blaðið

Ulloq

blaðið - 02.06.2005, Qupperneq 8

blaðið - 02.06.2005, Qupperneq 8
8 heilsa fimmtudagur, 2. júní 2005 I blaðið Kalk mikilvægt fyrir MS sjúklinga Calcium EAP nú fáanlegt á íslandi MS er sjúkdómur í miðtauga- kerfinu sem hefur, að mismiklu leyti, áhrif á taugaboð í heilanum, mænunni og sjóntaugum. Sjúk- lingar missa þrek og mikið getur dregist úr hreyfihæfni, skynjun og hugsun. Sjúkdómurinn hef- ur valdið miklum heilabrotum innan læknisfræðinnar frá því honum var fyrst lýst af franska taugasjúkdómalækninum Charc- ot árið 1868. Miklar rannsóknir hafa verið gerðar á þessum dul- arfulla sjúkdómi, sem getur með tímanum skemmt miðtaugakerfi sj.Úklinga, en orsakir og lækning- ar eru enn óljósar. Efni sem styrkir frumuveggi sjúklinga til muna Frá árinu 1964 hafa Þjóðverjar notað efnið Calcium EAP á MS sjúklinga, auk þess sem krabba- meinssjúklingar náðu undraverð- um árangri með notkun þess. Beinbrot sjúklinga sem tóku inn efnið urðu fátíðari, auk þess sem þrekið jókst. Nú er svo komið að hægt er að nálgast þetta kalk hér á landi en MS sjúklingar þeir sem tekið hafa inn efnið segja mikinn mun á líðan sinni og inntakan reynist yfir höfuð með eindæmum vel. Hans Nieper, þýskur læknir og vísindamaður, hefur farið mik- inn í kynningu á kalkinu en það sem hann hefur hvað mest bent á í þessu samhengi er styrking frumuveggjanna. Efnið styrkir varnarkerfi líkamans og byggir upp frumuhimnurnar en það hef- ur mjög góð áhrif á þá sem veikir eru. Fólk býr yfir aukinni orku, beinþéttni eykst og þreyta og slen verður fátíðara, en tekið skal fram að kalk þetta hjálpar einnig langveikum nýrnasjúklingum, krabbameinssjúklingum, asma- og nýrnasjúklingum, auk þess sem það veitir vörn vegn vírus- sjúkdómum, háum blóðþrýstingi, blóðtappamyndun og fleiru. Calsium EAP fæst í Yggdrasil Undirbúningur fyrir Reykjavíkurmaraþon Boðið er upp á undirbúning fyrir Reykja- víkurmaraþonið árlega, nú eins og í fyrra, þar sem þátttakan var gífurleg þá. Allir sem áhuga höfðu gátu mætt og komið sér í gott sumarform en flestir áttu það sam- eiginlegt að ætla sér að hlaupa sjö eða tíu km í Reykjavíkurmaraþoni. Þörfin var greinilega til staðar þar sem um 100 manns mættu á þessar sameiginlegu æfingar allt sumarið. Núna á að endurtaka leikinn og bjóða upp á svipaðan hlaupahóp í sumar. Undirbúningshópar verða fyrir tíu km hlaup í Íslandsbanka-Reykjavíkurmara- þoni og er öllum fijálst að skrá sig í hópa. Hóparnir munu æfa tvisvar í viku undir leiðsögn þjálfara en allir þátttakendur fá hlaupahandbókina Hlaup eftir Gunnar Pál Jóakimsson, og æfingaáætlanir vikulega fram að hlaupi, auk þess sem þeim munu bjóðast sérkjör á ýmsu tengdu hlaupaþjálf- un. Skráning fer fram á www.isb.is/marat- hon. Skráningarkostnaður er enginn. Morgunmatur mikilvægasta máltíð dagsins ítrekaðar rannsóknir leiða í Ijós nauðsyn morgunmatar halldora@vbl.is Mikið hefur verið talað um nauð- syn morgunmatar undanfarin ár en nú segjast vísindamenn í Banda- ríkjunum hafa gert rannsóknir sem styðja þessa tilgátu. „Þetta er sér- staklega mikilvægt fyrir böm en með morgunmat geta þau viðhaldið eðlilegri