blaðið - 01.07.2005, Page 4

blaðið - 01.07.2005, Page 4
föstudagur, 1. júlí 2005 I blaðið 25% aukning á innflutningi Verðmæti þeirra vara, sem fluttar voru inn til landsins fyrstu fimm mánuði ársins, var rúmum 20 millj- örðum hærra en fyrir sama tímabil í fyrra. Er þetta um fjórðungi meira en á síðasta ári og orsakast aðallega vegna lágs gengis dollars en mest varð aukningin í innflutningi á fólks- bflum, hrá- og rekstrarvörum og fjár- festingarvöru. Vöruskiptahalli Halli var á vöruskiptum við útlönd og nam hann rúmum 24 milljörðum en vörur fyrir tæpa 80 milljarða voru fluttar út á þessum tíma og er það 4,2% aukning ffá því í fyrra. Sjávar- afurðir voru 61% alls útflutnings og iðnaðarvörur 34% og var það hvort tveggja aukning frá fyrra ári. Sam- dráttur varð hins vegar í útflutningi á lyfjum og lækningatækjum. Hrókurinn: Nýtt starfs- ár hefst á Ströndum Hrafn Jökulsson helgar sig ritun Skáksögu íslands Nýtt starfsár Skákfélagsins Hróks- ins hefst í dag og er því hrundið úr vör í Trékyllisvík í Árneshreppi á Ströndum með minningarskákmóti um Jónu Sigurveigu Guðmundsdótt- ur frá Stóru-Ávík. Hrókurinn hefur á undanfómum ámm byggt upp skák- lífið í Árneshreppi, sem er nyrsta byggða ból á íslandi. Hið nýja starfsár Hróksins mark- ast af miklum fjölda skákviðburða og grasrótarstarfi sem teygir sig frá íslandi til Afríku. Allir grunnskólar á íslandi verða heimsóttir, haldið uppi vikulegu starfi á Bamaspítala Hringsins og í Vin, athvarfi Rauða krossins, auk þess sem fangamir á Litla-Hrauni verða heimsóttir tvisv- ar í mánuði. Þá er Hrókurinn í sam- vinnu við Taflfélag Reykjavíkur að undirbúa þróttmikið starf fyrir börn og unglinga í Skákhöll Reykjavíkur í Faxafeni, þar sem TR, elsta taflfélag landsins, hefur haft aðsetur. Jafnframt verða nú þau tímamót hjá Hróknum að Hrafn Jökulsson, sem verið hefur forseti félagsins frá stofnun 1998, mun næsta árið helga sig ritun Skáksögu íslands. Hrafn mun þó áfram tengjast verkefnum og starfi Hróksins en burðarásar næsta árið verða Henrik Danielsen, Kristi- an Guttesen og Máni Hrafnsson, sem sinna kennslu, skólaheimsóknum og viðburðum fyrir böm og fullorðna. Gert er ráð fyrir að félagið standi fyrir alls um 600 viðburðum á starfs- árinu og mun Hrókurinn sem fyrr starfa í anda einkunnarorða FIDE, alþjóðaskáksambandsins: Við erum ein fjölskylda. ■ lcelandExpress: í bullandi samkeppni Birgir Jónsson, framkvæmdastjóri IcelandExpress, segir að kaup Sterl- ing - sem er systurfélag Iceland- Express - á Mærsk Air opni nýja markaði fyrir félagið. „Framtíðin er nokkuð björt, þetta styrkir okkur al- veg gríðarlega," segir Birgir. Hann nefnir að með þessu sé IcelandEx- press t.d. ekki lengur lítið félag sem komi þrisvar á dag til Kastrup-flug- vallar til þess að fylla á bensíntank- ana heldur sé það orðið hluti af mun stærra félagi, stórum olíukaupanda og því í stöðu til að fá magnafslátt. Þá segir hann að einnig muni félagið geta notað flugvélar Sterling með hagstæðum samningum en sá flug- vélasamningur sem nú sé við lýði hafi einungis verið gerður til eins árs vegna vitneskju um söluna. Beint flug um alla Evrópu Birgir býst ekki við því að hagræð- ing rekstursins verði til þess að farmiðaverð lækki. Þó