blaðið - 05.07.2005, Síða 30
þriðjudagur, 5. júlí 2005 I blaðið
LM/ ...
Af sem áður var
Það hefur verið gefin út ákæra.
Loksins. Málið er stórt. Það er um-
fangsmikið segja menn, hundruð
yfirheyrslna skjalfærðar og skráð-
ar eins og lög gera ráð fyrir og lekið
í valda fjölmiðla. Það þarf að hafa
almenningsálitið í lagi segja menn.
Almannatenglar um allan bæ eru
á yfirvinnutaxta við að stýra og
stílfæra. Þetta er stríð. Penninn
er máttugri en sverðið segja menn,
allir nema Eiríkur Jóns. Og Mikki
Torfa.
Live 8 tónleikamir glymja lát-
laust. Tekst að syngja þriðja heim-
inn úr klóm H&M, Coka Cola og
Bechtel? í forleik heyrist Jón Ger-
ald Sullenberger, eða hvað hann
heitir nú annars sá ágæti maður,
beijast fyrir sínu á afar sérstöku
afbrigði íslenskrar tungu. Hann
hefur greinilega fengið tilsögn ekk-
ert skrýtið kannski. Hann er alinn
upp í útlöndum.
Á milli stíðsfyrirsagna laumast
litlar íréttir um lítil villidýr sem
alin eru upp í manna höndum,
neysluvísitöluna og hundrað ára
afmæli loftskeytasambands við út-
lönd. Það var nú gríðarlegtframfar-
arspor fyrir íslendinga.
Þjóðskáldið mikla, maðurinn
sem stífstagaðist á klæðaleysi keis-
arans, Einar Benediktsson mark-
aði þetta mikilvæga og djúpa spor í
þjóðarsöguna. Það er auðvitað ekki
á allra færi að fóta sig í slíkum
sporum og alltaf svolítið klaufalegt
þegar minni menn reyna og reyna.
En auðvitað er ekki hægt að ætl-
ast til þess að venjulegir menn yrki
Starkaðarstökur á milli þess sem
blekið þomar á samningunum.
Og Vodaphone kann ráð við því.
Gamla þjóðskáldið er fengið til að
skreyta stutta „frétt" um aldaraf-
mæli loftskeytasambands. Hvort
sem honum líkar betur eða verr.
Einar fer í fína skreytingu og minn-
isvarða við Höfða, bakkaður upp
af þjóðþekktum og elskuðum sagn-
fræðingi og gamanleikara í hlut-
verki loftskeytamanns.
Einar Ben. Þjóðhetjan frá þeim
tíma þegar Islendingar voru að
vakna úr dvala vistarbandsins eft-
ir aldalanga kyrrstöðu undir stjórn
íslenskra stórbænda að ógleymdri
dönsku grýlunni. Einar Ben. sá ís-
lendingur sem í upphafi 20. aldar
holdgerði þá stóru drauma sem í
dag em Islendingum sjálfsagður
vemleiki, veruleikasjónvarpsefni,
og ungvíkingunum nútímans
heppilegt auglýsingaslagorð.
Fyrirætlanir Einars vora löngu
á undan samtíð hans og mættu því
harðri andstöðu afturhaldsins á ís-
landi. Hmm, hvað olh því? Æ, það
var ekki komið neitt MTV. Þrátt
fyrir þrusufínt tilboð í loftskeyta-
stöð frá Einari og Marconi gekk
Hannes kallinn Hafstein til þess
að gefa Landssímanum einkaleyfi
til loftskeytasendinga. Síðan era
liðin mörg ár.
Get up stand up, Stand up for
your rights - glymur frá Live 8 í
boði Baugs. Það er því miður ekki
á færi ungvíkinganna að yrkja í
anda Einars, ekki einu sinni al-
mannatenglanna. Já, það er af
sem áður var - eða hvað?
