blaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 14
föstudagur, 1. júlí 2005 I blaðið
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri:
Karl Garðarsson. Auglýsingastjóri: Steinn Kárí Ragnarsson. Ritstjórn og auglýsingar:
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510-3700. Símbréf á fréttadeild: 510-3701.
Simbréf á auglýsingadeild: 510-3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar®
vbt.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: Islandspóstur.
Að eyðileggja ímynd sína
Það ber að fagna framtaki Iceland Express, sem í gær hætti að selja
blöðin DV og Hér og nú í vélum sínum. Framkvæmdastjóri félagsins
lét hafa eftir sér að „ritstjómarstefna blaðanna væri ógeðfelld" og að
Iceland Express vildi ekki láta tengja sig við hana. Þama er félag sem
bmgðist hefur við af ábyrgð og festu. Óskandi væri að önnur fyrirtæki
fæm að dæmi Iceland Express.
Áfram verður þó væntanlega hægt að kaupa DV og Hér og nú í versl-
unum Baugs og fer Bónus þar fremst í flokki. Þar munu áfram verða
blaðastandar við kassana þar sem boðið verður upp á afurðir félagsins.
Á veggjum andspænis kössunum verður áfram bmgðið upp risastórum
auglýsingum af forsíðu DV, þar sem smjattað er á einkalífi þekktra og
óþekktra einstaklinga í þjóðfélaginu. Þar verða áfram yfirlýsingar um
einkahagi fólks, fyrirsagnir sem gera ekkert annað en að meiða þá sem í
hlut eiga og valda nánustu ástvinum þeirra sársauka. Allt þetta verður
áfram í boði Baugs, helsta útgefanda DV og Hér og nú. Þar á bæ hafa
menn litlar áhyggjur, enda upplýsti Skarphéðinn Berg Steinarsson,
stjórnarformaður 365 miðla, í Blaðinu í gær að stjórnarfundur yrði ekki
haldinn fyrr en í byijun ágúst. Fram að þeim tíma, að minnsta kosti, hef-
ur félagið gefið veiðileyfi á æm einstaklinga. Fram að þeim tíma mega
DV og Hér og nú hamast á þeim sem falla ekki í kramið hjá ritstjórnum
blaðanna. Fram að þeim tíma fá menn eins og Jónas Kristjánsson, Mika-
el Torfason, Eiríkur Jónsson og Símon Birgisson að leika lausum hala.
Líklega gera forsvarsmenn 365 sér vonir um að málið verði gleymt á
þeim tíma þannig að ekkert þurfi að gera.
í leiðara Blaðsins í fyrradag var fjallað um ábyrgð eigenda og útgefenda
- ábyrgð Baugs í þessu tilviki. Það er engu líkara en stjórnarformaður
365 átti sig ekki enn á þeirri afar eríiðu stöðu sem hann er kominn í. Og
það sem verra er - honum viróist vera nákvæmlega sama um ærumeið-
ingar og mannorðsmorð þeirra miðla sem hann stýrir. Málsvörn mann-
orðsmorðingjans er nefnilega engin í þeim tilvikum sem hafa komið upp
undanfama daga.
Staða Baugs Group er þó undarlegri í öllu þessu máli. Hér er félag sem
eyðir hundruðum milljóna króna í að bæta og skapa sér góða ímynd. Fá-
um félögum hefur enda tekist það betur á liðnum árum, þökk sé elju og
dugnaði þeirra feðga, Jóhannesar Jónssonar og Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar. Þeir hafa verið í fararbroddi þeirra sem hafa bætt lífskjör alþýðu
manna með lægra vöruverði. Því er það vægast sagt undarlegt að þessari
miklu vinnu og þessum glæsilega árangri skuli vera hent út um glugg-
ann í einu vetfangi, í þeim tilgangi einum að halda úti mannskemmandi
slúðurblöðum. Því er vart trúandi að þessir menn geti, samvisku sinnar
vegna, staðið í þessari útgáfustarfsemi mikið lengur. Því fyrr sem því
lýkur, því betra fyrir alla aðila. Það er fyrir löngu komið nóg.
Giftingar
samkynhneigðra
Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylk-
ingarinnar
Ússur Skarphéðinsson
Það er grundvallarréttur sérhvers
trúaðs manns að fá blessun kirkj-
unnar yfir samband sitt við annan
einstakling. Hvers vegna mega sam-
kynhneigðir þá ekki gifta
sig í kirkju ef þeir vilja?
Guð fer ekki í mannagrein-
arálit. Ef samband byggist
á þeirri gagnkvæmu ást og
virðingu, sem ergrundvöll-
ur sérhvers langvarandi
sambands tveggja einstak-
linga, er fráleitt að kyn-
hneigð skipti máli. Það
er ranglátt og óveijandi á
okkar tímum að kirkjan
og löggjafinn séu í farar-
broddi fyrir mismunun
gegn samkynhneigðum
Samkynhneigðir mega
nú til dags búa í staðfestri
samvist. Ég var ráðherra
í ríkisstjórn Davíðs Odds-
sonar þar sem fram komu
jákvæð kynslóðaskipti
um viðhorf til samkyn-
hneigðra. Sú ríkisstjóm
lagði til með mikilli ánægu
að staðfest samvist yrði
heimiluð. Þáverandi dóms-
málaráðherra, Þorsteinn
Pálsson, gekk enn lengra og að hans
frumkvæði var samþykkt lagaheim-
ild um sameiginlega forsjá barna
samkynhneigðra í staðfestri samvist.
Vegna þessara nýmæla voru íslend-
ingar því um hríð fremstir allra þjóða
varðandi réttindi samkynhneigðra.
Þörf á að breyta
hjúskaparlögum
Síðan hafa réttarbætur samkyn-
hneigðum til handa verið alltof
hægar. Við þurfum því að taka
ný skref varðandi réttarbætur
handa samkynhneigðum. Ann-
ars vegar þarf strax á næsta
þingi aö leiða í lög að þeir hafi
sama rétt til að
frumættleiða og aðr-
ir, - enda fari þeir í
gegnum sama nálar-
auga hins opinbera
og við hin sem höf-
um ættleitt börn.
Hins vegar verður
að breyta hjúskap-
arlögum þannig að
samkynhneigðir eigi
sama kost og aðrir á
því að fá kirkjulega
vígslu. Kanadíska
þingið hefur nýlega
samþykkt lög sem
leyfa slíkt, og Belgía
og Holland hafa þeg-
ar gert hið sama. ísland á
að feta í þessi fótspor. Ég
tel að vísu að það eigi ekki
að þvinga forstöðumenn
trúarsafnaða til að fram-
kvæma slíka vígslu ef það
er andstætt skoðunum
þeirra, en heimildin á að
vera fyrir hendi. Það er nóg af klerk-
um sem eru reiðubúnir til að vígja
samkynhneigða í hjónaband ef lögin
heimila það á annað borð.
Lög í andstöðu við
stjórnarskrána
Stjórnarskránni var breytt árið
1995, þar sem sett var inn ákvæði
sem með ótvíræðum hætti var þann-
ig túlkað af okkur sem samþykktu
þau lög, að samkynhneigðum væri
tryggt algert jafnræði á við aðra. í
eldri lögum frá 1993, sem gilda um
hjúskap, er hins vegar ákvæði um
skilyrði fyrir hjónavígslu þar sem
fortakslaust er sagt að hjónaband
verði að vera milli karls og konu.
Þessi eldri lög eru einfaldlega í
andstöðu við stjórnarskrána eftir
breytinguna frá 1995. Þau eru líka í
andstöðu við almennan skilning sam-
tímans á stöðu samkynhneigðra. Lög-
in eigaekki að banna fólki það sem eng-
an meiðir. Kirkjan og löggjafinn mega
ekki viðhalda gömlum fordómum.
Þess vegna munum við frjálslyndir
þingmenn beita okkur fyrir nauðsyn-
legum breytingum á þessu ákvæði
strax í haust - ef ríkisstjórnin gerir
það ekki sjálf.
http://ossur.hexia.net
„Það er
nóg af
klerkum
sem eru
reiðubúnir
til að vígja
samkyn-
hneigða í
hjónaband
ef lögin
heimila
það á ann-
að borð.“
Nýr umboðsaðili
UPS á íslandi!
Frá og meó 1. júlí munu Vallarvinir ehf. taka viö umboði
hraósendingafyrirtækisins UPS á íslandi. Þessi breyting er
liður í aó bjóóa vióskiptavinum UPS aukna og bætta þjónustu
sem kynnt verður nánar á næstu vikum.
Nýtt þjónustunúmer UPS er 420 0900
Vallarvinir ehf.
Authorized Service Contractor for UPS
Bygging 10, Keflavikurflugvöllur
P.O. Box 40, IS 232 Keflavík
Sími 420 0900 - Fax 420 0901
http://www.express.is