blaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 6

blaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 6
föstudagur, 1. júlí 2005 I blaðið Gagnrýna gjaldtöku fasteignasala Neytendasamtökin gagnrýna fast- eignasala harðlega í yfirlýsingu og segja óljós vinnubrögð í sambandi við innheimtu umsýsluþóknunar skaða nejdendur. Þau vinnubrögð tíðkist meðal fasteignasala að innheimta umrædda þóknun af kaupendum fast- eigna, en Neytendasamtökin segja að klausu um innheimtu slíkra gjalda sé oft og tíðum skotið inn í kauptil- boð og því komi gjaldtakan aftan að íbúðakaupendum. Lýsa neytenda- samtökin því yfir að „fasteignasalar geti ekki byggt neinn rétt á lítilli grein sem skotið er inn í kauptilboð", eins og segir orðrétt í yfirlýsingunni. Telja samtökin að gera þurfi sérstak- an samning við fasteignakaupendur, ef innheimta á umrædda þóknun og kynna kaupanda hvað í henni felist. Eðlilegt að slíkt gjald sé inn- heimt Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, segir mjög mis- munandi hvort fasteignasalar inn- heimti umsýslugjald eða ekki. Ljóst sé þó að slíkt sé fullkomlega leyfilegt. Ástæðan fyrir innheimtu gjaldsins lægi í því að fasteignasalar sinni fjölþættri þjónustu fyrir kaupendur fasteigna og þeim bæri að veija hag þeirra í einu og öllu. Grétar bendir á að milli 80 og 90% þeirra lögsókna, sem fasteignasalar yrðu fyrir, væru frá kaupendum fasteigna komin. Þær gerðu kröfu um fullkomna ráð- gjöf frá fasteignasala sínum og að ef honum yrði á gæti kaupandi sótt rétt sinn, þ.e. stefnt fasteignasala og kraf- ist skaðabóta. Því væri fullkomlega réttlætanlegt að krefja kaupendur um greiðslu fyrir veitta þjónustu. „Það er hins vegar ákaflega mikil- vægt að samningur um þetta sé gerð- ur við kaupanda áður en fasteignavið- skipti eiga sér stað og að kaupanda sé skýra frá því að slíkt gjald verði tekið,“ sagði Grétar að lokum. z SSODIAC Stööugir - Áreiöanlegir Tlraustir slöngubátar Zodiac áratuga reynsla á íslandi Verð fr* 98.197 kr. ELLINGSEN Opiö virka daga kl. 8-18, laugard. kl. 10-14 Sími 580 8500 Milljarðar í iþróttastyrki á næstu árum Samningur milli íþróttafélaganna og Reykjavíkurborgar var undirritaður í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. í gær voru undirritaðir samstarfs- samningar upp á 4,4 milljarða króna milli Reykjavíkurborgar, ITR, ÍBR og 16 íþróttafélaga í Reykjavík. Samningarnir eru vegna ár- anna 2005-2008 og taka á ferða-, húsaleigu-, vallar- og æfingastyrkjum til fé- laganna. Einnig er gert ráð fyrir styrkjum vegna ráðninga íþróttafull- trúa hjá íþróttafélögun- um, sem og til reksturs skrifstofu félaganna og annarrar þjónustu. Á að bæta þjónustu Samningarnir kveða á um samstarf Reykjavík- Ríkið hætti að dreifa klámi Fulltrúar nokkurra kvennasamtaka hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem stjómvöld eru meðal annars hvött til að stöðva dreifingu ríkisfyrirtækja á klámi. í yfirlýsingunni er bent á að Síminn hafi um nokk- urt skeið dreift og selt aðgang að stöðinni Adult Channel í gegnum breið- bandið. Ennfremur að Skjár 1, sem er að hluta til í eigu Símans, hafi nýverið gert samn- ing við sjónvarpsstöðina Playboy TV um dreifingu á klámefni. Að lok- um er bent á að fyrirtæki í einkaeigu stundi einnig dreifingu og sölu klám- efnis. 365 ljósvakamiðlar eru nefndir sérstaklega í þessu samhengi og bent á að fyrirtækið selji aðgang að klám- stöðinni Private Blue í gegnum Digital ísland. Dreifing á klámi bönnuð í yfirlýsingunni er vitnað í 210. grein hegningarlaga þar sem sagt er: Ef klám birtist á prenti, skal sá, sem ábyrgð ber á birtingu þess eftir prentlögum, sæta sektum eða fang- elsi allt að 6 mánuðum. Sömu refs- ingu varðar það að búa til eða flytja inn í útbreiðsluskyni, selja, útbýta eða dreifa á annan hátt út klámrit- um, klámmyndum eða öðrum slíkum hlutum, eða hafa þá opinberlega til sýnis. ÞAKMÁLUN S: 697 3592/8441011 urborgar, ÍBR og viðkomandi íþrótta- félaga, þar sem m.a. koma fram þau verkefni sem félögin taka að sér að sinna. Þá er skilgreint hvað Reykja- víkurborg leggur til vegna samstarfs- ins. Markmið samninganna er m.a. að skapa íþróttafélögunum sem best- ar aðstæður til að reka starfsemi sem tryggir íbúum hverfanna fyrsta flokks þjónustu með hliðsjón af íþróttanámskrá félaganna bæði hvað varðar þjálfun barna, unglinga og af- reksfólks og þjónustu vegna almenn- ingsíþrótta og félagsstarfs. Tryggja öflugt íþróttastarf í tilkynningu vegna málsins segir að með samningunum sé Reykja- víkurborg og borgarbúum tryggt öflugt íþróttastarf í viðkomandi hverfi, heilsu og félagslífi 'X. borgaranna til heilla. Þau félög sem gerður var samningur við eru: ÍBR, KR, Valur, Fram, Ármann, Þróttur, Víking- ur, ÍR, Leikn- ir, Fylkir, Fjölnir, TBR, Skautafélag- ; ið Björninn, ; Skautafélag Reykjavík- J ur, Júdófé- lag Reykja- víkur og Sundfélagið Ægir. lotto.is Sparisjóður Hafnarfjarðar: Allt enn á huldu um kaup á stofnfjárhlutum Enn hefur ekkert komið í Ijós um hugsanleg uppkaup á stofnfjárhlut- um í Sparisjóði Hafnarfjarðar, sem þrálátar fregnir hafa verið um und- anfama daga. Stjórn sparisjóðsins fundaði á miðvikudag, en Páll Páls- son stjórnarformaður vill ekkert gefa upp um efni hans og ber við banka- leynd. Ljóst má vera að þar hafi meint uppkaup borist í tal, enda ber að til- kynna öll viðskipti með stofnfjárhluti til stjórnar sparisjóðsins, sem þarf að samþykkja þau til þess að af þeim geti orðið. Ef fregnir um að meiri- hluti stofnfjárhluta sé þegar seldur eða kaupsamningar hafi verið gerð- ir þar um, má þó ljóst vera að sam- þykki stjórnarinnar er formsatriði eitt. Ekki hefur fengist upplýst hvort tilkynning um stofnfjársölu hafi ver- ið lagðar fyrir funchnn, en á hinn bóginn hefur legið fyrir beiðni fimm stofnfjárhafa um stofnfjárhafafund. Á honum hyggjast þeir óska upplýs- inga um það hvað stjómin hyggst fyr- ir með sjóðinn. Blaðið greindi frá því fyrir skömmu að orðrómur væri uppi um að KB banki stæði að baki kaupunum í gegn- um Sparisjóð Kaupþings, en lög um sparisjóði heimila þeim að sameinast öðrum sparisjóðum næsta hindrunar- laust, meðan verulegar tálmanir em fyrir yfirtöku annarra fjármálastofn- ana á sparisjóðum. Jónas Sigurgeirs- son, forstöðumaður fjárfestatengsla KB banka, segir þessar vangaveltur úr lausu lofti gripnar. „Það er alveg á hreinu, KB banki stendur ekki á bak við þessi kaup eða kauptilboð að nokkru leyti.“ Alþjóðlegt vináttuhlaup á íslandi Frá upphafi hlaupsins í New York 16. apríl. Á morgun kemur alþjóðlega Vináttu- hlaupið, „World Harmony Run“, til íslands og ætlar Alfreð Þorsteinsson, forseti borgarstjórnar, að ýta því úr vör með því að tendra á kyndli sem fer svo hringinn í kringum Iandið. Hlaupið hófst í New York borg 16. apríl og verður kyndillinn borinn á milli 70 landa í öllum heimsálfum til að efla vináttu, skilning og umburðar- lyndi. Farið verður af stað frá Höfða klukkan 10 á morgun en hópur hlaup- ara frá maraþonliði Sri Chinmoy ætlar að passa að kyndillinn komist þá 1.534 kílómetra sem hringurinn í kringum fsland er. Aðstandendur hlaupsins hvetja alla til þess að taka þátt og stíga þannig skref í þágu al- þjóðlegrar vináttu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.