blaðið - 20.07.2005, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2005 blaðið
25.000 óbreyttir
borgarar látnir
Nýútkomin skýrsla yfir dauðsföll vegna stríðsins í írak:
Hátt í 25.000 óbreyttir borgarar
hafa látið lífið í blóðugum bardög-
um í írak síðan Bandaríkjamenn og
bandamenn þeirra réðust inn í land-
ið í marsmánuði 2003. Þetta kemur
fram í skýrslu sem unnin var af há-
skólamönnum og friðarsinnum og
byggð áyfir 10.000 fjölmiðlafrásögn-
um úr stríðinu. Að meðaltali láta
skýrslunnar. I skýrslunni kom fram
að Bandaríkjaher ber ábyrgð á 37%
hinna 25.000 dauðsfalla en uppreisn-
armenn 9%. Þó ber að athuga að flest
dauðsföll af völdum innrásarmanna
áttu sér stað í upphafi innrásarinn-
ar en um þessar mundir valda upp-
reisnarmenn flestum dauðsföllum
allra. Árásir og ódæðisverk uppreisn-
Irakskur lögreglumaður virðir fyrir sér lík í bifreið eftir skotárás sem banaði þremur
mönnum f Bagdad í gær. Mennirnir, sem voru súnní-múslimar, voru meðlimir f nefnd
sem vinnur að nýrri stjórnarskrá í (raks.
því 34 óbreyttir borgarar lífið á degi
hverjum í Irak af völdum stríðsins.
Innrásarherinn hefur myrt flesta
,Hinn sívaxandi fjöldi látinna í Irak
er kostnaður sem augljóslega gleymd-
ist að reikna með þegar ákveðið var
að fara í stríð í Irak“, sagði John
Sloboda, prófessor, einn höfunda
armanna hafa enda færst verulega í
aukana síðustu misseri. Ofbeldis-
glæpir, sem tengjast stríðinu á óbein-
an hátt, hafa heimt líf 36% þeirra
sem látnir eru og er þar um að ræða
morð sem tengjast t.d. glæpahópum
eða mannránum.
Fimmtungur þeirra sem létust
voru konur og börn og nær helming-
ur dauðsfallanna átti sér stað í höf-
uðborginni Bagdad. Til viðbótar við
hina látnu hafa minnst 42.500 borg-
arar særst, margir hverjir alvarlega
og liggja sumir eftir aflimaðir eða
afskræmdir eftir hrylling stríðsins.
Þá hafa yfir 1.700 bandarískir her-
menn látið lífið og vel á annað þús-
und írakskir lögreglu- og hermenn
hafa verið myrtir síðan öryggissveit-
ir þeirra voru settar á stofn seint á
árinu 2003.
Vilja samtök sem halda
utan um dauðsföll
Iraq Body Count, bresk samtök sem
komu að skýrslunni, vilja setja á
stofn óháða nefnd sem hefði það
hlutverk að skrásetja öll dauðsföll og
hvernig dauða hverrar manneskju
hefði borið að. Mannréttindasamtök
segja Breta og Bandaríkjamenn hafa
klúðrað þeirri skyldu sinni að halda
tölu og upplýsingum um látna. „Það
hlýtur að vera grafalvarlegt áhyggju-
efni að nærri tveimur og hálfu ári
eftir að stríðið hófst, hafa hvorki
bandaríska né breska stjórnin kerf-
isbundið reynt að mæla hvaða áhrif
aðgerðir þeirra hafa haft þegar litið
er til fjölda þeirra óbreyttu borgara
sem látið hafa lífið,“ sagði Slobodan.
Stjórnvöld ríkjanna hafa hins vegar
borið því við að sú upplausn sem rík-
ir í hinu stríðshrjáða landi hafi gert
þeim ómögulegt að halda utan um
slíkar upplýsingar. ■
bjornbragi@vbl. is
Múrsteins-Lára
lögð til hvílu
Enn hefur engin verið dreginn til ábyrgðar á pyntingum og
morði á ungabarni.
Lík stúlkubarns, sem fannst steypt
inn í stærðar múrstein árið 2002,
verður lagt til hvílu á næstu dögum.
Barnið er sagt hafa verið steypt í
múrsteininn fyrir um 15 árum síð-
an og hefur líkskoðari staðfest að
um morð var að ræða. Stúlkan mun
hafa verið á bilinu 4-6 mánaða göm-
ul þegar hún var myrt.
Líkið fannst þegar múrsteinninn
var brotinn upp í bílskúr í Cumbria
á Englandi árið 2002. Eftir rann-
sóknir líkskoðara kom í ljós að lík-
ami stúlkunnar, sem hefur verið
nefnd Lára af lögreglumönnum, var
afar illa leikinn og hún beinbrotin.
Hafði hún, samkvæmt niðurstöðum
rannsókna líkskoðra, verið lamin og
misnotuð kynferðislega áður en hún
var steypt lifandi í steininn. „Þessi
unga stúlka þjáðist gífurlega á með-
an hún lifði", var haft eftir Andy
Carter rannsóknarlögreglumanni
og sagði hann lögregluna hafa helg-
að sig málinu. „Þetta barn er orðið
okkar barn. Barn lögregluliðsins í
Cumbria," sagði Carter ennfremur.