SU DOKU
Su Doku - 3. gáta
6 1 3 2
5 8 1 7
7 JL 4
9 6 1 'i 7 8
3 2 9 5
5 7 3 0 9
1 9 7
8 2 4 6
4 1 2 lL
Su Doku - I ausn viö 2. gátu
6 5 2 8 4 1 3 9 7
7 3 1 9 2 6 8 5 4
8 9 4 5 3 7 2 6 1
5 7 8 3 "íT 2 1 4 6
4 2 3 1 6 5 9 7 8
9 1 6 7 8 4 5 2 3
1 6 7 2 5 3 4 8 9
3 8 5 4 7 9 6 1 2
2 4 9 6 1 8 7 3 5
Lausn 3.
gátu verður
að finna í
miðvikudags-
blaðinu
Lausn við 2. gátu
frá blaðinu í gær
Leiðbeiningar
Su Doku gengur út á að raða tölunum
frá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar til gerð
box sem innihalda 9 reiti. Sama talan
má ekki koma fyrir tvisvar í hverri
línu og innan hvers box. Allar gátur
er hægt að ráða út frá þeim tölum sem
gefnar era upp í upphafi. Leitað er að
talnapörum og reynt að koma þeirri
þriðju fyrir. Tökum dæmi ef talan 7
er í efsta boxinu vinstra megin og þvi
neðsta líka, ætti ekki að vera erfitt
að átta sig á hvar 7 á að vera í miðju-
boxinu. Ef möguleikamir era tveir
er ágætt að skrá þá hjá sér og halda
áfram.
Victoria ekki
mikill aðdáandi
Snoop Dogg
Victoria Beckham hefur nú
bannað manni sínum Dav-
id Beckham að fara út með
Snopp Dogg en þau hittust
baksviðs á Live 8 tónleik-
unum í Lundúnum um helg-
ina. Victoria var ekki yfir
sig hrifin af Snoop Dogg og
sagði við hann: „Heyrðu Mr.
Snoopy, þú ert ekkert að
fara að taka manninn minn
út. Ég veit allt um þitt orð-
spor“. Ekki var Victoria
alveg búin að tjá sig
um þetta mál og hélt
áfram og sagði tímarit- \ '
inu The Sun: „Eins og
ég myndi láta David fara
út með honum!! En ég held
að honum hafi ekki líkað
að ég kallaði hann Mr.
Snoopy". David var að
sögn mjög hrifinn af
að hafa hitt bandaríska
söngvarann. „Mig hefur
langað til að hitta hann
mjög lengi. Okkur kom
vel saman. Ég var mjög
hrifinn af hvað hann
vissi mikið um fótbolta"
sagði David.
P. Diddy komst
ekki á Live 8
Talsmaður rapparans P.Diddy hefur
nú sagt að honum þyki mjög leitt að
hafa ekki getað komið fram á Live
8 í Fíladelfíu um helgina. P.Diddy
hafði verið auglýstur og átti að koma
fram ásamt mörgum frægum lista-
mönnum eins og Jay-Z, Aliciu Keys,
Stevie Wonder, Maroon 5 og fleiram.
Talsmaður P.Diddy sem heitir í raun
Sean Combs, sagði New York News
nýlega: „Hann styður Live 8 fullkom-
lega og finnst mjög leitt að hafa ekki
komist eins og gert var ráð fyrir“.
Samkvæmt blaðinu Daily News flaug
flugvél yfir Fíladelfíu á meðan á tón-
leikunum stóð sem á stóð stóram
stöfum: Sean Combs. „segir bless við
Philly“
McCartney segir
____ nlii
Paul McCartney segir að
nýjaplatanhans, sem vænt-
anleg er í haust, muni
heita: Chaos and Creati-
on in the Backyard.
Paul neitar því að
diskurinn verði
tvöfaldur en segir
þó: „Ég hef tvær
plötur í vinnslu í
einu“. McCartney
hefur verið að
vinna með fram-
leiðandanum
Nigel Godrich
sem hefur
áður unnið
með hljóm-
sveitunum
Radiohead
og Travis.
Mikið er rætt
um hvaða lög
verði á nýju plöt-
unni en ekkert hef-
ur verið gefið upp
enn sem komið er.
Þó er talað um að
eitt lagið heiti Fine
Line. Paul er nú að
undirbúa tónleika-
ferðalag um
Norður-Amer-
íku sem byrjar
í Miami, Flor-
ída 16. sept-
ember.
Hvað segja
stjörnurnar?
©Krabbi
(22. júní-22. júlQ
$ Þú ert miðpunktur athyglinnar og þér líður
vel með það. Þú vinnur á við tvo enda er nóg að
gera.
V Hluti af þér vill vera heima í dag og kúra.
Annar hluti vill fara út og skemmta sér. Hlust-
aðu á þann hluta, þú getur alltaf verið heima hjá
þér.
