blaðið - 02.06.2005, Side 6

blaðið - 02.06.2005, Side 6
fimmtudagur, 2. júní 2005 I blaðið Helta vatnlð lækkar Jón í Byko seldi Verð á heitu vatni frá Orkuveitu Reykjavíkur var lækkað um 1,5% í gær. Alfreð Þorsteinsson, formaður stjórnar Orkuveitunnar, segir þetta vera gert til þess að standa við lof- orð sem gefið var síðast þegar verð á heitu vatni hækkaði. „Þessu var lofað þegar heita vatnið var hækkað eftir langt hlýindaskeið og nú er það þannig að síðastliðinn vetur var ansi kalt og meiri sala á heitu vatni en við reiknuðum með. Það má segja að lækkunin núna sé í raun 5% af því að ekki verður af fyrirhugaðri hækk- un upp á 3,5%,“ sagði Alfreð í samtali við Blaðið. Aðspurður segist hann ekki búast við því að verð á heitu vatni muni í framtíðinni ráðast af veðrinu. Orkuveitan hækkaði verð á heitu vatni á síðasta sumri og sagði það vera vegna þess að veður hafði verið óvenju hlýtt. Jón Helgi Guðmundsson í BYKO seldi forráðamönnum íslandsbanka hlutabréf í bankanum í gær. Bréfin voru að andvirði 3,2 milljarða króna. Þetta fullyrða heimildarmenn Blaðs- ins. Um er að ræða 240 milljónir hluta á genginu 13,3 eða 1,8% af heildarhlutabréfum bankans. Bjarni Ármannsson, forstjóri ís- landsbanka, sagði í samtali við Blað- ið að hópurinn liti á fjárfestingu í bankanum sem áhugaverðan fjárfest- ingarkost til lengri tíma. „Ekki eru flóknari ástæður fyrir kaupunum en þessar,“ sagði Bjarni. Jón Helgi Guðmundsson vildi ekk- ert gefa upp um málið þegar Blaðið hafði samþand við hann í gær. Aukin harka á vinnumark- aði fjölgar öryrkjum Öryrkjabandalag íslands hefur gengið til samstarfs við dr. Stefán Ólafsson um úttekt á högum öryrkja á íslandi. Ástæðan er að ÖBÍ er ósammála skýrslu sem Tryggvi Þór Herbertsson vann fyrir Heilbrigðis- ráðuneytið en hún var kynnt nú á dögunum. Að mati bandalagsins eru niðurstöðu þeirrar skýrslu of einsleit- ar og þar komi meðal annars fram að tekjur öryrkja verði að vera lágar til að tryggja að þeim fjölgi ekki frekar. Ennfremur að þar segi að hækkun örorkubóta á undanfómum árum, ásamt frjálslegri örorkumatsstaðh, sé ástæða fyrir fjölgun öryrkja. í samantekt sem ÖBI hefur sent frá sér, þar sem niðurstöður skýrslu Tryggva er mótmælt, segir m.a. „Þetta sjónarhom er of þröngt og loftkœling .900 án vsk. O?* ÍS-hÚSÍð 566 6000 felur í sér að kjör öryrkja megi helst aldrei nálgast lægstu laun án þess að samfélagslegur vandi hljótist af.“ Þar segir ennfremur að aukin harka á vinnumarkaði sé ekki tekin til skoð- unar í skýrslunni en hún hafi fjölgað öryrkjum að undanförnu. „í skýrslu Tryggva er komið fram með þröngt hagfræðilegt sjónarmið þar sem byggt er á að menn freistist til að vera á bótum. Við erum ósam- mála þessu, enda viljum við að tekjur öryrkja séu tengdar við meðallaun en ekki lægstu laun,“ sagði Emil Thor- oddsen, formaður ÖBI, í samtali við Blaðið. óryrkjabanoálao TsÍanos I skýrslunni er bent á að hækkun örorkubóta sé ekki eina ástæðan fyrir fjölgun öryrkja. Markús Örn sendiherra í Höfn? Þrálátur orðrómur er um að Mark- ús Örn Antonsson, útvarpsstjóri og fyrrverandi borgarstjóri, muni senn