blaðið - 02.06.2005, Blaðsíða 23

blaðið - 02.06.2005, Blaðsíða 23
blaðið I fimmtudagur, 2. júní 2005 Fra marar. «. ynrspilaðir vbvðvbl.is Gömlu Reykja- víkurfélögin Valur og Fram mættust í Lands- bankadeildinni í knattspyrnu og var leikið að Hlíðarenda, heimavelli Vals. Um 1.000 manns voru á vellinum í blíðskaparveðri en Framarar sáu þó aldrei til sólar í leiknum. Þeir voru yf- irspilaðir á löngum köflum og fyrstu 45 mínútumar voru eign þeirra rauð- klæddu. Eftir 12 mínútur var Matthí- as Guðmundsson búinn að skora eftir laglegan undirbúning Guðmundar Benediktssonar og átta mínútum síð- ar var Gummi Ben. enn í undirbún- ingsstarfsemi og Sigþór Júlíusson renndi boltanum í markið. Þegar 10 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik var staðan orðin 3-0 þegar Baldur Að- alsteinsson skoraði og enn átti Guð- mundur Benediktsson heiðurinn af undirbúningi marks frá Val. í seinni hálfleik gerðist lítt markvert og Vals- menn héldu sínu án þess þó að bæta við. Andri Fannar Ottósson, sem hef- ur leikið afbragðsvel fyrir Fram í sum- ar og verið þeirra aðalsóknarmaður, sást varla í leiknum gegn Val. Strák- amir hans „Big Willum" spila mjög vel saman sem liðsheild en hið sama verður ekki sagt um Framara í leikn- um. Valur á fyllilega skilið öll þau 12 stig sem liðið hefur fengið til þessa og leikurinn Valur-FH, sem verður 15. júní, er mikið tilhlökkunarefni. Landsliðshópur Ungverja Lothar Mattháus, landsliðsþjálfari Ungverja, hefur valið landsliðshóp sinn sem mætir íslendingum í und- ankeppni Heimsmeistarakeppninnar eftir tvo daga. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli. Ungverjar voru á þriðjudag að leika vináttulandsleik við Frakka þar sem Ungveijar voru yfirspilaðir í fyrri hálfleik og Frakk- ar leiddu 2-0.1 seinni hálfleik var svo allt annað uppi á teningnum þar sem Ungverjar komu vel til baka í leikn- um og náðu að skora einu sinni og voru síðan nálægt því að jafna leik- inn. Frakkar unnu 2-1. m Landsliðshópur Ungverja lítur þannig út: 1. Király Gábor Crystal Palace (ENG) 2. Rabóczki Balázs FC Kobenhavn (DEN) 3. Fiilöp Márton Tottenham Hotspur (ENG) 4. Bodnár László Roda JC (NED) 5. Stark Péter Gyori ETO FC (HUN) 6. Balog Zoltán Ferencvárosi TC (HUN) 7. Gyepes Gábor Ferencvárosi TC (HUN) 8. Huszti Szabolcs Ferencvárosi TC (HUN) 9. Vanczák Vilmos Újpest FC (HUN) 10. Juhász Roland MTK Budapest (HUN) 11. Takács Ákos Ferencvárosi TC (HUN) 12. Hajnal Tamás Sint-Truidense (BEL) 13. Gera Zoltán West Bromwich Albion (ENG) 14. Rajczi Péter Újpest FC (HUN) 15. Bárányos Zsolt Matáv Sopron (HUN) 16. Vincze Ottó Gyori ETO FC (HUN) 17. Szabics Imre VfB Stuttgart (GER) 18. Kerekes Zsombor DVSC (HUN) 19. Vincze Gábor Livingston FC (SCO) 20. Tóth Norbert Úioest FC (HUN) Þess má geta að með A-liðinu koma 14 manns að meðtöldum landsliðsþjálfaranum og þar í hópi er skráður Ijósmyndari sem heitir Zoltan Thaly. Já, hvenær sendir KSl Ijósmyndara með í för? KB oq Br»HalMfc^,um V VHU.l.lUllll.Ulb.lllV ^ Ó'LANDSBANKADEILDIN <? konur Félag L U J T Mörk Net Stig 1 KR 2 3 4 5 6 7 Breiðablik Valur ÍBV FH Keflavík Stjarnan 8 (A vbv@vbl.is 3300 16:3 13 9 © 3 3 0 0 9:4 5 9 © 3201 17:4 13 6 © 31022:8 -6 3© 31022:8 -6 3© 3 1 0 2 4:12 -8 3 © 3 1 0 2 2:10 -8 3 © 3 0 0 3 3:20 -17 0 © Þremur umferðum er lokið í Lands- bankadeild kvenna í knattspyrnu. KR burstaði FH, 6-1, á KR-vellinum og hefur KR þar með unnið alla sína þrjá leiki til þessa á íslandsmótinu. Hrefna Jóhannesdóttir skoraði fjögur mörk fyrir