blaðið - 01.07.2005, Síða 29
blaðid I föstudagur, 1. júlí 2005
agskrá 29
Fjölmiðlar
Tvær kápur, hvor á
sinni öxl
andres.magnusson@vbl.is
Nú hefur nýtt tölublað hins umdeilda
vikurrits Hér og nú htið dagsins ljós.
Þegar það er borið saman við síðasta
tölublað, sem mestum úlfaþyt hefur
valdið, er eins og um annað blað sé að
ræða fremur en annað tölublað.
Það þarf ekki annað en að líta á káp-
urnar til að sjá muninn. Á kápunni
voru fyrirsagnir á borð við „Brynja
hélt framhjá Bubba!“, „Svikin eigin-
kona talar út“, „Metsöluhöfundur á
hæli“, „Barnsfaðir Lindu á íslandi“
og „Sjáið myndirnar! - íslensk Holly-
wood-stjarna í sundi“. Sumsé skráar-
gatsblaðamennska, svo skrauthvörf
séu notuð um efnisvalið. í nýjasta
tölublaðinu er það hins vegar ást, vel-
gengni og hamingja sem blasir við á
hverri síðu og á kápunni endurspegl-
ast það í fyrirsögnum: „Ragnheiður
Guðfinna: Ást í faðmi fasteignasala",
„Trúlofun í Veiðivötnum", „Katrín Jak-
obs: Óvart ólétt“, „Björk býr við hlið-
ina á A1 Pacino", „Heiðar Helguson:
Afmælisgestir í einkaþotu", „Leynd-
armál Birgittu" (sem íjallar um sam-
nefnt lag söngkonunnar en ekki eig-
inlegt leyndarmál) og síðan loks ein
fyrirsögn, sem er ekki beinlínis með
sama brag, en engu að síður umfjöll-
unarefninu til sóma: „Hetja! Arnór
berst við sykursýki“.
Þetta kallar maður að bera tvær
kápur, hvora á sinni öxl.
Hafi Hér og nú látið af þeirri teg-
und „blaðamennsku", sem lagt var af
stað með í upphafi, má gleðjast yfir
því. Hún snerist nefnilega ekki um
það að segja satt, sýna aðgangshörku
eða ámóta, eins og málsvarar viku-
ritsins vildu vera láta, heldur það að
fullnægja lágkúrulegri hvötum án
21.00 PimpMyRide
21.30 MTV Cribs i þáttunum bjóða
stjömurnar fólki að skoða heimili sín
hátt og lágt og upplýsa áhorfendur
um hvað þær dunda sér við heima.
22.00 Tremors - NÝTT!
22.45 Sjáumst með Silvíu Nótt (e)
23.15 The Swan - Ný þáttaröð (e)
Hér er sagt frá nokkrum ósköp venju-
legum konum sem breytt er í sannkall-
aðar fegurðardísir.
12.30 Kvöldþáttur
3rot af því besta úr Kvöldþáttum
rikunnar.
23.15 David Letterman
20.10 Kossaflens
(Kissing a Fool)
Leikstjóri er Doug Ellin og meðal
leikenda eru David Schwimmer, Jason
Lee, Mili Avital, Bonnie Hunt, Vanessa
Angel og Kari Wuhrer.
21.45 Koddahjal
(Pillow Talk)
Rómantísk gamanmynd frá 1959 um
kvennabósa og konu sem nota sömu
símalínu og fyrirlíta hvort annað. Svo
21.30 Strákarnir
(Brot af því besta)
21.55 Two and a Half Men (10:24)
(Tveir og hálfur maður)
22.20 Osbournes 3(a) (9:10)
(Osbourne-fjöiskyldan)
22.45 Avenging Angelo
(Angelos hefnt)
Bönnuð börnum.
21.00 World Poker Tour 2 (HM í
póker) 22.30 K-1 Hér mætast sann-
kölluð hörkutól í sparkboxi, karate og
fjölmörgum öðrum greinum.
22.00 Minority Report
(Glæpavarnir) Það eru góðir tímar hjá
löggunni því ný tækni gerir henni kleift
að handtaka glæpamenn áður en þeir
brjóta af sér. Löggan John Anderton
nýtur góös af þessu þar til dag einn
að hann er sakaður um glæp sem á
eftir að fremja. Hljómar dálítið flókið
og það reynist raunin þegar Anderton
hefur rannsókn á eigin sakamáli.
Stranglega bönnuð börnum.
hittast þau loksins og eftir það reynir
flagarinn að gera hosur sínar grænar
fyrir konunni með því að villa á sér
heimildir. Leikstjóri er Michael Gordon
og aðalhlutverk leika Rock Hudson og
Doris Day.
23.25 Gullmót í frjálsum íþróttum
Upptaka frá mótinu í París sem fram
fór fyrr í kvöld.
55.55 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
00.20 The Net (Netið)
Bönnuð bömum.
02.10 Shallow Hal
(Grunnhyggni Hal)
Aðalhlutverk: Jack Black, Gwyneth
Paltrow og Jason Alexander. Leikstjórar
em Bobby Farrelly og Peter Farrelly.
2001.
04.00 Fréttir og ísland í dag
05.20 Tónlistarmyndbönd frá Popp-
Tíví
00.00 Dead Like Me (e)
00.45 Tvöfaldur Jay Leno (e)
02.15 Óstöðvandi tónlist
00.20 Who is Cletis Tout?
(Hver er Cletis Tout?)
Bönnuð bömum.