Fjölskylda tengd við barnið
Lögreglumenn sem rannsökuðu
málið fundu á sínum tíma DNA-
sýni sem tengdi barnið við konu að
nafni Anne Chadwick og fyrrum eig-
inmann hennar. Bjuggu þau innan
við 100 metra frá staðnum sem múr-
steinninn fannst á. Voru þau hand-
tekin eftir að rannsóknir sýndu að
Chadwick gæti verið annað hvort
móðir eða systir barnsins, en þeim
var sleppt skömmu síðar eftir yfir-
heyrslur. Rannsóknir gáfu þá sterk-
lega til kynna að barnið gæti verið
dóttir foreldra Chadwicks en þau
er nú bæði látin. Andy Carter sagði
að þó að hann hefði yfirmáta trú
á DNA-sönnunargögnunum væri
ekki þar með sagt að Chadwick-fjöl-
skyldan hefði átt barnið eða valdið
dauða þess.
Múrsteins-Lára verður grafin
sem „ónafngreint kvenkyns unga-
barn“ en Carter sagði að rannsóknin
á dauða hennar myndi halda áfram.
„Rannsókn á borð við þessa tekur
aldrei enda. Við þurfum að undir-
búa okkur fyrir tæknibyltingar á
sviði réttarrannsókna og tryggja að
við séum í aðstöðu til að nýta okkur
þær í þessu máli í framtíðinni", var
haft eftir honum. ■
\
Handklæðaofnar
Verð frá 13.900,-
Afrýjun morðingja
lögreglumanns hafnað
Kamel Bourgass.
Dómstóll í Bretlandi hafnaði í gær
áfrýjun Kamel Bourgass, 31 árs
gamals Alsírbúa, sem dæmdur var
í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða
sérsveitarlögreglumann. Morðið
átti sér stað þegar sérsveitarmenn
gerðu áhlaup á efnavopnarannsókn-
arstofu í Manchester þar sem Bourg-
ass og menn hans höfðust við. Stakk
Bourgass þá fjóra lögreglumenn
með eldhúshníf með þeim afleiðing-
um að einn þeirra lét lífið. Þá var
Bourgass einnig dæmdur í 17 ára
fangelsi fyrir að eiga aðild að áætl-
anagerð um efnavopnaárás, sem þó
var aldrei framin.
Bourgass var einn fimm manna
sem sakfelldir voru um að hafa haft
uppi fýrirætlanir um að dreifa rí-
síni og öðrum eiturefnum á götum
Lundúna. Lögfræðingar Bourgass
áfrýjuðu lífstíðardómnum á þeim
forsendum að kviðdómurinn hafi
verið mengaður af fordómum vegna
ásakana um eiturefnaárás sem hafi
ekki átt við rök að styðjast. Bourg-
ass, sem talinn er tengjast al-Qaeda
samtökunum, hafði sótt um pólit-
ískt hæli í Bretlandi fyrir nokkrum
árum en ekki fengið. ■
HP' Sa!!??S ta aft.Fáa"'«u' "*6 W
Tómstundahúsið
Nethyl 2,
sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
Zardad fékk
20 ára dóm
Afganski stríðsherrann,
Faraydi Zardad, var í gær
dæmdur til 20 ára fangelsisvist-
ar fyrir breskum dómstólum.
Zardad er ábyrgur fyrir afar
hrottafengnum pyntingum
og mannránum sem áttu sér
stað á árunum 1991-1996. Eins
og fram kom í Blaðinu í gær
er þetta sögulegur dómur þar
sem hér er á ferðinni fyrsti
dómurinn í Bretlandi yfir
erlendum manni sem framdi
glæpi sína á erlendri grundu.
Öskrar
nakinn á tré
43 ára gamall Þjóðverji, Dieter
Braun, segir að hjónabandsráð-
gjafi hafi bjargað hjónabandi
sínu með ráði sem hann gaf
honum. Sagði ráðgjafinn hon-
um, eftir að Braun leitaði til
hans vegna erfiðleika í hjóna-
bandinu, að fara reglulega út
í skóg, afklæðast og öskra á
tré til þess að róa taugarnar.
Braun segir þetta vera afar
streitulosandi og segir þetta
hafa fengið hann til að hætta
að rífast og öskra á konuna
sína. „Ef ég myndi ekki fara
út í skóg og öskra á trén væri
hjónabandi mínu lokið“, sagði
Braun. „Það róar mig ótrúlega
mikið að finna goluna leika
um nakið hörund mitt.“
Braun greindi frá þessu eftir
að lögregla handtók hann fyrir
nekt og ólæti á almannafæri.
Unglingsstúlka
í banaslysi á
stolnum bíl
13 ára gömul dönsk stúlka lét
lífið þegar hún ók bíl, sem hún
hafði stolið, á vörubíl. Bílnum
stal hún frá unglingaheimili
sem hún dvaldi á. Lögreglan tel-
ur að stúlkan hafi sofnað undir
stýri en hún mun hafa ekið yfir
á rangan vegarhelming áður
en hún skall á vörubílnum. I
vörubílnum voru tveir menn
sem hlutu minniháttar áverka
en ökumaðurinn ungi lést
samstundis og var bíllinn sem
hún ók, gerónýtur eftir slysið.