blaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 18

blaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 18
IfXJpTJ kynjanna föstudagur, 1. júlí 2005 I blaðið Hann er bara ekki svo hrifinn af þér - Bókin sem kennir konum að sjá hlutina í réttu Ijósi... halldora@vbl.is <■111:1: „1 Bókín He's Just Not That Into You hefur tröllriðið markaðnum í Bandaríkj- unum og hefur undanfar- in misseri einnig verið að ryðja sér til rúms víðs vegar í heiminum og vak- ið mikil viðbrögð og eftir- tekt. Höfundamir, Greg Behrendt og Liz Tucc- illo, sameina þama krafta sína og reyna eftir fremsta megni að koma konum í skiln- ing um sannleikann á bak við hegðun karlmEuina þegar til kastanna kemur, en þau vilja meina að konur misskilji upp til hópa skilaboð karlmanna og búi til af- sakanir þeim til handa um ástæður þess hversu erfitt geti verið að ná at- hygli þeirra. Setningar á borð við t.d.: „Hann vill ekki eyðileggja vináttuna," Jlonum stafar ógn af mér og því fer hann hægt í sakimar," „Það er svo mikið að gera hjá honum," og „Hann er auðvitað bara nýkomin úr sam- bandi,“ em að mati tvíeykisins dæmi- gerðar þegar konur reyna að sann- færa sjálfar sig og vinkonur sínar um að það hljóti nú að vera önnur ástæða fyrir hegðun hans en sú að hann skuli hreinlega ekki vera spenntur "HIAIJI "<CIU.o he 's j"si . nOtihm "u°you * fyrir áffamhald- andi sam- bandi. í bókinni sýna höf- undar kon- um hvem- ig bregðast eigi við ank- annalegri hegðun karl- manna og segja að þrátt fyrirfógurfyr- irheit séu þær hreinlega að sóa tíma sín- um til einskis. Karlmenn ekki eins flóknirog kon- ur vilja halda fram Greg og Liz segja aðaltilganginn með bókinni vera að sýna konum ffam á að karlmenn séu einfaldlega ekki eins flóknir og konur haldi, þó svo að þeir vilji kannski að þær standi í þeirri trú. Það séu engin misskilin skilaboð; ef hann er of upptekinn til að hitta hana, heldur ffamhjá þótt hann segist elska hana, sýnir henni lítinn áhuga og setur hana neðarlega í forgangsröðina, er hann hreint út sagt ekki ástfanginn og ekki ástæða til að halda í vonina um það á einn né annan hátt. Konur eiga ekki að vera í afneitun þegar viðkemur körlum og gera sér grein fyrir því hvemig í pott- inn er búið. Það sem hins vegar hefur í aldanna rás gefið konum hugmynd um annað en í raun er, gæti, að mati höfund- anna, verið það að karlmenn lýsi ffek- ar skoðun sinni í ffamkvæmdum en í tali. Þau vilja meina að ansi margt renni stoðum undir að karlmenn séu, öfugt við kvenfólkið, hræddir við að segja hug sinn ef þeir hafa ekki áhuga á konunni - en hvort það er af ótta við að særa konuna eður ei skal ósagt látið. Allt vitlaust í sölu eftir umfjöll- un í Opruh Eftir að He's Just Not That Into You vom gerð góð skil í þætti Opruh Win- ffey ætlaði allt irni koll að keyra í Bandaríkjunum og konur flykktust í bókabúðimar með það fyrir augum að ná eintaki af bókinni. í kjölfarið hafa margar komið ffam og talað um kosti hennar, að hún sé ein sú besta þegar viðkemur þessum efnum og að hver og ein geti virkilega farið að sjá hlutina í réttu ljósi. Liz Tuccillo segist hafa vitað að bókin yrði afar vinsæl um leið og þau ákváðu að skrifa hana en hún stend- ur í þeirri trú að margt breytist í sam- skiptavenjum kvenna við hitt kynið í kjölfar bókarinnar. „Ég vissi um leið að bókin yrði tekin fyrir í Opmh og öllum þáttum, auk þess sem konur myndu breytast til muna og taka mark á því sem við emm að segja. Það er æðislegt að heyra um allt að konur séu að hlusta á mann og taki sér tak,“ segir Liz, og bætir því við að það sé góð tilfinning að vera með þessu jafnvel að bjarga mörgum kon- unum