blaðið - 20.07.2005, Qupperneq 12
blaðið—
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
TVÍSKINNUNGUR í
ÁFENGISMÁLUM
Islendingar eru kostuleg þjóð. Til skamms tíma var bannað að
kaupa bjór og enn er bannað að auglýsa ákveðna hluti eins og
áfengi og lyf. Vandamálið er það að slíkar auglýsingar dynja á
landslýð alla daga í gegnum erlendar sjónvarpsstöðvar, erlend blöð
og internetið. Á sama tíma mega innlendir fjölmiðlar ekki auglýsa
þessar vörur. Auðvitað hafa framleiðendur og heildsalar lyfja og
áfengis fyrir löngu fundið leið framhjá þessu banni - ekki síst þeir
sem reyna að koma sem mestu áfengi inn fyrir varir landsmanna.
í fyrstu voru þessar auglýsingar dulbúnar, með því að gefa í skyn
að ekki væri um áfenga drykki að ræða og þar sem ekki var amast
við þeim var sjálfsagt að færa sig upp á skaftið og ganga alla leið. I
dag hellast yfir okkur áfengisauglýsingar úr öllum áttum án þess
að nokkuð sé að gert.
Einn angi þessa máls er bann við sölu áfengra drykkja í verslun-
um. Eigendur þeirra hafa löngum barist fyrir því að fá að selja létt-
vín og bjór í verslunum sínum. Þetta er sjálfsögð krafa, enda tíma-
skekkja að leyfa ekki slíka sölu. Verslanir geta alveg eins gætt þess
að þeir sem eru ekki komnir á aldur kaupi ekki áfenga drykki eins
og ÁT VR. Og þrátt fyrir að ÁTVR hafi í sjálfu sér boðið upp á ágætis
þjónustu og úrval þá er ekkert sem segir að verslunareigendur geti
það ekki líka. Þetta fyrirkomulag hefur gefist ágætlega víða erlendis
og það er ekkert sem segir að það geti ekki gengið hér.
Útspil Nóatúns um daginn þar sem bjór var boðinn með keypt-
um grillum vakti auðvitað fyrst og fremst athygli á löngu úreltum
lögum og reglugerðum sem tímabært er að breyta. Þetta var ódýrt
auglýsingabragð sem auðvitað skilaði tilætluðum árangri, auk þess
sem það vakti athygli á því ófremdarástandi sem ríkir í þessum mál-
um.
Staðreyndin er líka sú að það hefur reynst erfitt fyrir ákæruvald-
ið að sækja þessi mál sem hafa að gera með áfengisauglýsingar. í
þeim tilvikum sem hafa komið til kasta dómstóla hefur málum oft-
ar en ekki lokið með sýknu. Ástæðan er sú að lögin eru á margan
hátt óskýr og hægt að túlka þau á ýmsan hátt. Það er því skiljanlegt
að auglýsendur og aðrir gangi jafn langt og raun ber vitni.
Auðvitað eru skiptar skoðanir á þessum málum, eins og flestum
öðrum. Kjarni málsins er hins vegar sá að það þarf að fá hlutina á
hreint. Á að leyfa áfengisauglýsingar hér á landi eða ekki? Á að leyfa
sölu á áfengum drykkjum í verslunum? Þessi mál verður að ræða,
það er óþolandi að enginn viti hvað má og hvað má ekki í þessum
efnum.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aöalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
12 I ÁLIT
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2005 blaöió
Gísli Marteinn og efinn
Ein óvæntasta
niðurstaðan úr
skemmtilegum
sjónvarpsþætti
sem ég var í á
mánudagskvöld
með Gísla Mar-
teini Baldurssyni
er að hann er
skyndilega grip-
inn miklum efa um hvort hann eigi
að hjóla í Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson,
oddvita Sjálfstæðisflokksins. Það
kom á óvart. Stuðningsmenn hans
hafa um töluvert skeið markaðssett
sjónvarpsstjörnuna sem hinn frels-
andi engil sem á að svífa af himnum
og frelsa Sjálfstæðisflokkinn í borg-
inni — einkum úr klóm Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar!
En nú virðist Gísli haldinn því sem
er hættulegast stjórnmálamanni
— óvissu um hvert beri að stefna.
Ástæðan var nokkuð augljós. Nú er
í gangi skoðanakönnun — eða nýbú-
in — sem framkvæmd er af Gallup
þar sem spurt er um hverja menn
vilji sjá leiða lista Sjálfstæðismanna.
Hugsanlega hefur Gísli Marteinn
pata af niðurstöðunni og finnst hún
ekki nógu góð, eða það sem líklegra
er, ætlar að bíða eftir niðurstöðunni
áður en hann tekur ákvörðun. Ég
held að það sé ekki farsæl afstaða.
Gísli þarf að taka ákvörðun og til-
kynna hana áður en könnunin kem-
ur.f fyrsta lagi virkar það aldrei vel
þegar stjórnmálamenn láta reka fyr-
ir vindum skoðanakannana. Honum
verður þá brigslað um kjarkleysi og
tækifærismennsku af jafnt andstæð-
ingum sem eigin flokksmönnum.