komi það í veg fyrir að verð hækki þar sem olíuverð hefur tvöfaldast. Helstu hagræðinguna segir hann að með kaupunum geti flugfarþegar í ná- inni framtíð pantað sér miða á vef IcelandExpress til hvaða áfanga- staðar sem er af þeim 80 stöðum sem Mærsk og Sterling fljúga til í Evrópu. Þá verði þeim fært að fljúga um alla Evrópu með eins klukkutíma stoppi á Kastrup-flugvelli í Kaup- mannahöfn. Þar með séu þeir komnir í beina samkeppni við þau leiguflug sem ferðaskrifstofur hafa boðið upp á, sem og flug Icelandair. Strandgangan: Fer frá Vík ídag Jón Eggert Guðmundsson, líffræðing- ur og kerfisfræðingur, er ánægður með það hvernig honum gengur með að ganga eftir strandvegum lands- ins. í dag leggur hann af stað frá Vík í Mýrdal en hann fór frá Vogum á Vatnsleysuströnd 17 júní. Ferðinni er heitið austur um land og er stefnt á að koma til Akureyrar fyrir verslun- armannahelgi, þ.e. eftir réttan mán- uð. Hingað til hefur hann aukið hrað- ann úr því að fara um 20 kílómetra á dag í að fara 30 kílómetra. Jón Eggert er sáttur með það hvernig ökumenn landsins hafa hag- að sér þegar þeir keyra fram hjá hon- um og segir alltaf jafngleðilegt þegar fólk tekur sér tíma til að heilsa upp á hann. Hann vill endilega koma þeim skilaboðum til fólks að styrkja Krabbameinsfélagið, það sé nú þess vegna sem hann leggi þetta á sig. Hægt er að hringja í síma 907-5050 og verða þá eitt þúsund krónur inn- heimtar með næsta símreikningi. Nýr rektor Háskóla íslands Fartölvur fyrir alla kennara Kristín Ingólfsdóttir prófessor tók í gær, við hátíðlega athöfn, við starfi Páls Skúlasonar sem rektor Háskóla íslands. Páll, sem hefur gegnt stöð- unni frá árinu 1997, sagði nýlega að Háskólinn þurfi verulega aukin ffamlög til að gegna hlutverki sínu og gagnrýndi stjórnvöld fyrir skiln- ingsleysi á mikilvægi rannsóknar- hlutverks skólans. Kristín tekur við skólanum á mikilvægum tímapunkti - þegar umræður um skólagjöld eru háværar. Hún er fyrsta konan til að gegna starfinu í 94 ára sögu skólans. Seltjarnarnesbær hefur ákveðið að útvega öllum grunnskólakennurum, sem kenna við skóla bæjarins, far- tölvur frá næsta hausti. Er það mat bæjaryfirvalda að eðli kennarastarfs- ins sé þannig að kennarar hefðu veru- legt gagn af þeim sveigjanleika sem fartölvur skapa. Vinna kennara verði þannig ekki lengur bundin sérstök- um vinnuherbergjum eða stöðum þar sem tölvur eru heldur geta kennarar nú sinnt þeim fjölmörgu undirbún- ingsverkefnum, sem krefjast tölvu- vinnslu, þar sem best hentar. Kaup Sterling á Mærsk Air: Ekki öll kurl komin til grafar Ikíð úrval af körfuto Skrautrunnatilboð 20-60% afsláttur Betri plöntur á góðu verði -Tilboð alla daga Kaup íslenskra fjárfesta á danska lággjaldaflugfélaginu Mærsk Air, sem til- kynnt var um í gær, var aðeins eitt þrep af nokkrum, að sögn Pálma Haralds- sonar, annars eiganda félagsins. Aðspurður segir Pálmi að framtíðarhugmynd- ir þessa nýja flugrisa séu miklar en vill ekkert segja um það hverjar þær eru. Nú eiga þeir Jóhannes Kristinsson saman þijú flugfélög, IcelandExpress og Sterling og nú Mærsk Air undir nafni Fons ehf. en rekstur Sterling og Mærsk verður sameinaður undir nafni þess fyrmefnda. Nýju félögin tvö voru bæði rekin með