blaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 1

blaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 1
n STEYPUSTÖÐIN S. 540 6800 www.steypustodin.is Norðurá, 'bls•12 500 laxar hafa veiðst Marqir á faraldsfæti Arekstrar við halastjörnu samkynhneigðra . bh. u Ritstjórnar- og auglýsingasími: 510 3700 • bladid@vbl.is Lífræn epli þrefalt dýrari - bh. 2 Milljarðar í íþróttastyrki - bis. 6 Frekari landvinningar - bis. 4 Nýr rektor tekur við - bls. 4 Brassamir álfumeistarar -bis.22 ókeypis til heimila og fyrirtækja alla virka daga Heimsferðir kaupa ferðaskrifstofur í Noregi og Svíþjóð: Heimsferðir norrænn ferðarisi Heimsferðir hafa gengið frá kaupum á sænsku ferða- skrifstofunni STS Solresor og norsku ferðaskrifstof- unni STS Solia af norræna ferðaþjónustufyrirtækinu STS Intemational. Andri Már Ingólfsson, eigandi Heimsferða, vill ekki gefa upp kaupverðið en heildar- velta Solresor og Solia er áætluð tæpir níu milljarð- ar króna í ár. „Við ætlum að halda þeirra nöfnum þar sem þau hafa bæði sterka ímynd og sterkt orðspor þannig að því verður haldið. Núna munum við njóta þess að vera í miklu stærra samhengi en hefur verið hing- Þetta er okkar fyrsta skref. Svo er bara að sjá... að til. Við munum geta boðið íslendingum upp á marga nýja áfangastaði á verði sem ekki hefur sést áður.“ Samkvæmt upplýsingum ffá Heimsferðum flytja hin nýju systurfyrirtæki þess um 170 þúsund far- þega í eigin flugi á þessu ári, aðallega til sólar- stranda við Miðjarðarhaf og Austur-Asíu. Heimsferðir segja í til- kynningu að á næstu mánuðum verði kynntir nýir áfangastaðir fyrir árið 2006 og nýjar þjónustuleiðir fyrir nor- ræna markaðinn, sem fyrirtækið hafi ekki boðið ffam til þessa. Þungaskatturinn afnuminn: Blaðið/Steinar Hugi Dísilolía hömstrað í gær í dag leggst þungaskattskerfið niður og ffá og ffamvegis munu eigendur dísilbíla greiða sérstakt olíugjald í verði hvers lítra. Olíugjaldið er 41 króna, auk virðisaukaskatts, þannig að verðið á olíunni er afar svipað og á bensíninu, eða um krónu lægra. Af því fer um 51 króna til ríkisins. í gær kostaði lítrinn af dísilolíu að- eins um 57 krónur í sjálfsafgreiðslu, svo verðbreytingin er veruleg. Af þeim sökum hefur mikið verið um hamstur á dísilolíu undanfarna daga, sem best sést á því að á lager Esso voru allar tunnur og geymar undir dísilolíu uppurnar. Starfsmenn á bensínstöðvum Skeljungs sögðu sömu sögu. „Ég er búinn að vera að vinna á tveimur stöðvum í dag og það hefur mikil hömstrun verið í gangi. Þeir voru að koma með heilu olíutunnurn- ar og setja á þær,“ sagði starfsmaður við Vesturlandsveg. Dísiloh'a, sem ekki ber olíugjald, verður lituð. Þessa olíu má alls ekki nota á bíla og skráningarskyld öku- tæki almennt. Litaða (gjaldfrjálsa) olían er aðeins ætluð á vinnuvélar ýmis konar, til orkuframleiðslu og fyr- ir smærri skip og báta. Telja hlutfall dísilbíla standa í stað Algengt er að dísilbílar séu um 100-200 þúsund krónum dýrari en hliðstæðar gerðir með bensínvél, en dísilvélamar em jafnan dýrari í fram- leiðslu. Vinsældir dísilbíla hafa auk- ist undanfarin ár þar sem þeir þykja umhverfisvænni en frændur þeirra, Andri segir ferðaskrifstofurnar þijár njóta stærðarhagkvæmni í innkaup- um, bæði hvað varði flug og gistingu og verði menn þess fyrst varir í vem- legri verðlækkun á