blaðið - 26.05.2005, Page 19
blaðið I fimmtudagur, 26. maí 2005
íslendingar framarlega
iheilsueflingu
Gylfi Einarsson telur íslendinga með hraustari þjóðum
halldora@vbl.is
Það að vera við góða heilsu felur í
sér líkamlegt hreysti og gott líkams-
ástand yfir höfuð, þó svo að þar sé
ekki átt við lóga fituprósentu heldur
heilbrigt ásigkomulag. Heilbrigði og
hollusta er lykillinn að góðri heilsu
en þar spila mataræði og hreyfing
stóran sess.
Það er óhætt að segja að Gylfi
Einarsson fótboltamaður sé við
hestaheilsu en hann starfar sem at-
vinnumaður hjá enska knattspyrnu-
liðinu Leeds og þarf því að halda að-
alverkfæri sínu - líkamanum - í góðu
lagi. Það er Gylfa kappsmál að huga
að mataræði og reyna eftir fremsta
megni að hafa hollustuna í fyrirúmi,
en eins og segir í gamalli klisju ná
íþróttamenn ekki settum árangri
hugsi þeir ekki um líkamann.
„Fyrir mig persónulega skiptir
máli að huga að mataræði.
Eg finn t.d. mun á mér ef
ég borða eitthvað óhollt,
mér líður ekki eins vel og
ég hef ekki sama kraft í
æfingum og leikjum. Eg
reyni því að temja mér
frekar hollt mataræði.
Hvað hreyfingu varðar þá
geri ég eitthvað nánast
á hverjum einasta degi.
Þetta er náttúrlega vinn-
an mín og því ekkert sem
ég stjórna í rauninni,"
segir Gylfi en hann segir
hreyfingu eins mikilvæga
fyrir andlega líðan og útrás. „Ef ég er
meiddur og get ekki æft í einhvern
tíma get ég orðið mjög skapvondur,
ég finn alveg fyrir því. Maður verður
hálfómögulegur andlega þegar maður
fær ekki sína líkamlegu útrás.“
Gylfi segir mismunandi hversu
í viku oft hann æfir, það sé mjög
breytilegt eftir því hvort margir leik-
ir séu í gangi. „í Englandi er spilað
mjög þétt, það er mikið af leikjum og
stundum eru tveir leikir í viku. Þá er
í rauninni ekkert æft rosalega stíft,
bara teknar léttar æfingar. Annars
eru þetta svona 5-6 skipti í viku,“
segir Gylfi, en hann telur kröfurnar
um heilbrigði leikmanna ekkert allt-
of miklar. „Það eru engar rosalegar
reglur lagðar fyrir okkur um hvað við
megum borða og hvað ekki. Það er
samt mötuneyti á æfingasvæðinu
og þar fáum við alltaf hollan mat í
hádeginu þannig að við erum auð-
vitað frekar hollir svona í heild-
ina. Við erum reyndar allir fitu-
mældir, maður er klipinn allur út
og suður og svo fáum við áætlun
hver fyrir sig. Þetta er svona ágæt-
is aðhald má segja.“
:þjc
: Isl
Gylfi hefur auk íslands verið
búsettur f Noregi og Bretlandi en
að hans mati erum við íslending-
ar framarlega í allri heilsueflingu
miðað við þessar þjóðir. Hann
segist halda að íslendingar lifi yf-
irhöfuð heilbrigðu líferni og hugi
að heilsunni en þar eigi samt hé-
gómi óneitanlega sinn sess. „Við
erum upp til hópa uppteknari af
útlitinu en margar aðrar þjóðir,
t.d. Bretar. Það er mik-
""Tl ill munur á að vera
hérna en í Bretlandi.
Fólkið þar hugsar mun
minna um þessa hluti.
Okkur er umhugað að
líta vel út og erum bet-
ur á okkur komin upp
til hópa. Maður tekur
líka rosalega eftir því
hvað íslendingar eru
mikið að reyna að vera
flottastir þegar maður
kemur hingað. Það er
auðvitað ekkert nema
gott mál - bara mjög
jákvætt. Svo er auðvitað hægt að
ganga of langt líka. Ef fólk er farið
að stinga puttanum upp í kok til
þess að grennast þá er það kom-
ið á hálan ís - og spurning hvort
ekki sé betra að vera frekar vel
í holdum. Svona í heildina lifum
við frekar heilbrigðu lífi
að mínu mati, við erum
hraust þjóð.“
| v.........1
Við erum
reyndar
fitumældir
en þá er
maður klip-
inn allur út
og suður.