þyngd, auk þess sem þeim gengur betur í skóla. Við emm búin að rannsaka þetta í gríð og erg undanfarin misseri og erum komin með þetta alveg á hreint. Morgunmatur er mikilvægasta máltíð dagsins," segir Gail Ram- persaud, yfir- maður rannsókn- anna, en hann segir líka að fullorðnir þurfi einnig á næringu að halda á morgnana. Að sleppa morgun- mat dragi úr atorku, einbeitingu og allri líkamsstarfsemi. Þá hafi þetta mikil áhrif á andlega líðan og næring- arástand í heild sinni. Rampersaud hefur, ásamt kollegum sínum, óspart lýst yfir niðurstöðum rannsóknanna og hefur hvatt fólk til vakningar í þessum efnum. --------- Að sleppa morgunmat dregur úr atorku, ein- beitingu og allri líkams- starfsemi. Heilsuhlaup Krabbameins- félagsins í dag Hildur Vala Idol-stjarna ræsir hlauparana Krabbameinsfélagið efnir í dag til Heilsuhlaups fyrir almenning þar sem hægt er að velja um þriggja kíló- metra skokk, göngu frá húsi félagsins að Skógarhlíð 8 og að Öskjuhlið og til baka, eða tíu kílómetra hlaup suður fyrir Reykjavíkurflugvöll og til baka. Hlaupið hefst stundvíslega kl. 19. Þetta er í 18. sinn sem félagið heldur hlaupið en í ár verður leiðum breytt frá því sem áður var vegna fram- kvæmda við færslu Hringbrautar. Tími hvers og eins verður mældur og verða verðlaun veitt fyrir fyrsta sæt- ið í karla- og kvennaflokki í hveijum aldursflokki. Kristján Ársælsson þol- fimimeistari sér um upphitun fyrir hlaupið en það verður Idol-stjarnan Hildur Vala Einarsdóttir sem kemur til með að ræsa hlauparana. Von er því á mikilli og góðri stemmningu en hlaupin hafa tekist vel í gegnum árin og notið vinsælda. Forskráning er á Hlaupasíðunni (hlaup.is) en annars er hægt að skrá sig í dag hjá Krabba- meinsfélaginu í Skógarhlið 8 frá kl. 8-18. Þátttökugjald er 500 krónur fyrir 14 ára og yngri en 1.000 krónur fyrir 15 ára og eldri. Allir þátttakend- ur fá bol, auk þess sem viðurkenning- arpeningar verða veittir fyrir þá sem ljúka hlaupinu. Góð áhrif T rönuberjasafa Þvagfærasýkingar hafa aukist síðustu árin Rannsóknir í Bretlandi hafa leitt í ljós að trönubeijasafi hefur mjög góð fyrirbyggjandi áhrif á þvagfærasýkingar hvers konar. Sýkingar í þvagfærum hafa aukist mikið á undanfórnum árum en kon- ur eru ríkjandi meðal sjúklinga. Fyrir mörgum áratugum var sýnt fram á góð áhrif trönubeijablöndu á líkamann en nú þykir staðfest að þar séu mestu áhrifin á bólgur og sýkingar í þvagfærum, eftir að gerð var rannsókn á tveimur hóp- um, samanburðarhópi og tilrauna- hópi. Eftir að hafa drukkið trönu- berjasafa á hveijum degi í hálft ár sýndi tilraunahópurinn mun betra ástand á þvagfærum en fyrir rann- sóknina en samanburðarhópurinn stóð í stað og sýktist auðveldlega. Hálfu ári eftir rannsóknina var til- raunahópurinn enn betur settur og ólíklegur til sýkingarhættu en það rennir stoðum undir langvarandi áhrif drykkjarins. Ekki er hægt að gera ráð fyrir að trönuberjasafi lækni áður smitaða en ljóst er að fyrirbyggjandi áhrifin eru mikil. Þar sem mörgum þykir safinn rammur er mælt með að hann sé hristur í blandara með ísmolum.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.