KR, Júlíana Einarsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir eitt mark hvor en Valdís Rögnvaldsdóttir skor- aðimarkFH. Breiðablik fór í erfiðan útileik gegn ÍBV á Hásteinsvelli og þar skoruðu Guðlaug Jónsdóttir ogErna B. Sigurð- ardóttir mörk Breiðabliks en Bryndís Jóhannesdóttir skoraði fyrir ÍBV. Blikastúlkur léku einum leikmanni færri 2/3 af leiknum en Guðlaugu Jónsdóttur var vikið af leikvelli fyrir að slá til Hólmfríðar Magnúsdóttur. KR-stúlkur héldu þetta út og fengu dýrmæt þrjú stig. Stórsigur Vals KeflavíkurstúlkurmættuValáheima- velli en margir spá Val íslandsmeist- aratitlinum í ár. Valsstúlkur mættu mjög ákveðnar til leiks og kenndu ný- liðum Keflavíkur smálexíu í fótbolta. Lokatölur Keflavík 0, Valur 9. Staðan í hálfleik var 0-6. Margrét Lára Við- arsdóttir, Laufey Ólafsdóttir, Dóra María Lárusdóttir og Rakel Logadótt- ir skoruðu tvö mörk hver fyrir Val og varamaðurinn Elín Svavarsdóttir skoraði eitt mark. Stj arnan fékk sín fyrstu stig í Lands- bankadeild kvenna þegar Stjarnan vann ÍA í Garðabæ. Það var Björk Gunnarsdóttir sem skoraði eina mark leiksins 10 mínútum fyrir leikslok. ÍA er enn án stiga í deildinni og þeirra bíður án efa erfitt sumar. Liðið hefur aðeins skorað þijú mörk en fengið á sig 20 í fyrstu þremur umferðunum. Fyrsta jafnteflið fÞróttur og ^ Keflavík léku J á Laugardal- I svelli og þar ' náðu Þróttarar forystunni á 39. mínútu þegar Ey- steinn Lárusson kom boltanum í mark- ið og þar með skoraði hann annað mark Þróttar á leiktíð- inni sem telst ekki mikið. Hörður Sveinsson jafhaði metin fyrir Kefla- vík á lokamínútu fyrri hálfleiks og eftir klukkustundarleik var staðan orðin 1-2 með marki frá Guðmundi Steinarssyni. 20 mínútum fyrir leikslok var staðan orðin jöfn þegar Páll Einarsson skoraði fyrir Þrótt úr vítaspyrnu. Lokatölur 2-2. Jafnt- efli sanngjörn úrslit. Þar með fengu Þróttarar sitt fyrsta stig í deildinni og eru í næstneðsta sæti en Keflvík- ingarnir hans Kristjóns Guðmunds- sonar eru komnir í þriðja sæti með sjö stig. í næstu umferð mætir Keflavík liði Vals og verður leikur- inn í Keflavík 11. júní en Þróttar- ar fara í Kaplakrika og mæta FH-ingum. Það er því erfitt verkefni sem bíður Þróttar og Keflavík- ur í næstu umferð. * LANDSBANKADEILDIN Ó karlar Félag L U J T Mörk Net Stig 1 FH 2 Valur 3 Keflavík 4 Fylkir 5 Fram 6 KR 7 ÍA 8 Grindavík 9 Þróttur R. 10 ÍBV 4 4 0 0 12:1 11 12 © 4 4 0 0 10:2 8 12 © 4 2 1 1 7:8 -1 7 © 4 2 0 2 7:5 2 6 © 4 2 0 2 6:4 2 6 © 4 2 0 2 4:4 0 6 © 4 2 0 2 4:7 -3 6 © 4 1 0 3 6:12 -6 3 © 4 0 1 3 3:8 -5 1 © 4 0 0 4 3:11 -8 0 © U-21 árs hópur Ungverja Antal Roth, landsliðsþjálfari ung- Sjö manns koma til landsins, að með- verska liðsins, skipað leikmönn- töldum þjálfaranum, og hópurinn er um 21 árs og yngri, hefur valið þá skipaður eftirfarandi leikmönnum: leikmenn sem koma til íslands. 1. Somogyi Csaba Gyori ETO 2. Kovács Zoltán Bodajk FC 3. Regedei Csaba Gyori ETO 4. Balogh Béla MTK Budapest 5. Mészáros Attila Budapesti Honvéd 6. Máté Péter DVTK 7. Horváth Gábor REAC 8. Takács Zoltán Budapesti Honvéd 9. Pollák Zoltán MTK Budapest 10. Sándor György Gyori ETO 11. Kanta József MTK Budapest 12. Vadócz Krisztián Budapesti Honvéd 13. Bank István Kaposvári Rákóczi 14. Virág Aladár DVTK 15. Czvitkovics Péter MTK Budapest 16. Magasföldi József FC Fehérvár 17. Jovánczai Zoltán Kaposvári Rákóczi 18. Feczesin Róbert Újpest FC 19. Tisza Tibor DVTK 20. Józsi György Zalaegerszegi TE

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.