blaðið

Ulloq

blaðið - 05.07.2005, Qupperneq 8

blaðið - 05.07.2005, Qupperneq 8
þriðjudagur, 5. júlí 2005 I blaðið Hámarks öryggisgæsla á leiðtogafundi G8 bjornbragi@vbl.is Með 6 feta háum og 8 kílómetra löng- um stálhring, 10 þúsund lögreglu- mönnum í viðbragðsstöðu, ógrynni öryggismyndavéla og fjölmörgum varðturnum verður Gleneagles-hótel- ið varið með hámarks öryggisgæslu þegar valdamestu menn heimsins hittast þar á morgun. Þá er öll flug- umferð í námunda við svæðið strang- lega bönnuð og minnst tvær öryggis- þyrlur munu sveima yfir svæðinu. Fundurinn stendur frá miðvikudegi til fóstudags. John Vine, yfirlögregluþjónn í Tay- side-lögreglunni, hefur síðustu 18 mánuði undirbúið komu þjóðarleið- toganna. Lið hans er búið undir þús- undir mótmælenda sem vilja trufla fundinn og þann möguleika að hryðju- verkaárás verði gerð. Vine sagði að hver sá sem gerði tilraun til að fara yfir stálgirðinguna }Tði handtekinn. Á hótelinu sjálfu þar sem leiðtogar Bretlands, Bandaríkjanna, Frakk- lands, Þýskalands, Rússlands, Kan- ada, Japan og Ítalíu hittast eru svo enn frekari öryggisráðstafanir sem lögregluyfirvöld vildu ekki útskýra nánar. Þá hefur bensínsvöðvum um allt Skotland verið meinað að selja alla eldfima vökva í brúsum sem mótmælendur gætu notað til vopna- gerða. Lögreglulið fjölmennt en yfir- vegað Skipuleggjendum öryggismála vegna fundarins er enn í fersku minni þeg- ar lögreglumaður skaut mótmælanda á leiðtogafundi G8 í Genóa á Ítalíu 2001. Vine sagði að lögreglan myndi reyna eftir fremsta megni að taka á vandamálum með ró og reyna að koma í veg fyrir allt uppþot. Þá yrðu lögreglumenn í hefðbundnum búning- um, brosandi og kurteisir. „Aðgerðir okkar munu miða að því að ganga frá málum hratt og örugglega. Við mun- um reyna að taka vandræðaseggi úr umferð og aðskilja þá frá friðsamleg- um mótmælendum", sagði Vine. Margir íbúar Gleneagles, sem er fal- legur smábær í miðhluta Skotlands, eru mjög ósáttir við að fundinum hafi verið valin staður í bænum þeirra. „Það er fáránlegt að lítið samfélag eins og Gleneagles þurfi að umbera þetta. Þessi fundur hefði frekar átt að vera haldin úti á miðju Atlantshafi í loftfari eða einhverju álíka", sagði Colin White, slátrari í Gleneagles. Lífstíðarfangelsl fyrir nauðgun 16 ára gamall breskur drengur sem nauðgaði kennslukonu sinni var í gær dæmdur í lífstíðarfangelsi. Drengurinn mun þó geta sótt um reynslulausn eftir fjögur og hálft ár en verður ekki látinn laus fyrr en læknar munu fullyrða að hann sé hættulaus samfélaginu. Drengurinn var 15 ára gamall þegar atburðurinn átti sér stað en konan 28 ára og hafði aðeins starfað við skólann í tvo daga. Læknir sem ræddi við drenginn sagði að hegðun hans gæfi til kynna að lík- ast til hafi hann ákveðið nauðgunina með löngum fyrirfara. Amma ákærð fyrir morð Yfirvöld í Oregon-fylki í Bandaríkjun- um hafa gefið út morðákæru á hend- ur konu sem sökuð er um að hafa banað 4 ára gömlum dreng. Konan var stjúpamma drengsins. Hafði hún verið úti með hann en þegar hún kom heim kvaðst hún hafa týnt honum. Þremur dögum síðar vísaði hún svo lögreglu á lík hans og var handtekin í kjölfarið. Lögregluyfirvöld gáfu ekki upp hvernig drengurinn dó en sögðu að ljóst sé að um morð hafi verið að ræða. Lögreglumenn í átökum við mótmælendur í miðbæ Edinborgar í gær vegna G8 fundarins. Óeirðarlögregla átti í fullu kappi við að halda aftur af mótmælendum sem margir beittu vopnum. Búist er við hundruð þúsundum mótmælenda til Skotlands og eru þúsundir lögregluþjóna staddir í Gleneagles þar sem fundurinn fer fram. Bandariski rapparinn Snoop Dogg kom fram á LIVE 8 en fór