blaðið - 20.07.2005, Síða 22
22 I ÍPRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2005 blaöið
Fyndinfréttfrá
fótbolti.net
Skallagrímur og Afríka mættust
í 3-deild karla á Islandsmótinu síð-
astliðinn föstudag. Leikurinn var
skrautlegur í meira lagi og lauk hon-
um ekki fyrr en í hálfgerðu rökkri
um klukkan 22:30 en hann byrjaði
rúmlega átta um kvöldið.
Halldór Breiðfjörð Jóhannsson
dómari leiksins átti í fullt í fangi
með að ráða við leikinn því alls
fengu fjórir leikmenn Afríku rauða
spjaldið i leiknum sem endaði 7-0
fyrir Skallagrími. Öll rauðu spjöld-
in komu í síðari hálfleik sem var um
55 mínútur að lengd.
Tveir leikmenn Afríku fengu
rautt spjald fyrir ljótt brot og eftir
að einn þeirra fékk rauða spjaldið
þá sló hann leikmann Skallagríms
á leið sinni af vellinum. Þá neitaði
einn Ieikmaður Afríku að yfirgefa
völlinn eftir að hann fékk rautt
spjald og fór hann ekki fyrr en eftir
nokkra stund.
Afríkumenn hófu leikinn á föstu-
daginn aðeins 9 en þeir höfðu samt
sem áður 4 leikmenn á varamanna-
bekknum. Tveir leikmenn sem voru
í byrjunarliði Afríku voru ekki
komnir í Borgarnes þegar að leikur-
inn hófst og komu þeir ekki fyrr en
um 10 mínútur voru liðnar af leikn-
um.
f-átba/t/
Fyrir þá sem vilja forvitnast meira
um lið Afríku þá er heimildarmynd
um liðið á leið í kvikmyndahús hér
á landi í október. Myndin sló með-
al annars í gegn á kvikmyndahátíð
í Tékklandi á dögunum en hægt er
að sjá „trailer“ úr henni á heimasíðu
verkefnisins. ■
HK-menn óánægðir með KSÍ
- Liðið verður án Rúriks Gíslasonar í kvöld sem er að leika með U19 ára landsliðinu
HK og Fylkir mætast í kvöld í 8-
liða úrslitum bikarkeppni KSÍ og
VISA. Leikur liðanna fer fram á
Kópavogsvelli og hefst klukkan 19.15.
HK-menn verða án eins sterkasta
leikmanns síns, Rúriks Gíslasonar
sem hefur verið án efa einn besti
leikmaður liðsins í sumar þrátt fyr-
ir ungan aldur en Rúrik er aðeins
17 ára gamall.
Hann er að
leika með
landsliði
I s 1 a n d s
s k i p a ð
leikmönn-
um 19 ára
og yngri á
I
f\A
Svíþjóðamótinu og fór fyrsti leikur
íslands fram í gærkvöldi. HK-menn
sendu inn ósk til KSÍ um að fá leikn-
um við Fylki frestað vegna þátttöku
Rúriks í U 19 ára liðinu en KSÍ varð
ekki við þeirri beiðni sem verður
að teljast mjög svo undarlegt. „Við
sóttum um að fá leiknum frestað
en okkur var skýrt frá því að bréf
hafi verið sent til okkar deginum áð-
ur um að leikjum yrði ekki frestað
vegna þessara unglingalandsleikja,“.
Sagði Kristinn Gunnarsson formað-
ur meistaraflokksráðs HK í gær.
„Svo vorum við búnir að semja við
Rúrik um að hann fengi að fara út
og spila ekki Fylkisleikinn og koma
heim á föstudaginn og spila gegn
Haukum en hann fékk gult spjald
gegn Víkingi Ólafsvík og verður
því í banni gegn HaukunT. „Rúrik
er lítilsháttar meiddur og við báð-
um forráðamenn landsliðsins um
að hann léki ekki alla þrjá leikina
á Svíþjóðamótinu, hann þolir það
einfaldlega ekki“. „Mér finnst þetta
óþarfi í miðju móti hjá KSl að skella
þessu U19 móti á en það virðist vera
mun erfiðara að fresta leikjum hjá
körlunum en hjá konunum þegar
landslið og félagslið skarast," sagði
Kristinn Gunnarsson formaður
meistaraflokksráðs HK í samtali við
Blaðið. Leikur HK og Fylkis fer fram
á Kópavogsvelli i kvöld og hefst eins
og áður sagði klukkan 19.15. ■
FH - Neftchi í kvöld
Það verður svo sannarlega á bratt-
ann að sækja í kvöld fyrir FH-inga
þegar þeir mæta Neftchi frá Azerba-
djan í seinni leik liðanna í forkeppni
Meistaradeildar Evrópu. Leikur lið-
anna fer fram á Kaplakrikavelli og
hefst klukkan 19.15. Fyrri leiknum
lauk með 2-0 sigri Neftchi og skor-
uðu þeir seinna markið á síðustu sek-
úndum leiksins. FH mætir til leiks
án fyrirliða síns en Heimir Guðjóns-
son er meiddur og hið sama er að
segja um Denis Sim.
„Við vissum fyrir leikinn ytra að
þeir væru sterkir og það kom í ljós að
þeir eru með marga góða leikmenn.
Þeir unnu þennan leik sanngjarnt
en á móti kemur að við spiluðum
ekki vel“, sagði Heimir Guðjónsson
í samtali við Blaðið. „Við fengum
svo á okkur mark í uppbótartima
og það var alger óþarfi. Það var virki-
lega klaufalegt hjá okkur. 1-0 hefðu
verið sanngjörn úrslitT
FH-ingar hafa komið fyrir um
1200 sætum sem þýðir
að um 2000 manns geta
keypt sig inn en einungis
er leyfilegt að selja í sæti
á leikjum í Evrópukeppn
inni.
„Ég ætla bara að vona
að fólk styðji okkur í kvöld
því okkar áhangendur hafa
verið frábærir í sumar og ég á
ekki von á öðru en FH-ingar mæti
vel á völlinn í kvöld. Ég met mögu-
leika okkar þannig að þetta sé 50-50
og við verðum að spila sóknarleik.
Við verðum að setja pressu á þá frá
V/SA BIKARINN
8 liða úrslit karla
Laugardaginn 16. júlí kl. 16:00
FH - ÍA
Kaplakrikavöllur - Úrslit: 5 -1
Miðvikudaginn 20. júlí kl. 19:15
HK - Fylkir
Kópavogsvöllur
Fimmtudaginn 21. júlí kl. 19
Fram - ÍBV
Laugardalsvöllur
Fimmtudaginn 21. júlí kl. 19
KR - Valur
KR-völlur
ítarleg umflöllun um bikarielkl sumarslns á www.vlsa.ls/bikarlnn
BIKARINN
byrjun og reyna að koma þeim á
óvart en um leið verðum við að vera
skynsamir. Þeir mega ekki skora og
það er nánast útilokað ef þeir ná að
skora að við skorum fjögur mörk á
þá til baka. Mark á útivelli
er dýrmætt eins og flestir
vita,“ sagði Heimir Guð-
jónsson um leikinn í kvöld
í Kaplakrika en hann hefst
eins og áður sagði klukkan
19.15. Fyrri leik liðanna lauk
með sigri Neftchi 2-0 og því
verður á brattann að sækja
fyrir Islandsmeistarana i kvöld.
Það lið sem hefur betur mætir belg-
íska liðinu Anderlecht í næstu um-
ferð Meistaradeildarinnar. ■
íslandleikur
við Venezúela
og Pólland
Knattspyrnusamband Islands hef-
ur náð að semja við tvær þjóðir um
vináttulandsleiki við A-landsliðið
okkar í knattspyrnu á næstunni.
Landslið Venezúela kemur hingað
til lands 17. ágúst og leikur gegn Is-
landi á laugardalsvelli en landslið
Venezúela er í 70.sæti styrkleikalista
alþjóða knattspyrnusambandsins.
Islenska landsliðið leikur svo
gegn Póllandi í Varsjá þann 7.
október en Pólland er í 23.sæti styrk-
leikalistans. