blaðið - 01.07.2005, Síða 11

blaðið - 01.07.2005, Síða 11
blaðið I föstudagur, 1. júlí 2005 Kokkteill helgarinnar í hlýindaveðri sumarsins er algengt að fólk geri sér glaðan dag með því að fá heimsókn góðra vina og bjóða skemmtilegan og ferskan drykk, hvort sem veðurguðimir eru okkur hliðhollir og láti sólargeislana leika um vangana eður ei. Alltaf er gam- an að gera sér dagamun yfir sumar- tímann og njóta helganna til hins ítrasta. Það er um að gera að hafa fjölbreytni í drykkjarfóngum og fikra sig áfram í hinum ýmsu kokkteilupp- skriftum sem hægt er að fá. Hægt er að nálgast hinar ýmsu uppskriftir á intemetinu og í uppskriftarbókum, en gaman er að prófa sig áfram og hafa drykkina margbreytilega. VIOLA drykkurinn sem er hér fyrir neðan er skemmtilegur og jafnframt bragðgóður sumarkokkteill. VIOLA 3 cl vodka 2 cl bananalíkjör 1 cl Parfait Amor 6 cl ananassafi Dass af Grenadine Hristur og borinn fram I longdrink- glasi og skreyttur með stjörnu- ávexti. Ráð undir rifi hverju... - Fáein skemmtileg ráð sem nýtast í eldhúsinu # Ef tíminn er naumur og verið er að sjóða gular baunir getur ver- ið gott að setja ögn af matarsóda út í til þess að stytta suðutímann. # Þegar egg er aðskilið er sniðugt að brjóta það ofan í trekt, en með því móti verður eggjarauðan eftir og hvítan rennur ofan í skál sem sett er undir. # Kaffipokar úr filteri eru góðir til þess að sía kjöt- eða fiskisoð en þannig verður það tært. # Til þess að tryggja gott rennsli úr saltstauknum getur verið gott að setja nokkur hrísgrjón ofan í saltið því þannig kemst raki síður ofan í staukinn. # Ef eplin eru ofþroskuð á ekki að henda þeim heldur hugsa til litlu smáfuglanna og gefa þeim smátt skorna bita. # Ef afgangsrjómi verður eftir í fernunni má setja hann í klakabox eða klakapoka. Svo er hægt að nota einn og einn kubb ( súpur og sósur við hentugleika. Hannes mælir með... Fyrir gesti svæðisfundar Mont Peler- in samtakanna á Nordica Hotel, setti Hannes Hólmsteinn Gissurarson saman lista yfir uppáhaldsveitinga- staði sína. Á listanum er upptalin tylft veitingastaða sem Hannes held- ur upp á. Að mati hans standa þó þrír öðrum framar: „Grillið er veitingastaður á efstu hæð Hótels Sögu. Útsýnið þaðan er stórbrotið en það sést ekki aðeins yf- ir Háskólasvæðið heldur alla Reykja- vík. Grillið hefur nýlega endurbætt markaðssetningu sína og er að mínu mati orðið eitt af þrem tígulegustu veitingahúsum landsins. Hin eru Humarhúsið og Sjávarkjallarinn. Grillið býður sérstaklega góða sjávar- rétti úr fersku hráefni, auk þess sem íslenska bráðin (hreindýr og íjalla- lamb) er einstaklega ljúffeng. Ég hef notið Grillsins mest þegar ég panta óvissumáltíð sem kokkurinn eldar eft- ir eigin höfði. Humarhúsið á Amtmannsstíg 1, í hjarta miðbæjarins, er einn besti veitingastaðurinn í Reykjavík, en að auki einn sá dýrasti. Flestir þeir útlendingar, sem ég hef ráðlagt að snæða þar, hafa farið þaðan sáttir. íslenski humarinn er að mínu mati mun bragðmeiri en t.d. stóri Main- humarinn sem er framreiddur víða í Bandaríkjunum. Grillaðir humarhal- ar Humarhússins eru hreint lostæti, hvort sem þeir eru borðaðir með sósu eða hvítlaukssmjöri. Sjávarkjallarinn í Aðalstræti 2 er nýlegur veitingastaður sem nýtur sí- vaxandi vinsælda meðal fyrirmenna Reykjavíkur. Staðurinn á skilið gott orðspor sitt en sjávarréttir hans eru framúrskarandi, hvort sem um sus- hi-, sashimi- eða íslenska sérrétti er að ræða. Maturinn er ávallt ljúfur og mildur og aldrei ofeldaður. Staðurinn er þó heldur dýr.“ Meðal annarra staða sem Hannes mæhr með mó nefna Þijá frakka, La Primavera og Argentínu. Esia (6manna) 29.900 kr, (»ór (3manna) 7.400 kr, Zodiak Val dl Femme 20.990 kr. Val dl Femme (kv) 20.990 kr. klæddu þig vel Verslamr 66°NORÐUR: Faxafeni. Lækjargötu, Garðabæ ogá Akureyri Tindur (3manna) 32.000 kr. Zodlak (lágir) •7 Q90 kr Tindur (751.) 9.900 kr. Esja (251.) 3.200 kr Eigum allt í útileguna ! TjöldT bakpokar, svefnpokar, gönguskór, Tjöla, bakpokar, svefnpokar, gönguskór, göngustafir, prímusar og margt fleira.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.