast upp á bragðið
og segja skilið við
óþverrann. Þar fyr-
Blaðið kynnir:
ir utan er grænmeti og ávextir algjört
augnayndi og í fallegri skál er þetta
hin fínasta skreyting, auk þess sem
afar fallegt er að bera þetta á borð
þegar gesti ber að garði.
Salt er mikið notað í matargerð í heim-
inum en margir nota saltið til þess að
gera góðan mat betri. Þar fyrir utan
er nóg um nautnaseggi á hveiju strái
sem varla láta sér bita til munns án
þessaðsaltsénot-
að. Dæmi eru til
um að fólk setji
salt á pítsur,
brauð og salöt.
Sú vitneskja
liggur fyrir að
salt er óhollt
og það er ekki
ráðlagt að neyta
þess í miklu
magni, þó svo
að stundum sé
það ráðlagt, t.d.
þegar fólk er í
miklum hita.
Fyrir þá sem
ekki geta ver-
ið án þess að
salta allan mat gæti verið sniðugt að
skipta úr gamla matarsaltinu yfir í
þessi náttúrulegri. Hægt er að fá salt-
tegundir sem eru náttúrulega hreins-
aðar en flestir bestu veitingastaðimir
hafa tekið til við að nota
þær tegundir. Þær
eru betri og hollari
þó svo að salt sé auð-
vitað alltaf salt.
Dæmi um „hollt"
salt eru t.d. Herba-
mare og Maldon, en
það eru sjávarsölt og
vænlegri kostur til
matargerðar hvers
konar. Herbamare
er fínt sj ávarsalt, bú-
ið til úr jurtum, en
Maldon er svokallað
sætsalt sem þykir
afar skemmtilegt í
matvinnslu.
Nv sendinq af Mitre fótboltaskóm!
Mitre Friction
Takka- og
gervigrasskór
Barnastærðir
f rá 28 - 38
KR. 2.990
Fullorðinsstærðir
frá 39 - 46
KR. 4.490.
Jói útherji
knattspyrnuverslun **
Ármúla36 Sími 588 1560 www.joiutherji.is
IMorandé
Sauvignon Blanc
Morandé - Curico Valley - Chile
Sérstaða þessa nýja-heims víns,
úr Sauvignon-þrúgum, felst í því
að það er í senn ferskt og þrosk-
að. í fyrstu er bragð þess rís-
andi með áberandi ávaxtakeim.
Bragðið verður síðan suðrænt og
seiðandi. í lokin læðist fram gott
rjómabragð og fyrir vikið hent-
ar vínið vel með feitum sósum.
Vínið hentar mjög vel með öllum
fisk- og sjávarréttum, auk þess að
henta prýðilega með pasta. Þetta
er skemmtilegt sumarvín og kjör-
ið eitt og sér.
Morandé
Syrah
Morandé - Maipo Valley - Chile
Syrah-berin eru þekkt fyrir kraft-
mikið bragð og þetta vín stendur
svo sannarlega undir því. Vínið
er dökkt og mikilfenglegt. Það
hefur kraftmikið hindbeijabragð,
ákveðna myntukennda sætu og í
lokin hefur skemmtilegt lakkrís-
bragð vinninginn. Vínið er veru-
lega kryddað og gott jafnvægi
er á milli áfengismagns og sýru
vínsins. Gott er að umhella vín-
inu nokkuð ákveðið til að jafna
barkasýruna. Þetta er kjötvín
af bestu gerð og hentar vel með
nautasteik og villibráð. Gaman er
að prófa osta með örlitlu hunangi
með þessu víni.
m
,
VIFILFELL
-I