ffá mikilli depurð. Skyndilega á lausu - Fimm þrep í áttina að betri líðan halldora@vbl.is Setningin „Lífið er ekki bara dans á rósum“ á oft við þegar kemur að sam- skiptum kynjanna, en flestir lenda einhvem tímann á lífsleiðinni í því að vera hafnað af þeim sem hann elskar. Höfnun sem slík, eða óviðráðanlegar aðstæður, sem gera það að verkum að til sambandsshta þurfi að koma, geta riðið einum einstaklingi að fullu og gert líf hans óbærilegt í ákveðinn tíma. Þó svo að fólk hafi sjálfl viljann fyrir því að ganga úr sambandinu breytir það ekki þeirri staðreynd að viðkomandi er orðinn einn í tilver- unni og þarf að feta sig undir nýjum kringumstæðum. Fæstir fara í gegnum ævina án þess að verða fyrir þessari reynslu en hún getur verið mörgum afar erf- ið viðureignar og hleypt af stað alls kyns illgresi sem gert hefur sér stað í skúmaskotum sálarinnar. • Ekki fara í afneitun. Sumir hverjir halda áfram upp á hluti sem makinn átti og bíða með það í lengstu lög að fjarlægja tann- burstann eða aðra persónulega hluti sem viðkomandi á. Það er mikill misskilningur, og gerir hlut- ina enn verri fyrir vikið. Mikilvægt er að gera sér strax grein fyrir stöðu mála og halda þannig áfram eigin lífi með það fyrir augum að koma sér í gott og betra jafnvægi. Að fara í ræktina, lesa sjálfshjálp- arbækur, stunda einhvern félags- skap eða áhugamál og margt fleira getur hjálpað allverulega til. • Hleyptu reiðinni út. Það er allt í lagi að taka mynd af fyrrver- andi og öskra á hana þegar reiðin blossar upp. Aldrei er gott að bæla slíkar tilfinningar með sér og mun betra að taka á hlutunum og við- urkenna reiðina hjá sjálfum sér. I CAMBRIDGE A EIUGLAIMDI Hafðu samband NÚNA weststarmarketing@btinternet.com eða ísíma 00447748424233 BÝÐUR UPP Á ALLT, FLOTTAR VERSLANIR, TRÁBÆRA.....VEITINGASTAÐI, GLÆSILEGA GOLFVELLI, GET ÚTVEGAÐ HÓTEL MEÐ ÖLLU SEM ÞARF FYRIR ÁRSHÁTIÐINA. Cambridge er aðeins í 45 mín. fjarlægð frá miðborg London með lest. Geteinnig útvegað miða á knattspyrnuleiki Varast skal hins vegar að ganga of langt, en reiði er tilfinning sem getur auðveldlega leitt til haturs - það vill enginn. Kláraðu bara reið- ina á sómasamlegan hátt og haltu svo áfram leiðinni til betra lífs. • Talaðu við þriðja aðilann. í stað þess að vera síhringjandi í þinn fyrrverandi og ræða málin við hann/hana skaltu tala við einhvern sem þú getur rætt opinskátt við um tilfinningarnar. Sálfræðimeð- ferð getur komið sér vel, auk þess sem mjög gott er að létta á sér við fjölskyldu eða nánustu vini. Mikil- vægt er að tala við fólk þar sem gagnkvæm virðing er og þú getur hlustað á ráð þeirra. Þá er gott að rifja upp verstu hliðarnar á sam- bandinu svo auðveldara sé um vik að gleyma hinu góða. • Taktu þér taki og farðu út. Þó svo að eðlilegt sé að vera heima við fyrstu dagana og vilja ekki mikið fara út á meðal fólks er afar nauðsynlegt að gera það á ákveðnum tímapunkti. Það kem- ur að því að þú verður hreinlega að gera þig fína/n og hitta fólk, en að vera í góðum félagsskap kem- ur í veg fyrir að yfirgengileg dep- urð geri vart við sig. Ekki hanga heima og drekkja sorgum þínum, né liggja uppi í rúmi og stara upp í loftið - skelltu þér út og hittu fólk - staðan verður án efa mun betri. • Hugsaðu fram í tímann. Ekki festast í nútíðinni, hugsaðu með þér að framtíðin eigi eftir að bera eitthvað gott í skauti sér og að innan tíðar verði líðanin önnur. Þá getur sumum reynst vel að fara á stefnumót eftir ákveðinn tíma til þess að gera sér sem best grein fyrir stöðu sinni - að þú sért ekki í sambandi og stjórnir þér sjálf/ur.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.