ferðum til Kanarí- eyja, en Solresor og Heimsferðir flytja samtals tæplega 40 þúsund farþega til Kanaríeyja á ári. Framkvæmdastjóri Solresor í Sví- þjóð er Martin Wirth og ff amkvæmda- stjóri Solia í Noregi er Gunder Moe. Þeir munu báðir starfa áfram og ekki er fyrirhuguð nein breyting á stjóm fyrirtækjanna, en stjómarformaður verður Andri Már Ingólfsson. Hann segir að samkomulag hafi tekist á milli framkvæmdastjóra fyrirtækj- anna þriggja og þar ríki góður andi. „Við hugsum á svipuðum nótum og en einnig hafa orðið talsverðar ffam- farir í gerð þeirra. Að mati Heiðars J. Sveinssonar, sölustjóra B&L, hefur breytingin á olíugjaldi ekki haft veruleg áhrif á bílaval almennings, sem komið er að minnsta kosti. „Við erum með dísil- útgáfur af langflestum fólksbílunum okkar, í Renault, Hyundai og BMW, en hlutfallslega eram við ekki að selja meira af þeim svo nokkru nemi,“ seg- ir Heiðar. „Það er helst í 4x4 línunni ffá Hyundai sem við merkjum aukna spurn að einhveiju marki.“ Heiðar telur þó of snemmt að segja fyrir um hvernig markaðurinn kunni að þróast að þessu leyti, enda séu ým- is teikn á lofti um að frekari breyting- ar verði gerðar á olíugjaldinu innan tíðar. það þykir mér afskaplega farsæl byij- un, að menn hafi svipaðar hugmyndir um það hvemig skuli halda áfram." í tilkynningu ffá Heimsferðum segir að rekstur Solresor og Solia hafi gengið mjög vel undanfarin ár og fyrirsjáanlegur sé methagnaður á árinu 2005. Frekari samþætting rekstrar fyrirtækjanna muni eiga sér stað hægt og rólega, en Heims- ferðir skilgreini nú Island og alla Skandinavíu sem markaðssvæði sitt til vaxtar í ffamtíðinni. „Það er verið að horfa á stærra landakort en þetta er afskaplega góður upphafspunktur. Þetta er okkar fyrsta skref, og það er gott skref. Svo er bara að sjá,“ sagði Andri Pálmi Haraldsson: VIII ekki selja eigin blöð í gær tilkynnti flugfélagið Iceland Express að það myndi hætta sölu á DV og Hér og nú um borð í flugvél- um sínum. Haft var eftir Birgi Jónssyni, ffam- kvæmdastjóralce- land Express, í Fréttablaðinu í gær að þeir sem stæðu að félaginu teldu ritstjórastefnu blaðanna ógeðfellda og að þeir vildu ekki tengja sig við þau. í Morgunblaðinu er haft eftir honum að farþegar hefðu engan kost um hvort þeir sæju forsíðu blaðanna eða ekki meðan þau væru boðin á göngum flugvélanna og því yrði látið af sölu þeirra. Ummælin vekja sérstaka athygli í ljósi þess að Pálmi Haraldsson, jafnan kenndur við Feng og annar aðaleigenda Iceland Express, á einn- ig verulegan hlut í Og Fjarskiptum, sem er móðurfélag 365. Pálmi situr í stjóm Og Fjarskipta og hefur því vemleg ítök í 365. Segja má að Pálmi sé þá í raun einn útgefenda DV og Hér og nú. Styður ummæli framkvæmdastjórans í samtali við Blaðið í gær sagðist Pálmi styðja fullkomlega allt það sem ffamkvæmdastjóri Iceland Ex- press lét hafa eftir sér í gær og þá ákvörðun að hætta að selja blöðin tvö í vélum Iceland Express. „Þetta er gert með fullkomnu sam- þykki mínu.“ Aðspurður um það af hverju þessi ákvörðun væri tekin sagði Pálmi einfaldlega: „Það segir sig sjálft." Hann gaf hins vegar ekk- ert upp um hvort hann hygðist bregð- ast við umflöllun DV og Hér og nú með því að selja hlut sinn í Og Fjar- skiptum eða beita sér á annan hátt í málinu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.