láta af starfi sínu hjá Ríkisútvarpinu og taka við sendiherratign erlendis. Heimildarmenn, sem Blaðið telur áreiðanlega, staðfesta að þannig sé í pottinn búið og sé Kaupmannahöfn tíðust nefnd í því samhengi. Eins hef- ur verið rætt um að Guðmundur Árni Stefánsson verði sendiherra í Stokk- hólmi. Búist er við því að tilkynning um þessar breytingar berist frá Utan- ríkisráðuneytinu innan skamms. Markús Örn verst allra frétta þeg- ar hann er inntur eftir sannleiksgildi þessa. „Ég segi nú bara eins og Guð- mundur Árni, að ég kem af fjöllum." Markús kannast við umræðuna um fremd hans innan utanríkisþjónust- unnar en segir hana hreint ekki nýja af nálinni. „Ég heyrði fyrst um þetta fyrir tíu árum, minnir mig, en það hefur ekki gengið eftir enn.“ Símaleysi LSH: Gagnatap Blaðið hefur heimildir fyrir því að gagnatap hafi orðið í fyrradag þegar netkerfi Landspítala-háskólasjúkra- húss lá niðri í fimm klukkutíma. Jóhannes M. Gunnarsson, lækninga- forstjóri sjúkrahússins, sagðist ekki geta svarað fyrir þetta en að til væru afrit af öllum skjölum þótt stundum væri smáþraut að finna allt. Hann sagði að í fyrrakvöld hafi fólk unnið fram eftir til að vinna upp þann tíma sem tapaðist. Blaðið veit til þess að fólk sem átti pantaða tíma í meðferðir sé ekki leng- ur skráð í kerfið hjá LSH. Ekki náðist í Ingólf Þórisson, framkvæmdastjóra tækni og eigna sjúkrarhússins áður en Blaðið fór í prentun í gærkvöldi.B LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJ ÚKRAHÚS Sumarmarkað- ur geðdeilda í dag er haldinn árlegur sumarmark- aður iðjuþjálfunar geðdeilda á Land- spítala við Hringbraut milli klukkan 12 og 15.30 síðdegis. Markaðurinn er haldinn í anddyri geðdeildarhúss LSH við Hringbraut. Að venju verða þar vandaðar handunnar vörur á vægu verði, úrval leirmuna og vörur unnar á trésmíðaverkstæði og sauma- stofu. Ágóði sölunnar rennur til starf- semi iðjuþjálfunar en þangað koma bæði sjúklingar af geðdeildunum við Hringbraut og fólk utan úr bæ í end- urhæfingu. ■ Traust drattarbeisli Ásetning á staðnum. vlKURVAGNAR EHF, YW Vikurvagnar ehf • Dvergshöfða 27 Sími 577 1090 • www.vikurvagnar.is Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson (Villi Þór) opnaði í gær nýja hársnyrtistofu að Lynghálsi 3 í Reykjavík. Þetta er svo sem ekki í frásögur færandi nema að því leyti að fyrsti viðskipta- vinurinn á nýjum stað hét Lord og er hestur í eigu Viðars Halldórsson- ar í Gúmmívinnustofunni. „Þar sem það er hestabúð hérna við hliðina á mér fannst mér þrælgóð hugmynd að klippa hross sem fyrsta viðskipta- vin,“ sagði Villi Þór í samtali við Blað- ið. Hann segist ekki búast við því að gera þetta aftur þótt hann útiloki ekkert. Villi gerði þetta reyndar áður þegar stofan hans, Hársnyrting Villa Þórs, var í Ármúla og gekk það svo vel að hann ákvað að prófa þetta aft- ur núna. Aðspurður sagði Villi fyrsta viðskiptavininn ekki hafa verið til vandræða. „Nei, nei, hann þurfti ekki einu sinni á klósettið," sagði hann og sneri sér brosandi að næsta viðskipta- vini - sem hneggjar ekki.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.