blaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 24

blaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 24
Easmm. m föstudagur, 1. júlí 2005 I blaðið Sagnir og ævintýri á Siglufirðí <olbrun@vbl.is Helen Mirren. Verður hæst launaðasti sjónvarpsleikari Breta fyrir leik í síðustu þáttum af Prime Suspect. Mirren hæst launaðasti sjónvarpsleikarinn Helen Mirren telst örugglega í hópi bestu leikkvenna heims. Hún er nú orðin hæst launaðasti sjónvarpsleik- ari Breta og er það í fyrsta sinn sem konu hlotnast sá titill þar í landi. Hún fær um 22,4 milljónir íslenskra króna á klukkutíma fyrir leik sinn í nýjum þáttum af Prime Suspect, eða alls 90 milljónir. Þættimir verða sýnir á næsta ári. Um 11 milljónir manns horfðu á síðasta Prime Su- spect þáttinn í Bretlandi en þessi nýi þáttur verður sá síðasti. Mirren lék aðalpersónuna, lögreglukonuna Jane Tennison, fyrst árið 1991. Mirren öðl- aðist fyrst frægð með hinu þekkta Royal Shakespeare Company seint á sjöunda áratugnum og var stundum kölluð „kynbomban í Stratford". Hún hefur leikið í fjölmörgum kvikmynd- um, þar á meðal Gosford Park og Ca- lendar Girl. Dagana 6.-10. júlí verður Þjóðlagahá- ;íðin á Siglufirði haldin í sjötta sinn. Hátíðin er handhafi Eyrarrósarinnar svonefndu, en hún var veitt snemma i þessu ári sem viðurkenning fyrir nenningarstarf á landsbyggðinni. Að pessu sinni er hátíðin haldin undir nerkjum sagna og ævintýra. Sagnadansar verða kenndir á hátíð- nni, Hlöðver Sigurðsson syngur „Mal- irastúlkuna fógru" eftir Schubert, ! nýrri íslenskri þýðingu Guðmund- ar Hansen, og sérstakt námskeið í sagnamennsku verður á hátíðinni. Hæst ber þó tónleika Ensemble Un- com frá Austurríki. Flokkurinn leik- ir tónlist frá Ítalíu sem skráð var á ámum hinna víðfrægu sagna úr „Tí- iægru" eftir Boccaccio eða frá 14. öld. Erótískar kímnisögur verða lesnar úr safhinu og tónlist leikin á milli lestra í uppmnaleg hljóðfæri. Lesarar era Jóhanna Vigdís Amardóttir og Theo- iór Júlíusson leikarar. Tónleikamir /erða endurteknir í Borgarleikhús- nu 7. júlí. Heimstónlist Morska þjóðlagasöngkonan Astri Skarpengland flytur söngva frá Ögð- jm og Þrændalögum, ásamt hljóð- iæraleikuram, og norskar sagnir /erða ekki langt undan. Boðið verður jpp á námskeið í norskum dönsum og söngvum, sem og í tyrkneskri tónlist, yrir tónlistamema undir leiðsögn Ha- ijis Tekbilek frá Tyrklandi, en hann semur auk þess fram á tónleikunum ísamt Sigtryggi Baldurssyni ogStein- Ensemble Unicorn frá Austurríki. Flokkurinn leikur tónlist frá Ítalíu. grími Guðmundssyni. Á meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni era Renata Ivan, sem leikur þjóðlagaútsetningar Ríkarðs Amar Pálssonar á píanó, Kammerk- ór Noðurlands framflytur nýtt verk eftir Snorra Sigfús Birgisson, þjóð- lagasveitin Islandica flytur siglfirsk kvæðalög í eigin út- setningum, djasstr- íóið Flís minnist Hauks Morthens og þjóðlagasveit Tónlist- arskólans á Akranesi fléttar saman írska þjóðlagatónlist og ljóðalestur. Loks leik- ur Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, undir stjóm Roberts Gutter frá Bandaríkjunum. „Rhapsody in blue“ eftir Gershwin og „Ní- undu sinfóníu Dvor- sjaks“. Einleikarar era Víkingur Heiðar Ólafs- son á píanó, Jóhann Nardeau á trompet og Matthías Nardeau á enskt horn. Tónleikamir verða endurteknir í Neskirkju í Reykjavik 11. júlí. Námskeið og fyrirlestrar Boðið verður upp á flölda námskeiða og tvo fyrirlestra á hátíðinni. Auk norskra dansa, tyrkneskrar tónlist- ar og sagnamennsku, gefst tækifæri til þess að læra rímnakveðskap með Steindóri Andersen kvæðamanni, hreyfileika og