blaðið - 11.07.2005, Blaðsíða 30

blaðið - 11.07.2005, Blaðsíða 30
£ föstudagur, 8. júlí 2005 I blaðið cr. \/r ir iA WWj ... að sprengja og springa Einhvemveginn komu þær ekkert á óvart þessar hryðjuverkaórósir á Lundúni. Við þeim hafði verið búist frá því ráðist var á Nýju Jórvík 2001 - enda var búið að hóta vestrænum ríkjum frekari sprengingum. Viðbrögð bresku þjóðarinnar standa upp úr fféttum af þessum hömungum. Þau em aðdáunarverð - þvílík yfirvegun, þvílík ró. Menn benda ó að Bretar séu aldir upp við árásir og löngu hættir að kippa sér upp við það þó sprengjur springi um alla borg, en getur maður nokkum tíma vanist slíku? Bandaríkjamenn em óvanari því að sprengjur springi um þeirra borgir þó þeir séu öllu vanari því að sprengja annarra þjóða borgir. Kannski er auðveldara að venjast því að sprengja en að vera sprengdur. Og með ámnum er víst ábyggilega erfiðara að sjá samhengi þar á milli. Þú skalt ekki sprengja nóunga þinn ef þú vilt ekki verða sprengdur. Þessa línu vantar augljóslega í helgitexta þessara „sannheilugu" manna sem ráða ríkjum og hópum eins og þeim sem fara um með hryðjuverkum.Bókstafstrúarmenn sem með bókina á lofti telja að þeir geti þröngvað guði inn í ákveðið hólf og haft hann svo með sér og sínum málsstað. Ótrúlegt - hugsar maður með sér. Að fólk geti látið sér detta slíkt og annað eins í hug núna á 21. öldinni! En það er svo sem ekkert ótrúlegt. Mannskepnan virðist á einhvem undarlegan hátt hafa hópsálina í genum sér og þessa gríðarlegu þörf til að flykkjast saman um markmið og málstaði, já að ógleymdum gullkálfunum. Vísindadýrkun er til að mynda ótrúlega leiðinlegt fyrirbæri sem náð hefur gríðarlegri fylgispekt á vesturlöndum en með því að vísa til vísinda má fá fjöldann allan til hinna ótrúlegustu athafna þó pilluát hverskonar sé auðvitað einna auðveldast. í gegnum þennan genagalla má svo ná stijóm á ótrúlega stómm hópum og fá þá til að gera ótrúlegustu hluti. Þannig hefur þetta alltaf verið í gegnum alla mannkynssöguna. Hin ýmsu trúarbrögð rísa og falla, stefnur og hugmyndafræði sem á einum tímapunktu nær fótfestu í heimi sem er á sífelldri hreyfingu. Genagallinn sem hefur þau áhrif að heilbrigð gagrýnin hugsun hverfur með öllu er eitthvað sem nauðsynlegt er að finna lausn á. Þó ótrúlegt sé að erfðafræðingar nútímans geti með einum eða öðram hætti nóð að uppræta vandamálið er ekki eins víst að það sé ólæknanlegt. Það má þó fastlega gera róð fyrir að vandamálið verði óþægilega stórt í náinni framtíð og skipi fólki í fylkingar sem sprengja og verða sprengdar. Það væri óskandi að tappa mætti stóískri ró bresks almennings á flöskur - það gæti gert lítið úr vandamálinu. SU DOKU Su Doku - 6. gáta 7 9 2 5 7 6 8 1 4 7 4 1 3 6 1 8 9 9 8 6 5 8 9 1 1 6 3 2 6 3 Su Dok j- i ausn við 5. gátu Laus 3 8 5 7 6 4 2 1 9 7 9 4 5 1 2 6 8 3 2 1 6 3 9 8 7 5 4 5 7 3 4 8 9 1 2 6 9 4 1 2 7 6 5 3 8 8 6 2 1 5 3 9 4 7 6 3 8 9 2 5 A 7 1 1 5 9 8 4 7 3 6 2 4 2 7 6 3 J 8 9 5 Lausná 7. gátu verður að finna í blaðinu á morgun. Leiðbeiningar Su Doku gengur út á að raða tölunum frá 1-9 lárétt, lóðrétt og í þar til gerð box sem innihalda 9 reiti. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í hverri línu og innan hvers box. Allar gátur er hægt að ráða út frá þeim tölum sem gefnar era upp í upphafi. Leitað er að talnapörum og reynt að koma þeirri þriðju fyrir. Tökum dæmi ef talan 7 er í efsta boxinu vinstra megin og því neðsta líka, ætti ekki að vera erfitt að átta sig á hvar 7 á að vera í miðju- boxinu. Ef möguleikarnir era tveir er ágætt að skrá þá hjá sér og halda áfram. Vandross borinn til grafar Útför söngvarans vinsæla, Luther Vandross, fór fram frá Riverside kirkjunni í New York á fóstudag. Fjölmargir þekktir einstaklingar vora vistaddir, þar á meðal Usher, Aretha Franklin, Alicia Keyes, Stevie Wonder og Patti LaBelle. Luther Vandross var aðeins 54 ára þegar hann lést eftir hjartaáfall 1. júlí síðastliðinn. Hann seldi um 25 milljónir eintaka af plötum sínum á ferlinum og lög eins og Stop for love, Here and now og Danee with my father urðu mjög vinsæl. Athöfnin í Riverside kirkjunni þótti afar falleg. Patti LaBelle fór með ljóð og síðan sungu Stevie Wonder, Aretha Franklin og Cissy Wonder. Mesta athygli vakti þegar Frankin fékk alla í kirkjunni til að standa upp og syngja Amazing Grace. Aðdáendur Luther Vandross fjölmenntu fyrir utan kirkjuna og létu ausandi rigningu ekki hafa áhrif á sig. Sjálfur var hann alinn upp í New York og þótti því við hæfi að aka einn hring með kistuna um Harlem hverfið áður en útfórin fór fram. Bobby Brown í nýjum sjónvarpsþætti Meira en milljón manns horfðu á frumsýningu nýjasta raunveraleikaþáttarins í Bandaríkjunum, Being Bobby Brown, en þar er fylgst með Bobby Brown, eiginmanni Whitney Houston. Það er kapalstöðin Bravo sem sýnir þáttinn. Þrátt fyrir að þátturinn hafi ekki fengið mjög góða gagnrýni í fjölmiðlum horfði 1,1 milljón manns á fyrsta þáttinn og meirihlutinn af þeim - 829.000 þúsund - var á aldrinum 18-49 ára. Lauren Zalaznik, yfirmaður Bravo stöðvarinnar, segir að Being Bobby Brown gefi innsýn í líf poppstjömunnar og nánustu ættingja og vina. Hann segir að áhorfstölur bendi eindregið til þess að sjónvarpsáhorfendur hafi áhuga á þess konar efhi. Rúmlega ein milljón áhorfenda þykir ekki mikið hjá kapalstöðvum í Bandaríkjunum. Þannig fær þátturinn The Closer á TNT stöðinni fimm sinnum meira áhorf. Yfirmenn Bravo era þó himinlifandi enda er áhorfið á Bobby Brown tvöfalt meira en á þótt sem stöðin sýndi á sama tíma í fyrra. Zsa Zsa Gabor á sjúkrahús Leikkonan heimsþekkta, Zsa Zsa Gabor, sem er 88 ára gömul, fékk að fara heim til sín um helgina eftir að hafa verið flutt á sjúkrahús í síðustu viku. Þangað hafði hún verið flutt vegna þess að hún fékk vægt hjartaáfall á heimili sínu í Bel Air í Hollywood. Eiginmaður hennar, Frederic Von Anhalt, sagði að hún hafi aldrei misst meðvitund heldur hafi hún misst alla tilfinningu í vinstri hluta líkamans. Hann sagði að líðan hennar væri ágæt en að hún ætti enn erfitt með mál. Zsa Zsa Gabor, sem fæddist í Ungverjalandi, varð þekkt fyrir myndir eins og Moulin Rouge frá árinu 1952 og Queen of Outer Space frá árinu 1958. Hún hefur oft komist í fréttimar, til dæmis þegar hún réðist á lögregluþjón árið 1989 og var dæmd í nokkurra daga fangelsi. Eins þegar hún lenti í bílslysi nokkrum áram síðar sem leiddi til þess að hún lamaðist að hluta og þurfti að notast við hjólastól. Þá hafa deilur innan fjölskyldu hennar um erfðamál ratað á forsíður fjölmiðla vestanhafs undanfama mánuði. Hvad segja stjörnurnar? Steingeit (22. desember-19. janúar) $ Þú ert opin/n fyrir þörfum viðskiptavina þinna sem eru annars staðar. Hafðu samþand við þá og myndaðu enn sterkara samband. V Þú getur pert allt í dag, eða næstum því. Þú græðir á þvi að geta gert góð plön fram í tímann og nú færðu tækifæri til að ganga á eftir þeim. Með því öðlastu það sem þú vilt. ®Vatnsberi (20. janúar-18. febrúar) $ Það er meira í gangi en það sem þú veist um. Taktu á öllu með varkárni og íhugaðu hvað það getur boðið þér og vinnustaðnum upp á. V Þótt það sé ekki líkt þér skaltu fylgjast með samkeppni. Það er einhver sem er að gera áætlun sem er andstæð þinni áætlun. Vertu vak- andi og þú getur komið i veg fyrir vandamál. OFiskar (19. febrúar-20. mars) $ Þú ert að bíða eftir upplýsingum en ef þú framkvæmir strax þá áttu von á góðu. Vertu óhrædd/ur. V Ertu viss um að þú sért að hugsa þig vel um eða ertu kannski Para að tefja málið? Þú þarft að halda áfram, sérstaklega i ástarlífinu. Hrútur (21. mars-19. apríl) $ Þetta ákveðna verkefni mun stækka og jafnvel fara úr böndunum. Nú er ágætis tími til að fá utanaðkomandi aðstoð. V Þú ert óvenju varkár op raunsæ/r í dag. Það er ekkert að því. Það er akveðinn aðili sem hefði ánægju af að sjá þig í feimnari kantinum. ©Naut (20. april-20. mai) $ Listræna hlið þín er upp á sitt besta í dag. Hvort sem þú ert að búa til listaverk eða bara endurskipuleggja skrifborðið þá skaltu hafa gaman af. V Hættu þessari varkámi og skemmtu þér vel. Kíktu á tónleika og taktu einhvern sérstakan með. ©Tvíburar (21. maí-21. júnQ $ Vinnufélagar þínir munu skipta sér af mál- efnum sem koma þeim ekki við. Þú þarft meira næði í vinnunni og ættir að ræða það við yfir- menn þína. V Fólk vill hjálpa þér, í alvöru talað. En öll þessi ráð, þótt þau séu ætluð til góðs, eru ekki að hjálpa þér. Þú veist hvað þú þarft að gera svo þú skalt gera þínar eigin áætlanir. ©Krabbi (22. júní-22. júlQ $ Grafðu djúpt í ákveðnu verkefni í vinn- unni. Útkoman mun koma þér skemmtilega á óvart. Láttu vita hvað þú fannst. V Eyddu deginum með nánum vinum, sér- staklega ef þú þarft á góðum ráðum að halda. Vinir eru alltaf til í að hjálpa. Ljón (23. júlí- 22. ágúst) $ Þú ættir að draga þig til baka og íhuga hvað skal gera næst. Þú ert ekki eins fersk/ur og venjulega og það gæti reynst þér erfitt að eiga samskipti við viðskiptavinina. V Þú ættir að endurskoða hvers lags jafn- vægi er í lífi þínu. Ertu að einbeita þér jafnt að vinnunni og einkalífinu? Ef ekki þá þarftu að breyta því. Meyja (23. ágúst-22. september) $ Þú hefur það innsæi sem þarfnast til að redda málunum í dag. Vertu viss um að þú breyt- ir aðeins út af vananum í dag, þú þarft á því að halda. V Það er að birta til. Smáatriðin falla sam- an í góða heildarmynd. Notaðu þennan frábæra dag til að ná þeim árangri sem þú vilt. Vog (23. september-23. október) $ I dag er góður dagur til að heilla og byggja upp samband við víðskiptavini. Þú getur sagt þeim það sem þeir vilja heyra. V Þetta er yfirþyrmandi og leiðinlegur dag- ur. Þraukaðu hann og skipuleggðu svo skemmti- legan kvöldverð fyrir tvo í kvöld. 0 Sporðdreki (24. október-21. nóvember) $ Komdu vinnufélaga á óvart með þvi að að- stoða hann við verkefni án þess að þeir biðji um hjálp. Sú skuld verður endurgoldin. V Þú þarft ekki alltaf að vera út um allt. Það er líka í lagi að slaka aðeins á og gera ekki neitt. Þú ert ekki að missa af neinu. I Bogmaður (22. nóvember-21. desember) $ Þessir litlu gallar sem þú getur yfirleitt hunsað hjá vinnufélögunum munu pirra þig í dag. Ef þú getur lokao að þér eða einbeitt þér að þinni vinnu þá ætti þetta að ganga fljótt ytir. V Ástvinur þinn mun biðja um álit þitt (dag en svaraðu varlega. Þú gætir sært einhverjar til- finningar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.