®Ljón
(23. júlí- 22. ágúst)
$ Þú hefur góða sjálfsstjórn og ættir að geta
heillað alla viðskiptavini þína upp úr skónum.
Reyndu persónulegu aðferðina, jafnvel þó hún
viroist ekki heppileg.
V Rómantíkin hefur ekki gengið vel undan-
farið. En þú hefur gáfurnar og sálina til að láta
allt ganga. Treystu a einlægnina til að ná til allra.
Meyja
V (23. ágúst-22. september)
$ Hjálpaðu til þegar vinnufélagi þinn hefur
vinnu að nýju verkefni eða hjálpaðu til að ryðja
veginn. Hlutverk þitt í þessu verkefni er mikil-
vægt.
V Þú ert öllum trú/r en stundum þarftu að
einbeita þér að öðru.
©vog
(23. september-23. október)
$ Þinn hefðbundni vinnudagur truflast oft-
sinnis í dag vegna samkeppnisaðila. Aðlagastu
og haltu áfram að vinna.
V Borðaðu með vinum þínum í kvöld. Ef þú
ert á lausu skaltu láta þá vita að þú sért að leita
að elskhuga. Vinir geta reddað málunum.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
S I dag er þinn dagur til að ná árangri.
Gerðu það sem þú þarft til að allt gangi upp það
verður ekki erfitt.
V Hvað viltu fremur öllu? Hvað sem það er
þá gæti dagurinn í dag fært þér það. Notaðu inn-
sæi þitt og leitaðu að óvenjulegum tækifærum.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
S Ekki hafa of lltið að gera þannig að þér
leiðist. Yfirmaður mun taka eftir frumkvæði
þínu.
V Þú og ástvinur þinn eru mjög ósammála
þessa dagana og er það eitt mál aöallega sem
truflar ykkur. Þetta mun allt saman ganga yfir.
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
$ I dag verður ekki hægt að forðast ákveðin
málefni, sama hve erfið þau virðast vera. Vertu
óhrædd/ur við að takast á við þau og þú munt
Ijúka þeim fljótt af.
V Orka þín er meiri en flestra í dag. Það er
ágætt, svolítil framtakssemi lætur hlutina ger-
ast. Á svona dögum getur allt gerst.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
S Tilfinningar eru á kreiki í dag og því verð-
ur sérstaklega erfitt að eiga við vinnufélaga og
viðskiptavini í dag. Reyndu að ná til þeirra á per-
sónulegan hátt.
V Þér finnst skyldur þínar stundum yfirþyrm-
andi en reyndu að horfa á það jákvæðum aug-
um. Þú hefur gáfurnar og þolinmæðina til að
þola þetta. Þú þarft bara að anda og einbeita
þér.
©Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
$ Þú ert mesti orkuboltinn í vinnunni þessa
dagana. Þú ættir því að venjast brosum og beiðn-
um um hjálp.
V Það er mikið að gera hjá þér, bæði í vinn-
unni og einkalífinu. Af hverju ekki að biðja ástvin
um aðstoð. Þeir sem biðja um hjálp sýna styrk.
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
$ Hlustaðu á þá sem hafa verið lengur í
bransanum en þú. Lausnir gærdagsins gætu
líka virkað í dag.
V Þú þarft að losa um ýmislegt tilfinninga-
legt í dag. Bjóddu vini í hádegismat og lattu
dæluna ganga. Hann verður ánægður með að
aðstoða.
©Naut
(20. apríl-20. maQ
$ Þú verður óvenju tjáningarík/ur í dag. Þú
getur auðveldlega fengið þær upplýsingar sem
þú þarfnast. Hafðu sambandi við fólk sem þú
hefur ekki heyrt I lengi.
V Þú ert búin/n að halda aftur af þér of
lengi. Leyfðu tilfinningunum að flæða út, til til-
breytingar. Ástvinur mun veita þér jákvæð við-
brögð.
©Tvíburar
(21. mai-21. júní)
$ Ekki eyða um efni fram. Það eru fjárhags-
lega erfiðír tímar framundan og ef þú nærð að
spara núna þá ættirðu að komast í gegnum
það.
V Lífið er eins og góð veisla, full af skemmti-
legu og flottu fólki. Taktu fullt vald á öllum þeim
móguleikum sem þér bjóðast.