fyrir brjóstið á sumum. Kvörtuðu vegna fúkyrðaflaums á Live 8 FBI aðstoðar við írakskar rannsóknir bjornbragi@vbl.is írakar eru reiðubúnir að leyfa Banda- ríkjamönnum að aðstoða þá við að rannsaka morð og mannrán á opin- berum embættismönnum. Þetta sagði Alberto Gonzales, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna en hann kom í óvænta heimsókn til íraks á sunnudag. Hinu óformlega samkomulagi sem varðar rannsóknir á glæpum var náð eftir að Gonzales fimdaði með for- sætisráðlierra íraks, Ibrahim al-Jaa- fari og lögreglu- og dómsyfirvöldum. Gonzales ræddi einnig meðferð fanga sem eru í haldi Bandaríkjahers og væntanleg réttarhöld yfir Saddam Hussein. Gonzales dvaldi í írak í sex klukkutíma. „Það eru enn valdamikl- ir glæpir, morð og mannrán sem hafa ekki verið leidd til lykta. Ein af ástæð- unum er sú að sönnungargögn liggja ekki fyrir hendi,“ sagði Gonzales þeg- ar hann kom aftur til Washington. Gerðar voru miklar öryggisráðstaf- anir vegna heimsóknar Gonzaels og fengu fjölmiðlar ekkert að frétta fyrr sem hýsir embættismenn og stjórn- en hann var kominn óhultur inn í hið sýslu í írak. vandlega víggirta „Græna svæði,“ Alberto Gonzaels á blaðamannafundi í Irak í gær. Hundruð sjónvarpsáhorfenda í Bret- landi sem fylgdust með útsendingu BBC frá Live 8 viðburðinum, kvört- uðu við sjónvarpsstöðina vegna blótsyrða ýmissa tónlistarmanna sem komu fram. Bono, Madonna, Snoop Dogg og meðlimir hljómsveit- arinnar Green Day voru meðal fjöl- margra sem komu fram og notuðu hið forboðna f-orð. Sérstaklega fór rapparinn Snoop Dogg fyrir bijóstið á viðkvæmum en m.a. sönglaði hann orðið „motherfy****" í sífellu í einu laga sinna. Talsmaður BBC sagði minnst 350 kvartanir hafa borist og bað alla þá sem móðgast hefðu afsökunar fyrir hönd stöðvarinnar. „Brýnt var fyrir öllum listamönnum sem komu fram áður en þeir fóru á svið að um beina útsendingu væri að ræða og þeir þyrftu að gæta orða sinna" sagði tals- maðurinn. Sagði hann að kvartanirn- ar yrðu þó að skoða í samhengi við hið geysimikla áhorf sem viðburður- inn fékk. Takeru Kobayashi lýkur við síðustu bitana eftir að hafa sigrað í pylsuátskeppni Nat- han’s, sem haldin er á Coney-eyju í New York ár hvert. í gær tókst honum að borða 49 pylsur á 12 mínútum. Kobayashi hefur þó gert Petur í greininni en honum hefur tekist að borða 53 og hálfa pylsu á sama tíma. Kobayashi hefur sigrað í keppninni fimm ár í röð. lm'i'cr:F=?a inbnl seamge Landsins mesta úrval fjarstýrðra bíla Tómstundahúsið Nethyl 2 sími 5870600 www.tomstundahusid.is Verð 10.950- fTjj i tí 11 fkf~n Verð frá 17.395- onmntmm * Verð frá 29.900- ffifcas 4 Verð frá 39.995- Verð frá 43.900- Klæðskiptingur tók inntökupróf fyrir systur sína Ungri stúlku var vfsað frá inntöku- prófi í fjölmiðladeild Moskvuháskóla á sunnudag þar sem í ljós kom að hún var strákur sem reyndi að ná prófun- um fyrir systur sfna. Deildarforseti fjölmiðladeildarinnar, Yasen Zasur- sky, greindi frá því að öryggisstarfs- menn sem gættu þess að próftakend- ur væru ekki að svindla hefðu tekið sérstaklega eftir stúlku með skæran farða og „ákaflega kvenlega andlits- drætti". Fannst öryggisvörðum brjóst stúlkunnar grunsamleg þar sem þau hafi verið „óviðjafnanlega stór“ og héldu þeir að svindlmiða gæti verið að finna inn á barmi hennar. Við nán- ari aðgát sáu þeir að um gervibrjóst var að ræða og eins og áður sagði var ekki um neina stúlku að ræða. Ungi maðurinn var rekinn úr prófsalnum og systur hans var að auki meinaður aðgangur að háskólanum. ókeypis til heimila og fyrirtækja alla virka daga blaóió

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.