rytmaspuna hjá Kristínu Valsdótt- ur tónmennta- kennara, mynd- listarkonurnar Stefanía Stefáns- dóttir og Gerla kenna flókagerð og roðsaum í ull- arklæði. Þá leið- beinir Dóra G. Jónsdóttir gull- smiður mönnum í íslenskri silfur- smíði, Hildur Há- konardóttir gengur til grasa og mat- reiðir, Guðmundur Magnússon tálg- ar með nemendum sínum úr tré og loks heldur Kolfinna Sigurvinsdóttir dansnómskeið fyrir eldri borgara og kennir svokallaða senjor-dansa. Böm- um er einnig boðið upp á dansa, leiki og leiklistamámskeið, og unglingum „stomp“. Loks heldur Michael Posch fyrirlestur um tónlist frá tímum Bocc- accios og Vésteinn Ólason segir fró sagnadönsum okkar íslendinga. Hlöðver Sigurðsson. Syngur „Mal- arastúlkuna fögru“ eftir Schubert á þjóðlagahátíð á Siglufirði. Bók um elsta lýðveldi veraldar Sigurður A. Magn- ússon rithöfundur hefur nóg að iðja þessa dagana. Hann er nýkominn heim eft- ir langa hringferð um Grikkland og Eyj ahaf- ið og nýlega skilaði hann til bókaforlags- ins Sölku þýðingum á tveimur bamabók- um eftir bandaríska höfundinn Brace McMillan. „Bruce hef- ur skrifað fjölda bóka um ísland og er marg- verðlaunaður vestan- hafs. Nýju bækurnar nefnast „Til fiskiveiða fóra“ og „Hænur era hermikrákur“ og er sú seinni mynskreytt af Gunnellu," segir Sigurður. „Ég hef einnig lokið við að semja bók um elsta lýðveldi veraldar, munkríkið Aþos, sem stofnsett var árið 963 og hefur verið undir vemd Miklagarðskeisara, Tyrkjasoldáns og Grikklandsstjórnar, en lýtur eig- Sigurður A. Magnússon. Hefur lokið við bók um elsta lýðveldi veraldar og er að skrifa bók um örlagavalda 20. aldar. in ríkisstjóm og hef- ur ekki leyft neinar kvenkynsverur innan sinna landamæra, fuglar og flugur vit- anlega undanskilin. Bókin verður ríkulega myndskreytt og kem- ur út hjá Sölku að ári. Loks er ég hólfnaður með verk sem ég hef lengi hsift í smíðum og nefnist „Örlagavaldar tuttugustu aldar". Þar flalla ég um 20 helstu skaðvalda og velgerð- armenn liðinnar ald- ar. Veit ekki hvenær því vandasama verki lýkur.” Fyrr á þessu ári var Sigurður gerður að fyrsta heiðursfélaga Bandalags þýðenda og túlka. „Ég er vitanlega sérlega þakklátur fyrir heið- urinn og einkanlega fyrir umsögnina sem fylgdi útnefningunni þar sem bent er á þýðingar mínar af íslensku á ensku," segir Sigurður. Metsölulistinn - erlendar bækur 1. Whiteout Ken Follett 2. The Color of Death Elizabeth Lowell 3. He's Just Not That Into You Berendt & Tuccillo 4. Hat Full of Sky Terry Pratchett 5. Fashion History Taschen Verlag 6. Lazarus Vendetta Robert Ludlum & Patrick Larkin 7. Design of the 20th Century Taschen Verlag 8. Sunday Philosophy Club Alexander McCall Smith 9. The Earth From the Air Yann Arthus-Bertrand 10. Black Rose Nora Roberts Listinn er gerður út frá sölu dagana 22.6.05-28.6.05 í Bókabúðum Máls og menningar, Eymundsson og Penn- anum. Blokkflautukvintettinn Fontanella leikur á sumartónleikum í Skálholti um helgina. Dagskrá sumartónleika í Skálholti Laugardaginn 2. júlí hefjast sumartónleikar í Skálholts- kirkju. Dagskrá helgarinnar er eftirfar- andi: Laugardagur 2. júlí kl. 14.00 Erindi í Skálholtsskóla: Árni Heimir Ing- ólfsson fjallar um efnisskrá Carminu. Kl. 14.55. Tónlistarsmiðja ungafólksins í Skálholts- skóla. Kl. 15.00 Tónleikar kammerkórsins Carmina. Ljóðaljóðin í tónlist endurreisnarinnar. Kl. 17.00 Blokkflautukvintettinn Fontanella frá Englandi. Sunnudagur 3. júlí Kl. 15.00 Blokkflautukvintettinn Fontanella frá Englandi. Kl. 17.00 Messa - Nýtt verk eftir Huga Guð- mundsson. Carmina frumflytur.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.