blaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 27

blaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 27
blaðið I föstudagur, 1. júlí 2005 Smáauglýsingar 510-3737 Auglýsingadeild 510-3744 Ritstjórn 510-3799 Skiptiborð 510-3700 blaðiö= Þrjár íslenskar hljóm sveitir hita upp fyrir Snoop Dogg Nú er loksins komið á hreint hvaða íslensku hljómsveitir hita upp fyrir Snoop Dogg og hljómsveitina hans, Snoopadelics, í Egilshöll 17. júlí næst- komandi. Samkvæmt aðstandendum tónleik- anna voru fjölmargar sveitir sem sótt- ust eftir að fá að spila á undan hip- hop-meistaranum en að lokum voru Forgotten Lores, Hjálmar og Hæsta höndin valdar úr þeim hópi. Forgott- en Lores hefur verið ein athyglisverð- asta hiphop-sveit landsins í þó nokk- urn tíma og vekja þeir mikla athygli og hrifningu í hvert sinn sem þeir stíga á svið. Þeir eru nú með aðra plötu í vinnslu en Týndi hlekkurinn kom út fyrir um tveimur árum og fékk einróma lof gagnrýnenda. Reggí- sveitina Hjálma þekkja flestir, enda hafa þeir félagar verið duglegir við að fylgja plötunni Hljóðlega af stað eftir með tónleikum, bæði hér heima sem og erlendis, og eiga í engum vandræð- um með að fá áhorfendur til að dilla sér í takt á dansgólfinu. Hljómsveitin Hæsta höndin með Erp Eyvindarson í fararbroddi er ekki ókunn því að hita upp fyrir stóra rappara, en þeir spiluðu á undan 50 Cent og G-Unit í Laugardalshöllinni seinasta sumar. Auk hljómsveitanna þriggja þeyta plötusnúðarnir Robbi Rampage og Gísli Galdur skífum og halda uppi flörinu um leið og húsið er opnað og á milli atriða. Miðasala er enn í full- um gangi á tónleikana en miðaverð er 5.900 krónur. ÍSANGELSES í Kling og Bang Á laugardaginn verður opnuð sýning- armennirnir Hekla Dögg Jónsdóttir iníSÁNGELSESi'KlingogBanggall- og Megan Whitmarsh sem sýna þar eríi á Laugavegi 23. Það eru myndlist- verk sín. Megan Whitmarsh er starf- Da Vinci Code komin á fullt skrið a n d i í Los A n g e - les, en Hekla Dögg starfaði og bjó þar t i 1 margra ára þar til hún flutti til ís- lands fyrir skömmu. Svo virðist sem þessir tveir staðir, ísland og Los Angeles, eigi ýmislegt sameiginlegt, eins og rótgróna menningu, þjóðtrú, stórbrotna náttúru og veðurfar, sam- tal nútímans við fortíðina og óvænt uppátæki móður nátturu. Öll þessi atriði eru nýtt til sköpunar í sýning- unni, sem er bæði litrík og fjölbreyti- leg. Þar má finna striga með ísaum- uðum smásenum og uppstillingum sem sýna snjómenn, álfa, stúlkur, kristalla, ísjaka, kletta prýdda smá- um sígarettum, gullhálsmenum og silfurfarsímum. Sýningin í Kling og Bang galleríi verður til 24. júlí og er opin fimmtudaga-sunnudaga frá klukkan 14-18. Opnunin er klukkan 17 á morgun. Tökur eru hafnar á myndinni The Da Vinci Code sem gerð er eftir samnefndri bók rithöf- undarins Dans Brown. Það er Ron Howard sem leikstýrir myndinni en hún skartar meðal annars Tom Hanks, Jean Reno, Audrey Tautou, Ian McKellen, Alfred Molina og Paul Bettany í aðalhlutverkum. Tökur hóf- ust á Ritz-hótelinu í París og eiga að halda áfram í umhverfi Louvre-safns- ins, sem gegnir einmitt mikilvægu hlutverki í bókinni, áður en tökulið- ið heldur til Bretlands. Myndin á að vera tilbúin til sýninga í maí á næsta ári.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.