blaðið - 02.06.2005, Blaðsíða 24
fimmtudagur, 2. júní 2005 I blaðið
24 mennin
Nokkur
grömm af
einlægni
kolbrun@vbl.is
„Ég vigtaði myndimar á sýningunni
og þær em samtals 21.000 grömm.
Skemmtileg tilviljun að líkaminn
léttist um 21 gramm þegar við deyj-
umsegir Elín Anna Þórisdóttir, sem
sýnir verk sín á veitingastaðnum Gal-
ileo í Hafharstræti 1. Þetta er fýrsta
einkasýning Elínar Önnu og verkin
vinnur hún úr pappa, tré, málningu
og vinnuvélalakki.
*Ég grnnna tré og pappírsplöt-
ur. Plötumar liggja á jörðinni og ég
stend yfir þeim og læt lakk leka á
þær. Ég er eiginlega að teikna mynd-
ir með lakkinu. Ég næ ekki að stjóma
nákvæmlega hvemig það lekur, sem
verður til þess að eitthvað óvænt og
spennandi gerist á milli mín og verks-
ins,“ segir Elín Anna um vinnslu verk-
anna. „Sumar myndimar hafa verið
í kollinum á mér í einhvem tíma en
aðrar verða til alveg óvart í einhvers
konar flæði. Kannski spretta þær úr
undirmeðvitundinni. Það kom sjálfri
mér skemmtilega á óvart að á mynd-
fletinum vora að birtast hlutir sem
við þekkjum úr hversdagsleikanum.
Eins ogtil dæmis þvottavél eða sokka-
buxur. Það er mikilvægt að mynd-
imar komi fram áreynslulaust því
annars verða þær tilgerðarlegar. Ég
upplifi þær sjálf sem nokkur grömm
af einlægni, munúð og kímni.“
Sýningin er í Lista-kjallaranum
í kjallara Galileos. Lista-kjallarinn
stefnir að mánaðarlegum listasýning-
um og er markmiðið að halda 12 sýn-
ingar á ári.
öllum hstamönnum er fijálst að
sækja um sýningaraðstöðu fyrir verk
sín. Stefnt er að því að á öllum opn-
unum verði lifandi tónlist frá hinum
ýmsu listamönnum.
Sýningin stendur til 25. júní.
[aaðWGjindi_______________
Elín Anna Þórisdóttir. „Þaö er mikilvægt að myndimar komi fram áreynslulaust því annars verða þær tilgerðarlegar. Ég upplifi þær
sjálf sem nokkur grömm af einlægni, munúð og kímni.“
Umsjónarmenn Westminster
Abbey hafa gefið út sérstakan
bæklingtilferðamannaþarsemer
að finna leiðréttingar á nokkrum
atriðum í metsölubókinni
frábæra, Da Vinci lyklinum.
Allt frá því Westminster
Abby kom við sögu í Da Vinci
lyklinum hafa fýrirspumir
dunið á leiðsögumönnum frá
áhugasömum ferðamönnum í
skoðunarferð.
í Da Vinci lyklinum kemur
fram að málmleitartæki séu
í Westminster Abbey, sem er
rangt, og sömuleiðis er ekki
rétt að gestir geti farið með
látúnseftirprentanir út úr
byggingunni. Þriðja missögnin
í bókinni varðandi Westminster
Ahbey er að Alexander Pope hafi
flutt minningarorð við jarðarfór
Isaac Newton.
Da Vinci lykillinn hefur selst
í rúmlega 20 milljónum eintaka.
Kvikmynd með Tom Hanks er
í vinnslu en umsjónarmenn
Westminster Abbey hafa
meinað kvikmyndafélaginu að
kvikmynda á lóðinni.
Goðsögnin
um
Pavlik
Ekkert lát er erlendis á útkomu
athyglisverðra bóka um Stalíntím-
ann. Ein þessara nýju bóka nefn-
ist Comrade Pavlik - The Rise
and Fall of a Soviet Boy Hero
og er eftir Catrionu Kelly. í athygl-
isverðri bók rannsakar hún mál
Pavliks Morozov, sem varð hetja á
Stalíntímanum fyrir að framselja
fóður sinn til yfirvalda.
Pavlik, sem bjó ásamt fjölskyldu
sinni í þorpinu Gerasimovka, var
illa læs táningur, ekki vel gefinn
og kann að hafa þjáðst af andlegu
ójafnvægi. Árið 1931, þegar hann
var tólf ára, fór hann til yfirvalda
og sagði fóður sinn vera andbylt-
ingarsinnaðan og bað um að þessi
óvinur ríkisins yrði fangelsaður.
Það var gert en síðar myrtu ættingj-
ar Pavlik sjálfan og níu ára gaml-
an bróður hans, að því er virðist í
hefndarskyni.
Kelly, höfundur bókarinnar,
hafði aðgang að málskjölum og
komst að því að faðir Pavliks var
ofbeldisfullur drykkjumaður, sem
kann að hafa leitt til þess að sonur
hans sagði til hans.
Á Stalíntímanum varð Pavlik að
hetju. Um hann voru sagðar sög-
ur, ort ljóð, gerð leikrit, ópera og
kvikmynd. Götur og skólar voru
nefnd eftir honum og af honum
reist stytta. Hann varð einn af písl-
arvottum byltingarinnar. Drengur
sem hafði skilið mikilvægi bylting-
arinnar og álitið hana meira virði
en líf fóður síns. Frumkvæði hans
þótti lofsverð og til eftirbreytni í
ríki Stalíns. Hann varð sönn fyrir-
mynd sovéskra barna.
Kelly rekur þessa sögu í bók sinni
og segir sögur af börnum og ung-
lingum sem fóru að dæmi Pavliks
og framseldu foreldra sína í hendur
yfirvalda.
■
The.Rise and Fall of a Soviet Boy Hero
éATRIONA KELL'
á m
r -c; 1 .*
■ 0 ■0’4 r
URVALIÐ
Opið virka claga kl. 9~I8,
laugard. 1?~16 og sunnud. ,
TANGARHOFÐA 1 ■ SIMI 557 7720 ■ vihurverlt.is
Sögur til að leysa
Út er komin bókin, Leyfðu mér að segja
þér sögu... eftir argentíska sálfræðing-
inn Jorge Bucay. Jorge er margfaldur
metsöluhöfundur og hafa bækur hans
verið gefiiar út í 20 löndum víðs vegar
um heiminn og selst í yfir þremur millj-
ónum eintaka.
Demián er fovitinn en áhyggjufullur
ungur maður sem langar að vita meira
um sjálfan sig. Hann leitar ráða hjá
Jorge - „þeim feita“ - harla óvepjulegum
sálfræðingi sem hjálpar honum að tak-
ast á við lífið og finna svör við áleitnum
spumingum. Til þess beitir sálfræðing-
urinn afar persónulegri aðferð. Á hveij-
um degi segir hann honum sögu. Hann
endurspeglar sígildar sögur úr nútíð eða
fortíð til þess að hjálpa unga manninum
að leysa vandamál sín.
í bókinni fléttar höfimdurinn, sál-
fræðingurinn Jorge Bucay, flestu því
sem mannlegt getur talist, inn í sögur
af ýmsu tagi, enda fullyrðir hann að það
sé besta leiðin til þess að læra á lífið.
María Rán Guðjónsdóttir þýddi úr
spænsku.
vandamál
JORGE BUCAY
LEYFÐU MÉR AÐ
SEGJA ÞÉR SÖGU...
Scigurnar sem kenndu mér aö lifa
PP FORI.AG
Metsölulistin
- allar bækur
m!
1. Kleifarvatn - kilja
Arnaldur Indriöason
2. Hugmyndir sem breyttu
heiminum
Felipe Femández-Armesto
3. íslandsaga A-Ö
Einar Laxness
4. Útivistarbókin
Páll Ásgeir Ásgeirsson
5. Vísindabókin
Ari Trausti Guömundsson - þýöandi
6. Alkemistinn - kilja
Paulo Coelho
7. íslendingar
Sigurgeir Sigurjónsson og Unnur Jökulsdóttir
8. Viska fyrir okkar öld
Helen Exley tók saman
9. Verk að vinna
Geir Svansson - þýöandi
10. Hveitibrauðsdagar - kilja
James Patterson
Listinn er geröur út frá sölu dagana 25.5.05-
31.5.05 i Bókabúðum Máls og menningar,
Eymundsson og Pennanum.