02.00 Desperado (e)
(Uppgjörið)
Stranglega bönnuð börnum.
04.00 Minority Report
(Glæpavarnir)
Stranglega bönnuð börnum.
00.00 David Letterman
00.45 Friends (5:24) (Vinir)
01.10 Kvöldþáttur
01.55 Seinfeld (5:5)
(The Stock Up)
þess að skeyta nokkru um nærveru
sálna.
Raunar var sérstaklega einkenni-
legt að fylgjast með fullyrðingum
málsvaranna um sannleiksástina og
stefhu Hér og nú. Eiríkur Jónsson
kom í ísland í dag og kallaði meintan
heimildarmann sinn lygara, drullu-
hala og skíthæl, hrópaði þar kröfu
sína um að leikin yrði segulbands-
upptaka sín, sem sannaði að svona
lægi í málinu, en ekki hinsegin. Þeg-
ar eftir var gengið daginn eftir kom
svo í ljós að það var ekkert band! Það
setur sannleiksástina á Hér og nú í
nýtt ljós.
Það segir kannski sína sögu að út-
gefendurnir láta sem þeim komi mál-
ið ekki við. Gunnar Smári Egilsson,
framkvæmdastjóri Baugsmiðlanna,
vill engu svara þar sem um ritstjórn-
arlegt mál sé að ræða, Skarphéðinn
Berg Steinarsson, stjórnarformaður
Baugsmiðlanna, er þó til viðtals um
málið en lætur sem það komi sér nán-
ast ekkert við. En ætli þeim komi
það ekki soldið við? Voru það ekki
þeir sem lögðu á ráðin um að gefa út
þetta blað? Og eru það ekki þeir sem
fá arðinn í sinn vasa?
Enn sérkennilegri vinkil mátti svo
lesa í blöðum gærdagsins en flugfé-
lagið Iceland Express tilkynnti þá
að því þætti ekki veijandi að láta
farþega sína sjá forsíðu Hér og nú og
DV, hvað þá meir, svo þau verða ekki
lengur seld á þeirra vegum. Gott og
vel. En hið merkilega er að eigendur
Iceland Express eru jafnframt eigend-
ur í Baugsmiðlunum. Með þá kápuna
á öxlinni þykir þeim ekkert að því
að framleiða fjölmiðla, sem þeir svo
geta ekki fengið af sér að bjóða fólki
til sölu þegar kápan á hinni öxlinni
snýr fram! Þeim, sem öðrum, fer ekk-
ert sérlega vel að bera tvær kápur í
einu, þótt hvor á sinni öxhnni séu. :
Af netinu
Horfði á fyrstu útsendingu nýrrar
sjónvarpsstöðvarinnar Sirkus með
öðru auganu. Ekki finnst mér byrj-
unin góð. Kvöldþátturinn er ekki að
gera sig að mínu mati. Þetta er að
vísu fyrsti þátturinn og því gef ég
þessu auðvitað séns. Alltaf erfitt að
byrja. Ég vona samt að ekki haldi
svo fram sem horfir því ég vil ekki
sjá Gumma Steingríms brenna sig á
þessu. Tók mig tíma að ná honum, fór
lengi í taugarnar á mér en nú finnst
mér hann virkilega fyndinn. Sér í
lagi í pistlum sínum aftan á Frétta-
blaðinu. En eins og ég segi, Jón Óttar
var svo sem ekki æðislegur í fyrstu út- Sjáum hvað setur með Sirkus. Fall er
sendingu Stöðvar 2 árið 1986 og ekki fararheill.
gengu útsendingarnar vel í fyrstu.
Það segir ekkert um Stöðina í dag. http://gudfinnur.blogspot.com/
Stærsti Taparinn?
(Biggest Loser)
Já, ég er að horfa á þennan líka
yndislega þátt. Hvað er betra en
að horfa á feitabollur reyna að
grenna sig með hollu mataræði
og líkamsrækt? Ákveðinn kenn-
ari varð nú reyndar bara reiður
og illur þegar við fórum að tala
um þennan þátt í vetur í tíma
hjá honum og sagði að „það væri
verið að niðurlægja fólk og halda
því fram að feitt fólk væri heimskt!"
Ég get nú ekki fengið það út. Þetta
hlýtur að vera miklu heilbrigðara en
til dæmis Extreme Makeover eða The
Swan! Þar er verið að „fótósjoppa"
fólk með öllum mögulegum ráðum.
Þá er nú hollara að horfa á fólk fara
út að hlaupa. Samt finnst mér Extr-
eme Makeover ótrúlega góður þáttur.
Horfi á hann með tárin í augunum,
þrátt fyrir dramað og vitleysuna.
http7/www.blog.central.is/sirrysif
Hvað vantar helst í íslenskt sjónvarp?
Kolbrún Kristfn
Karlsdóttir
„Ég horti lítið á sjónvarp en
ég sakna þó helst Nýjasta
tækni og vísindi."
Ingi Páll Sæbjörnsson
„Það vantar gott efni. Það
er ekki nógu gott efni i sjón-
varpi núna."
Árni Gunnarsson
„Ég horfi lítið á sjónvarp."
„Það vantar helst fleiri
sjónvarpsstöðvar og meira
úrval."
Guðrún Maria
Jóhannsdóttir
„Það vantar fleiri sjónvarps-
stöðvar og færri raunveru-
leikaþætti."
Hallgrimur Garðarsson
„Ég horfi litiö á sjónvarp."