blaðið - 20.07.2005, Blaðsíða 24

blaðið - 20.07.2005, Blaðsíða 24
24 I MENNING MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2005 blaðið Ástir dansara Margot Fonteyn og Rudolf Nureyev voru frægasta ballettpar 20. aldar. 1 breska menningarþættinum South Bank Show sem sýndur verður í Bret- landi í næsta mánuði er nýju ljósi varpað á samband þeirra en þau voru miklu meira en vinir þrátt fyr- ir að hún væri í hjónabandi og hann hneigðist til karla. Nureyev var 23 ára þegar hann flúði frá Sovétríkjunum til vestur- landa. Hann var samkynhneigður en átti þó í nokkrum kynferðissam- böndum við konur. Nureyev lést úr eyðni árið 1993 og sagði í síðasta við- tali sem tekið var við hann að hann hefði einungis elskað þrjár mann- eskjur um ævina, tvo karlmenn og Margot Fonteyn. Leikstjóri heimild- armyndarinnar segist sannfærður um að Nureyev hafi verið stóra ástin í lífi Fonteyn. Aðstoðarkona Nur- eyev segir að hann hafi viljað kvæn- ast Fonteyn. 1 þáettinum kemur fram að parið, sem kynntist árið 1962, átti í ástar- sambandi og því er haldið fram að Fonteyn hafi orðið barnshafandi eftir Nureyev en misst fóstrið. Dans- ari segist hafa heyrt Fonteyn hvisla þessu að Nureyev sem komst í mik- ið uppnám. Fleiri dansarar vissu af fósturlátinu. Eiginmaður Fonteyn var sendiherra og bundinn við hjóla- stól eftir að reynt var að ráða hann af dögum árið 1964. I South Bank sjónvarpsþættinum kemur fram að síðustu árin svalt Fonteyn svo að segja og lifði aðal- lega á morgunkorni því hún átti ekki peninga til að kaupa mat. Hún lést árið 1991. g m m |1 * V Jmm V i } * # 'Æ I i m S \ SUMARRAÐGATUR BORGAR SIG F. K K I AÐ UPPLÝSA! ÓS KA R S V f R ÐLAUNA II A 1 I N N j E N N I F E R C O N N E L LY DARK WATER / / / KOMIN I BIO! REYKJAVÍK - KEFLAVÍK - AKUREYRI -1 1 How Do You Like Iceland? Atriði úr sýningunni How Do You Like lceland. Söngvar kvekara og indjána Bandaríski stúlknakórinn Penn- sylvania Girlchoir syngur á hádeg- istónleikum sumartónleikaraðar Hallgrímskirkju fimmtudaginn 21. júlí kl. 12 undir stjórn Marks And- erson. Á efnisskrá kórsins eru með- al annars norður-amerísk þjóðlög, söngvar indjána og kirkjutónlist, negrasálmar og kvekarasöngvar. Stjórnandi kórsins, Mark Ander- son, kom hingað fyrst fyrir 10 árum til að halda námskeið í Skálholti fyrir stjórnendur barnakóra og í framhaldi hefur hann komið reglu- lega til tónleikahalds, bæði sem orgelleikari og kennari í orgelleik og kórstjórn. Undanfarna viku hef- ur kórinn verið á tónleikaferðalagi um ísland og sungið m.a. á sumar- tónleikum í Mývatnssveit og á Akur- eyri. Stúlknakór Pennsylvaníu var stofnaður í september 2004.1 kórn- um eru 80 stúlkur á aldrinum 8 -18 ára frá Philadelphíu-svæðinu. Kórinn syngur við messu í Krists- kirkju Landakoti í dag, miðvikudag. Messan hefst kl. 18 en kórinn syng- ur einnig fyrir messu og byrjar söng kl. 17.40. ■ Leikritið How Do You Like Ice- land? eftir Benóný Ægisson verður frumsýnt í dag, mið- vikudaginn 20. júlí kl. 17, á efri hæð Kaffi Sólons. Verkið er á ensku og er einkum ætlað ferðamönnum. Leik- arar eru tveir, þau Kolbrún Anna Björnsdóttir og Darren Foreman, sem jafnframt er leikstjóri. How Do You Like Iceland? (Er Island eftirlæti yðar flauslegri þýð- ingu) er skemmtiferð í gegnum íslandssöguna að fornu og nýju. í verkinu, sem er tæpur klukkutími að lengd, leika tveir leikarar fjöl- margar persónur sem komið hafa við sögu, allt frá landnámi til vorra loftkœling E Verð frá 49.900 án vsk. daga og endurspegla flest það sem gerir þjóðina einstaka. Áhorfand- inn kynnist m.a. Ingólfi Arnarsyni og þrælum hans, hetjunni Þorgeiri Hávarsyni, ferðabókarhöfundinum Dithmari lygapytti Blefken en einn- ig er fjallað um núlifandi fólki eins og Björk, John Travolta, afkomend- ur víkinga og fornkonunga, íslands- vini og fjandvini landsins. Leikritið er frjálslega vaxið, ein- hverskonar blanda af hefðbundnu leikverki, uppistandi og kabarett. Það er einfalt í uppsetningu, leik- tjöld eru engin og hægt .er að sýna það nánast hvar sem er. I ráði er að sýna það í hefðbundnu leikhúsi, sem hádegis- eða kvöldverðarleik- hús á veitingastöðum, sem kaffileik- hús, skemmtiatriði á ráðstefnum, hótelum eða á söfnum, utanhúss sem innanhúss eða jafnvel um borð í skemmtiferðaskipi. How Do You Like Iceland? verður fyrst í stað sýnt á Kaffi Sólon á mánu- dögum og miðvikudögum kl. 17. Harry Potter snýraftur Ný sendingaf Harry Potter and the Half- BloodPrince er komin í bókabúðir hér á landi. Fyrstasend- ing, 1700 e i n t ö k , s el dis t upp á sól- arhring. I þessari nýju send- ingu eru 600 eintök. Þriðja sending kemur svo í verslanir fyrir helgi. Mikil eftirspurn hefur verið eftir þessari hádramatísku ævintýra- bók sem hefur yfirleitt fengið góða dóma gagnrýnenda. ís-húsid 566 6000

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.