blaðið - 02.06.2005, Side 2
fimmtudagur, 2. júní 2005 I blaðið
KB banki spáir
3,8% verðbólgu á árinu
Matvörustríðið lækkaði verðbólguna um rúmt prósent
Ámi Magnússon
félagsmálaráðherra.
Konur á flótta
tii íslands
Tekið verður á móti flóttafólki
frá Suður-Ameríku og lýðveld-
um íýrrum Júgóslavíu á árinu
2005 en ríkisstjómin samþykkti
þetta í fyrradag. Flóttamanna-
ráð hefur leitað til Flóttamanna-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna
(UNCHR) varðandi val á fólki og
leggur til að tekið verði á móti
konum og börnum úr verkefn-
inu „Women-at-risk“, sem snýst
um að hjálpa einstæðum mæðr-
um og einhleypum konum og
fjölskyldum þeirra til að setjast
að í nýju landi. íslensk stjórn-
völd, í samráði við Rauða kross
íslands, undirbúa komu og mót-
töku flóttamannanna og er mið-
að við að fólkið komi hingað til
lands í ágúst. í fyrra var ekki
tekið á móti flóttamönnum.
Úthlutun úr
Starfsmenntasjóði
Starfsmenntaráð Félagsmála-
ráðuneytisins hefur úthlutað
rúmlega 48 milljónum króna úr
Starfsmenntasjóði til 43 verk-
efna. Styrkirnir voru einkum
veittir til verkefna sem stuðla að
auknum tækifærum miðaldra
og eldra fólks til starfsmenntun-
ar og verkefna sem auðvelduðu
yfirfærslu þekkingar og reynslu
innan fyrirtækja.
Konur
gefi blóð
Og Vodafone hefur tekið hönd-
um saman með Blóðbankanum
um að auka sýnileika Blóðbank-
ans meðal fólks. í fyrra var lögð
áhersla á að Blóðbankinn þyrfti
70 blóðgjafa á dag til þess að
svara þeirri þörf sem væri fyrir
hendi. í ár verður lögð áhersla
á að auka hlut kvenna í hópi
reglulegra blóðgjafa en þrisvar
sinnum fleiri karlar en konur
gefa blóð.
Að mati Greiningardeildar KB banka
mun verðbólga á þessu ári verða 3,8%
og ná lágmarki í næsta mánuði, en
þá verður 12 mánaða verðbólga 2,4%.
Eftir það telur bankinn hins vegar
að aukin spenna á vinnumarkaði
og lækkandi gengi krónunnar muni
kynda undir verðbólgukatlinum með
tilheyrandi þrýstingi.
Þetta er talsverð lækkun frá síð-
ustu spá bankans og hljóta að teljast
góð tíðindi fyrir íslenskt efnahagslíf.
Alþýðusamband íslands (ASÍ) birti
sína hagspá í gær og þótt þar sé
ástandið málað ögn dekkri litum eru
niðurstöður ekki ósvipaðar. ASÍ gerir
þó ráð fyrir nokkru hærri verðbólgu,
að jafnaði um hundraðshluta hærri.
Raunar er það svo að verðbólga í
hefðbundnum skilningi þess orðs
- þ.e. almennar hækkanir á vöru og
þjónustu - hefur verið í lágmarki
hérlendis á síðustu 12 mánuðum og
er verðbólga á ársgrundvelli nánast
engin, ef húsnæði er ekki talið með.
Þennan árangur má þó að miklu leyti
rekja til hágengis krónunnar, sem
bankinn telur fremur frestun á óhjá-
kvæmilegum verðhækkunum en nið-
urkvaðningu þeirra.
Þá telur bankinn að atvinnuleysi
verði brátt svo lítið að það setji launa-
Verðmunur á einstaka vörum hjá
verslunum Samkaupa var mest rúm-
lega sexfaldur. Þetta er eitt af því
sem kemur fram í nýrri verðkönnun
sem Alþýðusamband íslands hefur
gert. Þar kemur fram að 1 kg af gul-
rótum í verslun Samkaupa á Seyðis-
firði kostaði 69 krónur þegar könnun-
in var gerð en í verslun Samkaupa
á Dalvík kostaði gulrótarkílóið 429
krónur. Mikill munur var einnig á
einu kg af appelsínum - aftur var
verðið lægst á Seyðisfirði, 99 krónur,
en hæst var það á Siglufirði, eða 239
krónur. Mjög víða var verðmunur en
þó aldrei meiri en í ofannefndum til-
fellum.
Að sögn Gunnlaugs Aðalbjarn-
arsonar, yfirmanns verslana Sam-
kaupa á Austurlandi, er stefna fyr-
irtækisins að vera með sama verð í
öllum verslunum. Hann telur að um
mistök sé að ræða, sem gætu átt rót
sína að rekja til mikillar hreyfingar
á grænmetismarkaðnum þessa dag-
ana. Einnig bendir hann á að daga-
munur á verðbreytingum gæti skýrt
skrið af stað þótt innflutningur á er-
lendu vinnuafli hamli eitthvað gegn
því.
Verðstríðið og verðbólgan
Athygli vekur að verðstríð á matvöru-
markaði fyrir skemmstu lækkaði
verðbólguna verulega. Innlend mat-
vara, án búvöru, hefur lækkað um
7,5% undanfarið ár, grænmetisverð
um 12% og búvara um 4%. Verðstríð-
ið leiddi því til lækkunar verðbólgu
um rúman hundraðshluta.
Að undanfórnu hefur innlent mat-
þetta. „Ég vænti þess að búið sé að
laga þetta nú þegar,“ sagði Gunnlaug-
ur að lokum.
vælaverð lækkað litlu minna en er-
lent matvælaverð, sem er nú um 11%
lægra en það var fyrir ári. Sú lækkun
á sér stað á sama tíma og önnur er-
lend vara hefur lækkað um 2% og ný-
ir bílar aðeins um 1% á umliðnu ári.
Þarna kann gengisstyrkingin að hafa
haft meiri áhrif en áður var gert ráð
fyrir en það er ekki þar með sagt að
sú lækkun sé varanleg því greiningar-
deild KB banka gerir ráð fyrir því í
spá sinni að matvælaverðið hækki á
nýjan leik síðari hluta ársins.
Mikill verðmunur er á grænmeti og ávöxt-
um milli einstaka versiana Samkaupa.
Magasin
tvöfaldar tap
Stórverslunin Magasin, sem er í
eigu Baugs Group, Straums Fjár-
festingarbanka og B2B Holding,
tvöfaldaði tap sitt milli ára en
þetta kom fram í gær. Tapið er
aðallega rakið til sölu keðjunnar
á þremur búðum hennar. Tapið
á síðasta rekstrarári nam um
3,3 milljörðum íslenskra króna
en 1,6 milljarði árið þar áður.
Gestamóttaka
á Hellisheiði
f gær opnaði Orkuveita Reykja-
víkur gestamóttöku í Skíðaskál-
anum í Hveradölum. Þar er að
finna margvíslegar upplýsingar
um fyrirhugaða Hellisheiðar-
virkjun, sem og áhugaverða
punkta um Hengilssvæðið. Af-
greiðslutími í Skíðaskálanum er
frá 9-17 virka daga og er aðgang-
ur ókeypis.
Hvítur kassi
á híótjöldum
Margir kvikmyndahúsagestir
hafa tekið eftir því undanfarið
að stór hluti myndanna hefur
verið lýstur upp. Líkist þetta
helst því að einhver hafi gleymt
að slökkva á skjávörpum sem
notaðir eru til þess að sýna aug-
lýsingar fyrir myndir og í hléi.
Þetta er þó ekki svo heldur eru
nýjar textavélar komnar í notk-
un sem notast við skjávarpana.
Þessi tækni auðveldar víst
vinnslu á myndunum, auk þess
sem fjármunir sparast þegar
ekki þarf að prenta íslenskan
texta sérstaklega á filmur.
Akureyri:
Stöðumælar
hætta
í fyrradag samþykkti bæjar-
stjórn Akureyrar að 26. ágúst
næstkomandi yrði öllum, sem
leggja í miðbæ Akureyrar, skylt
að hafa framrúðuklukku á mæla-
borðinu eða límda á framrúðuna
sem sýnir hvenær bílnum var
lagt í stæðið, eins og tíðkast
til dæmis í Danmörku. Öll bíla-
stæði bæjarins verða því gjald-
frjáls og stöðumælar verða lagð-
ir niður.
Verðbólguspá KB Banka m
Allt að sexfaldur verðmunur
á sömu vöru hjá Samkaupum
Kelp and Greens
Þaratöflur
m/grænu tei.
Flottari llnur, hár,
húö og neglur.
Inniheldur:
Kelp, Spírulína
Blue Green Algae
Chlorella
ct„tL.O
Slimming
Krómblanda.
Dregur úr hungur-
tilfinningu og
eykur brennslu
Inniheldur:
Garcina Camtiogia
HCA
Gymnema, Sylvestre
Chromium
Vega innlheldur ekki: Matarlím (gelatlna) né tilbúin aukefni, litarefni,
bragðefni, rotvamarefni, kom, hveiti, glúten, sykur, sterkju, salt ger
eöa mjólkurafurðir. * Fawt f næsta apóteki.
0Hei4sklrt O Léttskýjaö ^ Skýjað £ Alskýjað - / Rignlng, lítilsháttar W/ Rigning ’?’ Suld Snjókoma ^7 Slydda '*j Snjóél xjj
Skúr
Amsterdam
Barcefona
Berlin
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Maliorka
Montreai
New York
Oriando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublin
Glasgow
17
23
16
18
22
14
14
11
19
27
26
18
12
21
12
24
12
7
21
25
15
13
90
JP
Í0C
7° A
40
ý
<r
V
8C
io°V
40 ^ Amorgun
Veðurhorfur í dag ki: 12.00
Veðursíminn
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
I0a
m ;'V
8°