blaðið - 02.06.2005, Side 22
fimmtudagur, 2. júní 2005 I blaðið
Rijkaard
vill fá Henry
Frank Rijkaard, þjálfari spænska
liðsins Barcelona, hefur sagt við
sína menn að hann vilji fá Frakkann
Thierry Henry fyrir næstu leiktíð.
Spænska blaðið Marca sagði í gær
að Rijkaard hafi verið boðið að fá
Patrick Vieira en hann hafi sagt nei
takk við því. „Látið mig fá Henry,“
hafi verið viðbrögð Rijkaardd. Joan
Laporta, forseti Barcelona, lýsti
því yfir fyrir nokkru að hann ætlaði
sér að reyna allt hvað hann gæti til
að fá Henry til Barcelona. Laporta
lét hafa eftir sér að ekkert lið gæti
stöðvað Ronaldinho, Samuel Eto'o
og Thierry Henry og það verður að
segjast eins og er að karlinn hefur
töluvert fyrir sér, að minnsta kosti
svona fyrirfram.
Figo til
Middles-
brough?
Svo gæti farið að Luis Figo, sem
leikið hefur með spænska stórlið-
inu Real Madrid, leiki með enska
úrvalsdeildarliðinu Real Madrid
á næstu leiktíð. Steve McClaren,
framkvæmdastjóri enska liðsins,
hefur lengi haft áhuga á að fá Figo
í sitt lið og nú virðist sem tækifærið
sé að renna upp því búist er við
að Florentino Perez, forseti Real
Madrid, veiti Figo frjálsa sölu [
sumar. Sjálfur hefur Figo sagt að
hann vilji mjög gjarnan leika með
liði í Englandi áður en hann hættir
knattspyrnu.
vbv@vbl.is
Meistarar Detroit Pistons jöfnuðu
metin gegn Miami Heat í úrslitum
Austurdeildar NBA-körfuboltans.
Liðin mættust í fjórða leiknum í Au-
burn Hills í Detroit og staðan í hálf-
leik var 60-46 fyrir Pistons. Miami
kom aðeins til baka í þriðja leikhluta
og vann hann 19-23 en nær komust
gestimir ekki og lokatölur urðu 106-
96. Rasheed Wallace átti mjög góðan
leik með 20 stig og lét fréttamenn
heyra það eftir leikinn en frétta-
menn í Bandaríkjunum hafa velt sér
upp úr því að undanfórnu að Larry
Brown, þjálfari Detroit, sé á fórum
til Cleveland eftir leiktíðina. Richard
Hamilton var með 28 stig og átta
stoðsendingar og Chauncey Billups
var með 17 stig og sjö stoðsendingar
fyrir Detroit. Hjá Miami var Dwayne
Wade sá eini sem eitthvað kvað að
fyrir alvöru en hann var með 28 stig
og sex stoðsendingar. Shaquille O 'Ne-
al vill örugglega gleyma þessum leik
sem allra fyrst því hann var aðeins
með 12 stig og fimm fráköst á 25 mín-
útum. Hann lék mjög illa - hitti illa
og frákastaði lítið, auk þess að vera
pirraður og lenti því í villuvandræð-
um snemma. Staðan er
því jöfn, 2-2, í einvígi
liðanna. Næsti leik-
ur fer fram á heima-
velli Miami Heat.
/ O
9 «
Golfmot
Marksins Kiðjabergi, 4.júní
Verdlaun:
10 fyrstu sætin.
Besta brúttóskor karla.
Besta brúttóskor kvenna.
Næstur holu á öllum par 3
brautum.
Lengsta drive á 4. braut.
Einnig verður dregið úr
skorkortum við
verðlaunaafhendingu.
lCELANDAlR
Þann 4. júní verður haldið eitt glæsilegasta
mót sumarsins á ný stækkuðum
Kiðjabergsvelli í Grímsnesi. Mótið verður
Stableford punktakeppni 7/8. Skráning
og nánari upplýsingar eru á www.golf.is
eða í síma 486 4495.
ZO'
M4RKK)
www.markld.ls • Sími: 553 5320 • Ármúla 40
Chelsea og Cole sek
Enska úrvalsdeildarliðið Chelsea,
Peter Kenyon stjómarformaður
og Jose Mourinho, ásamt Ashley
Cole, leikmaður Arsenal, voru í gær
fundnir sekir um að hafa brotið lög
og reglur hvað varðar samskipti leik-
manna á samningi og annars félags.
Áðumefndir aðilar, ásamt umboðs-
mönnunum Pini Zahavi og Jonathan
Bamett, hittust á veitingastað í Lund-
únum í janúar síðasliðnum. Arsenal
gerði athugasemd við þetta og enska
knattspymusambandið tók málið
upp og komst að þeirri niðurstöðu í
gær að aðilar málsins hafi staðið ólög-
lega að því. Umboðsmenn aðilanna
verða ekki dæmdir í málinu þar sem
þeir falla ekki undir lög enska knatt-
spymusambandsins. Forráðamenn
Chelsea, Peter Kenyon og Jose Mour-
inho, og Ashley Cole, geta átt von á
hárri sekt, eða allt að 250.000 sterl-
ingspundum, sem er jafnvirði um 31
milljónar íslenskra króna.