I öðru lagi hafa stuðningsmenn
hans leynt og ljóst ýtt undir það
viðhorf að hann einn gæti hrifsað
Borgina úr höndum Reykjavíkur-
listans. Þeir hafa alið á svipuðu við-
horfi gagnvart Vilhjálmi og Margrét
Thatcher lét uppi gagnvart Geoffrey
Howe en hún sagði að hann væri
álíka hættulegur og dauð rolla. Þetta
hefur veikt stöðu Vilhjálms því yfir-
vofandi framboð Gísla Marteins er
auðvitað ekki hægt að túlka öðru
vísi en vantraust á hæfni oddvitans
til að leiða listann. Þessvegna væri
Össur
Skarphéðinsson
drengilegast að hann gerði hreint fyr-
ir sínum framboðsdyrum hið fyrsta.
Hverjir eru þá möguleika hans? Ég
held þeir sé allnokkrir en ekki alveg
eins miklir og haldið er að almenn-
ingi. Gísli er bráðefnilegur stjórn-
málamaður. En það er honum mót-
drægt hversu stuðningsmenn hans
hafa haldið Gísla Marteini svo stíft
fram sem valkosti við núverandi
oddvita. Þeir markaðssetja hann
sem nýjan Davíð Oddsson. Ákefð
þeirra er slík að ósjálfrátt koma
í hug hin frægu ummæli Lloyds
Bentsen um Dan Quale: „Mr vice-
president — I knew Jack Kennedy...”
o.sv.frv. Þetta hefur þrengt svigrúm
hans til ákvörðunar. Það er einfald-
lega erfitt fyrir hann að hætta við
— nema hann geri það strax.
Innan flokksins er líka litið á
hann sem „up-start.“ Sjálfstæðis-
flokkurinn er færibandaflokkur þar
sem menn vinna sig upp með enda-
lausu striti í ungliðahreyfingunni
og svo í fullorðinsdeildinni. Fullt
af ungu fólki sem lítur á að það sé í
röðinni á undan honum gýtur horn-
auga á lætin í stuðningsmönnum
hans og finnst að sjónvarpsljóminn
eigi ekki að tryggja honum pólitísk
forréttindi. Þau hugsa honum þegj-
ándi þörfina, og það verður grunnt
á Þórðargleðinni ef illa fer.
Og það gæti hugsanlega farið
illa. Vilhjálmur er klókur og hefur
staðið sig býsna vel. Hann hefur
komið sér vel við alla í flokknum og
Alfreð líka. Hann hefur þann stóra
kost í augum meðframbjóðenda
sinna að ætla ekki að verða oddviti
næst ef Borgin tapast. Þessvegna
styðja þau hann öll. Vilhjálmur er
búinn að gera bandalög út og suður.
Guðlaugur Þór styður hann og er öfl-
ugur 1 Borginni þó hann haldi tæp-
ast áfram í borgarpólitík. Júlíus Víf-
ill á ekki annan kost en styðja hann.
Hvað með Kjartan Magnússon,
þann geðþekka pilt? Hann leggur
varla í að styðja nokkurn annan en
foringjann. Hanna Birna styður Vil-
hjálm líka. Það er stöff í þeirri konu
— þó mér finnist hún stundum tala
um of einsog hríðskotabyssa.
Allt þetta fólk hefur sterkt lið með
sér. Ekkert þeirra er líklegt til að
láta stuðningsmenn sína styðja Gísla
Martein — sama hvað hann gerir úr
þessu. í þeirra augum er hann sek-
ur um að vaða yfir þau á sjö mílna
skóm úr sjónvarpinu og láta einsog
hann eigi heiminn — alla vega
flokkinn. Vinni hann er hann bú-
inn að taka sætið sem þau dreymir
öll um þegar Vilhjálmur hættir eftir
að hafa tapað Borginni. Við þær að-
stæður væru honum allir vegir færir.
I raun finnst mér að úr því sem kom-
ið er sé skásti kosturinn fyrir Gísla
Martein að láta slag standa og berj-
ast fyrir fyrsta sætinu. Hann gæti
náð því og fær annan sjens þó hann
eigi litla von um að vinna Borgina
núna. Leiðtogaslagur væri úr því
sem komið er hugsanlega besta leið-
in til að tryggja annað sætið . En gef-
ist hann upp núna eftir allt bröltið
í stuðningsmönnunum — þar sem
99......................
íþeirra augum er hann
sekur um að vaða yfir
þau á sjö mílna skóm úr
sjónvarpinu og láta ein-
sog hann eigi heiminn
— alla vega flokkinn.
prófessor Hannes slær undir nára
— væri það líklegt til að menn teldu
hann ekki hafa nógu mikinn metn-
að eða kjark eftir það sem á undan
er gengið. Hann gæti þá oltið neðar
á listann og hin bjarta ára kringum
pólitíska framtíð hans myndi skað-
ast. Draumurinn í djúpum hjarta
hans um leiðtogastöðuna væri þá
líklega búinn.
Fólk á að berjast fyrir því sem það
trúir á. Ef Gísli Marteinn trúir að
það sé flokknum fyrir bestu á hann
að taka slaginn. 1 öllu falli myndi ég
í hans sporum gera hreint fyrir fram-
boðsdyrum mínum áður en könnun-
in er birt.
Össur Skarphéðinsson,
alþingismaður
www.ossur.hexia.net
Auqlýsinqadeild
510-3744
i í f i f n i §
510-3799
llIUI I 5
510-3700
íbúðalán #
4,15°/o
Kynntu þér kostina viö íbúðalán
Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá
sérfræðingum okkar og veldu
leiðina sem hentar þér best. Hafðu
samband í síma 410 4000 eöa á
fasteignathjonusta@landsbanki.is
Landsbankinn
Banki allra landsmanna
410 4000 I landsbanki.is