blaðið - 02.06.2005, Qupperneq 30
30 hver & hvar;
fimmtudagur, 2. júní 2005 I blaðið
SMÁ
bxjrtycurÍAvn/...
Bókstafstrú er ótrúlega leiðin-
legt fyrirbæri og virðist það í
síauknum mæli tröllríða sam-
félögum heimsins. Það er með
ólíkindum þegar fólk er svo rú-
ið hugmyndaflugi að einungis
ein möguleg merking setningar
eða orða hvarflar að því og að-
eins hún telst viðurkennd. Rétt-
trúnaður plagar ekki einungis
þá sem halda að Biblíuna eða
önnur trúarrit þurfi að lesa
staf fyrir staf svo leyndardóm-
ur helgidómsins fari ekki for-
görðum heldur einnig þá sem
í daglegu lífi. telja að til að fyr-
irbyggja misskilning beri að
fara varlega í túlkanir á orðum
náungans. Rétttrúnaður er í
reynd til marks um minnimátt-
arkennd og takmarkað sjálfs-
traust. Bókstafstrúarmenn eru
þeir sem með engu móti treysta
sér til skapandi hugsunar eða
nýjunga. Bókstafstrúarmenn
eru þeir sem standa framförum
fyrir þrifum og þeir sem aldrei
munu skilja leyndarmál helgi-
dómsins.
Þetta ber að taka bókstaflega.
Ellý Armanns:
Stelpan með tarot-stokkinn í skólatöskunni
EllýÁrmannsdóttir þula, sem held-
ur úti hinum vinsæla vef spámaður.
Í8, mun sjá um nýja stjömuspá fyrir
Blaðið. Ellý mun þar spá í merkin út
frá nýrri nálgun og ýmsum forsend-
um, stjömum, tarot, stað og stund,
legu jarðar, árstíðum og fleiru. „Já,
við ætlum að skipta stjömuspánni
upp í tilfinningar og velgengni og
skoða ýmislegt sem lýtur að öðm
en bara tilfinningum og skoða líka
markmið og fjármál," segir Ellý.
Felldi grímuna
Ellý hefur lengi haft áhuga á and-
legum málefnum og stjörnuspeki og
segir að hann hafi vaknað þegar hún
var á bamsaldri. „Þá var ég stelpan
með tarot-stokkinn í skólatöskunni
og einhvem veginn þróaðist þetta
út frá því. Fyrst skammaðist ég mín
svolítið fyrir þennan áhuga og þess
vegna nefndi ég vefinn Spámaður
svo enginn vissi hver væri á bak við
hann. Svo vom allir að spyrja og vef-
urinn varð mjög vinsæll og þá ákvað
ég að láta grímuna falla."
Draumráðningar
Það urðu
tæknileg mis-
tök í vikunni
sem urðu
til þess að
stjörnuspá-
in kom ekki
inn á vefinn
og í kjölfarið
rigndi tölvu-
pósti frá
vonsviknum
lesendum yfir
Ellý. Vefurinn
nýtur vaxandi
vinsælda en
þar em auk
annars efnis
hin sívinsælu
íslensku spá-
dómsspil. Ellý
hefur einnig
ýmislegt nýtt
ívændumfyr-
ir lesendur
vefsins. Með-
al annars
vinnur hún
að gagnagmnni fyrir draumaráðn-
ingu. „Ég ligg yfir þessu á kvöldin
en gronnurinn verður uppflettirit
til draumaráðninga á netinu. Þarna
verður hægt að fletta upp ýms-
um táknum, atburðum og aðgerð-
um, auk lita, og finna út hvað þeir
tákna.“ Nýja stjömuspáin, þar sem
Ellý spáir í stjörnumar, birtist í blað-
inu á morgun og á næstu missemm
mun Ellý brydda upp á ýmsum nýj-
ungum í Blaðinu.
Fyrst
skammað-
ist ég mín
svolítið fyr-
ir þennan
áhuga og
þess vegna
nefndi
ég vefinn
Spámaður
svo enginn
vissi hver
væri á bak
við hann.
Firöi Hafnarfirði • Sími 565 0073