blaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 12
tómsturx
i____
miðvikudagur, 8. júní 2005 I blaðið
íþrótt allra
þjóðfélag
Yfirbyggingin hallar sér sjálfvirkt
inn í beygjur þegar hraðinn er yfir
30 km á klst.
Jón Hafsteinn Magnússon, eigandi og
forstjóri JHM sport, segir geysilega
aukningu hafa verið í hópi þeirra er
stunda torfæruakstur á bifhjólum á
íslandi. „Ég hugsa að á síðustu þrem-
ur árum hafi hópurinn þre- eða fjór-
faldast,“ segir Jón, en hann telur fjöld-
ann vera á bilinu 1500-2.000 manns.
„Þessi íþrótt höfðar til allra; forstjóra,
lögfræðinga og verkamanna, í öllum
aldurshópum og af báðum kynjum."
JHM sport selur torfæruhjól fyrir
börn og fullorðna. Þar fæst t.d. lítið
hjól fyrir krakka á aldrinum 4-5 ára
sem eru byrjaðir að geta hjólað án
hjálpardekkja. Hjólið er eins gíra og
getur að hámarki verið ekið á 25 km
á klukkustund.
Einnig fást mótorkross eða enduro-
hjól fyrir krakka sem eru ögn stærri.
Jón telur þó skynsamlegast að byija
í sportinu á klifurhjólum. Þeim er
hægt að aka yfir nánast hvaða hindr-
un sem er en slíkur hindrunarakstur
verður sífellt vinsælli keppnisíþrótt
á meginlandi Evrópu og víða annars
staðar.
Torfæruskellinöðrurnar fyrir yngri
aldurshópinn eru mjög vel útbúnar.
Þær hafa sama útlit og stóru hjólin,
eins bretti, tankhlífar, hliðarhlífar,
sæti og aukabúnað. Þannig lítur 50
kúbika hjól nánast eins út og 300 kú-
bika. Öll enduro-hjólin eru skráð götu-
hjól svo þeim má aka hvar sem er.
„Þetta leysir allan bílastæðavanda
í Reykjavík," segir Jón, hreykinn yfir
lítilli innanbæjarskellinöðru. „Segj-
um að fólk fái sér svona græju og aki
niður í bæ til vinnu. Þá sparast gríðar-
legt bílastæðapláss. Fimm svona hjól
komast hæglega í hvert bílastæði.
Hjólið kostar 238.000, er 50 kúbik og
eyðir um þremur lítrum á hundraðið.
Það er blátt númer á þessu þannig að
hver sem er, sem er með bílpróf, má
aka því án sérstaks mótorhjólaprófs.
Fólk upplifir hlutina svolítið á annan
hátt með þessum ferðamáta.
íslensk veðrátta bítur ekki á
þann sem ekur hinu hollenska
Carver-farartæki. Það er áþekkt
mótorhjóli í akstri, stýrisbúnað-
urinn er svipaður en hjólið hall-
ar sér sjálfkrafa, allt að 45 gráð-
um, inn í beygjur.
Innrýmið er algerlega lokað,
líkt og um bíl væri að ræða. Það
er á liðum ofan á afturhjólastell-
inu en tölvustýrt vökvaþrýsti-
kerfi hallar hjólinu í beygjur í
samræmi við hraða ökutækisins
og legu stýrisins. Það er aftur-
hjóladrifið en sex strokka, 65 ha
mótorinn getur komið tækinu á
185 km/klst. en meðaleyðsla er
um 5,5 1 á hundraðið. Hjólið fer
frá 0 í 100 km/klst. á 8,5 sek.
Staðalbúnaður er m.a. leður
og tauáklæði, geislaspilari, út-
varp og þjófavörn. Framleiðsla
er hafin á tækjunum og koma
þau fyrstu á markað í haust.
Á heimasíðu Náttúruvemdarsam-
taka íslands birtist fyrir skemmstu
kvörtun þar sem gagnrýndur var
akstur fjórhjóla- og krossarakappa
utan vega víða um land. „Mörgum
sinnum á síðastliðnum árum hef ég
horft upp á mótorkrossfólk valda gíf-
urlegum skemmdum með utanvega-
akstri," segir bréfritari. „Ég er ekki
að tala um tvö til þijú skipti heldur
mörg atvik - engin smáhjólfór held-
ur spól sem augljóslega verður til við
fullkomið virðingarleysi ökumanns.“
Bréfritari segist einu sinni hafa
reynt að kæra atvikið en án árang-
urs. Hann segir „marga svarta sauði“
vera innan geirans og að það sé á
ábyrgð forvígismanna íþróttarinnar
að uppræta vandann.
Margir torfæruhjólakappar hafa
bent á það hve sárlega vanti fleiri
brautir fyrir mótorkrossfólk. Aðeins
er ein braut við höfuðborgarsvæðið, á
Álfsnesi, en á annað þúsund hjól eru
í og í kringum Reykjavík. Ein braut
er í Grindavík, ein á Kirkjubæjar-
klaustri, ein á Akureyri og ein á Ól-
afsvík.
Haukur Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Nitro, segir það vissu-
lega satt að margir aki utan leyfi-
legra svæða. „Hvers vegna vilja allir
vernda náttúruna í hvert sinn sem
einhver minnist á vélknúin tæki?
Það vantar einfaldlega aðstöðu fyr-
ir allan þennan fjölda sem leggur
stund á torfæruhjólaakstur. Það er
engin fjölbreytni í því að aka bara í
stutta hringi á sama svæði aftur og
aftur. Nú var verið að leggja stíg upp
á Esjuna og maður spyr sig hvort það
spilli ekki náttúrunni, svo ekki sé nú
talað um ágang hestafólks um allt.
Það hefur verið í umræðunni að við
fáum aðstöðu í Jósefsdal en ekkert er
víst í þeim efnum.“ Haukur segir góð
svæði vera í Þorlákshöfn og í Sand-
vík. Þar séu sandar sem margir keyri
á án þess að spilla gróðri. Sá akstur
sé hins vegar ólöglegur þrátt fyrir að
öll ummerki um aksturinn hverfi á
um það bil viku.
Haukur segir gríðarlega aukningu
vera í hópi górhjólamanna og að
fleiri hundruð hjól séu á höfuðborgar-
svæðinu - án fullnægjandi aðstöðu.
„Vissulega er ávallt óafsakanlegt að
skemma gróðurfar en það er ekki
gróður á söndunum,“ segir hann að
lokum.
Er að taka upp fullt
af nýjum vörum,
leðurgallar, jakkar,
buxur,strappar,
gleraugu o.fl.
Gas Gas FSE 450, 6 gíra, rafstart, bein innspýting,
“slipper clutch”, vökvakúpling, létt og meðfæri-
legt í akstri. Verð 885.000.
3. hjóla kerra, galvinseruð og sterk. Verð 139.000.
Stórhöfða 35 - Sími 567 6116 - www.jhmsport.com
Hvert eiga þeir að fara?
TITAX FMW KYOTO
Bremsuklossar, Bremsudiskar, Tannhjól, Keðjur, Holeshot,
Pakkdósir, Leg'ur, Loftfilter, Stýri, NGK kerti,
Bremsu og Kúplingshandföng,
Verkfæri, Strappar, Sætisáklæði, Límiðakitt,
Olía, Ö-ring Keðjusprey, Stýri, Höldur, Lásar, Dekk,
Fjórhjóladekk, FM Plast ofl. ofl.
Gre
Bezta verðið í dalnum..