Nauðsynlegt að gera
sér dagamun
Gylfi tekur fram að hver
og einn þurfi að finna sína
leið í þessu sem öðru og
það sé erfitt að alhæfa um
það hversu mikla æfingu við þurfum.
„Við erum misjöfh eins og við erum
Ekki hægt
að setja
bann á allt.
mörg og einum getur nægt hálftíma
göngutúr á dag en einhver
annar þarf meiri tíma. Svo
er auðvitað mikill munur
á því hvort þú ert að reyna
að halda þér eins og þú ert
eða hvort þú ætlar þér að
sjá ákveðinn árangur. Ef
við stefnum að einhverju
þurfum við að vera þolin-
móð og ekki ætla okkur
of mikið í byrjun," segir knattspyrnu-
maðurinn og bætir því við að árang-
ur náist þó ekki með hreyfingu ein-
göngu. Þar hafi mataræði mikil áhrif
og að viðkomandi þurfi að vera agað-
ur. Aðspurður segist Gylfi þó taka
hlutina með stóískri ró og passi sig
á að lifa lífiinu. .fyuðvitað þarf mað-
ur að leyfa sér ýmislegt, það er ekki
hægt að setja bann á allt. Fólk verður
að geta fengið sér eitthvað óhollt endr-
um og eins, auk þess sem mikilvægt
er að fara stundum út á lífið og lyfta
sér upp.“
Mikilvæg atriði í tengslum við blóðgjöf:
Vera heill heilsu, úthvíldur og án lyfja.
Hafa borðað og drukkið vel.
Eftir blóðgjöfina er öllum ráðlagt að jafna sig og fá sér hressingu
á kaffistofunni.
Sjálf blóðgjöfin tekur 5-8 mínútur en heimsóknin í heild tekur um
það bil 30-40 mínútur.
Eftir blóðgjöf þarf að hlífa handlegg og drekka vel næstu 5-6
klukkustundirnar.
Ekki er ráðlagt að fara í líkamsrækt eða sund þann dag sem gefið
er blóð.
Konur mega gefa blóð á fjögurra mánaða fresti.
Karlar mega gefa blóð á þriggja mánaða fresti.
Blóðgjöf
Þörf fyrir
70 manns á dag
Stofnað var til blóðbankastarfsemi
á Landspítalanum í sérstakri bygg-
ingu í nóvember 1953. Síðan þá hef-
ur starfsemin blómstrað og státar
Blóðbankinn núna af bestu kaffistofu
landsins og e.t.v. vinalegasta starfs-
fólki sem fyrirfinnst. Bankinn hefur
þörf á 70 blóðgjöfum á dag, sem sam-
svarar rúmum 30 lítrum blóðs. Þetta
tekst með samvinnu starfsfólksins og
fórnfúsum blóðgjöfum en þó er alltaf
verið að leita að nýjum gjöfum. Til
að geta gefið blóð í fyrsta sinn þarf
einstaklingur að vera yfir 50 kg, full-
frískur, lyfjalaus og á aldrinum 18-
60 ára. Ekki er tekið blóð við fyrstu
komu heldur einungis blóðsýni sem
er rannsakað með tilliti til gæða og
sjúkdóma. Farið er yfir heilsufars-
sögu, mældur blóðþrýstingur og púls.
Ef starfsmenn Blóðbankans hafa
ekki samband í um það bil 14 daga
eftir það þá má fara að gefa blóð.
Komið til gjafar
Þegar komið er til gjafar þarf að
íramvísa persónuskilríkjum og fylla
út heilsufarsskýrslu. Hún er fyllt út
eftir bestu vitund og staðfest með
undirskrift. Heilsufarsskýrslan er
mikilvægur liður í öryggisneti Blóð-
bankans til að tryggja bæði öryggi
blóðgjafa og blóðþega. Farið er með
allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Eftir að farið er yfir skýrsluna með
hjúkrunarfræðingi er blóðþrýsting-
ur og púls mældur áður en lagst er
á bekkina fyrir blóðgjöf. Tæpum tíu
mínútum og hálfum lítra af blóði síð-
ar er blóðgjöfinni lokið. Þá er manni
boðið á kaffistofuna frægu þar sem
boðið er upp á hressingar af öllu tagi
og meira að segja súpu í hádeginu.
Futurebiotics
NÆTURBRENNSLA
Undraverður árangur
IRYMTOKí
OinARY SUPPLíMíHi
Fæst í apótekum.heilsubúðum
og matvöruverslunum
auglysingar@vbl.is
blaðiö=