tapi á síðasta ári en Pálmi segir það ekki skipta máli. „Þegar við keyptum Sterling sögðumst við ætla að skila hagnaði á árinu og við stöndum við það,“ sagði hann. Sterling mun skila hagnaði Segir Pálmi að breyttar aðstæður á mark- aði, annars vegar hækkandi olíuverð og hins vegar gengi dollars, ekki hafa gert hlut- ina auðveldari fyrir en það breyti engu um áætlanir þeirra Jóhannesar um það að skila hagnaði af Sterling. Hann segir gríðarlegt verkefni standa fyrir í því að koma þeim þremur milljónum farþega, sem koma frá Mærsk, inn í Sterling og að mála all- ar vélar í Sterling-litunum. „Þetta er samt ekkert óvænt fyrir okkur heldur það sem við ætluðum okkur alltaf að gera,“ segir Pálmi og lætur þar með glitta í þá staðreynd að kaupin eru að- eins hluti af stærri hugmyndum. Margfalt stærra en lcelandair Kaupin á Sterling verða til þess að fé- lagið sem byrjaði sem lítið lággjaldaflug- félag, IcelandExpress, hefur stækkað upp í að vera hluti af stærsta lággjaldaflugfélagi Norðurlandanna. Einnig er það fjórða stærsta lággjáldaflugfélag Evrópu. Þá verður sameining Mærsk og Sterling til þess að hið nýja Sterling er orð- ið þrisvar til fjórum sinnum stærra en Icelandair. Pálmi segir að ekkert hafi verið talað um að skrá félagið í Kauphöll íslands og þá ekki heldur hvort það verði með aðsetur á íslandi eða annars staðar. Sendiráð hafa allt að segja - fyrir viðskipti erlendis Sendiráð erlendis skipta miklu máli þegar kemur að viðskiptatengslum milli landa, að sögn Vilhjálms Guð- mundssonar, forstöðumanns hjá Út- flutningsráði. Hann segir að sendiráð hafí allt að segja varðandi viðskipti og aukin samskipti á milli þjóðanna, um það sé engin spurning. Hann nefnir til dæmis að í kjölfar opnunar sendiráðs íslands í Japan hafi ferða- mannastraumur til íslands aukist jafnt og þétt. Utanríkisþjónustan aðstoðar útrás Blaðið sagði í gær að það hefði traust- ar heimildir fyrir því að íslensk stjómvöld hyggðust opna sendiráð í Indlandi. Vilhjálmur segist ekkert geta fullyrt um kosti þess að hafa íslenskt sendiráð í Indlandi, en að almennt reynist þau vel. „Utanrík- isþjónustan er farin að einbeita sér að viðskiptum miklu meira en áður og gagnsemi starfsmanna hjá henni hefur verið ótvíræð." Mikil áhersla hafi verið lögð á viðskiptafulltrúa sem vinna fyrir fyrirtækin. „Eitt af því sem hefur gerst á síðustu árum er að við fáum þá í auknum mæli til íslands til þess að eiga samskipti við hérlend fyrirtæki og auglýsum þá oft fundi með þeim.“ Gott dæmi um það hversu miklu þetta skilar nefnir Vil- hjálmur að yfirleitt komist færri að en vilja á þá fundi. Aukin viðskipti við Indland Viðskipti íslendinga í Indlandi hafa farið vaxandi undanfarið og er skemmst að minnast þess að á dögun- um kom forseti Indlands í opinbera heimsókn hingað til lands. Þá fór sendinefnd frá íslandi árið 2000 til Indlands með Ólaf Ragnar Grímsson forseta í fararbroddi. í kjölfar þeirrar heimsóknar urðu til mikil tengsl á sviði lyfla- og hugbúnaðariðnaðar. Þá er einnig töluverður innflutningur á ýmsum textílvörum. ■ Runnamura 460 kr I Sólber 650 kr Loðvíðir 250 kr. I Birkikvistur 399 kr. Blátoppur 550 kr I Blágreni 600 kr

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.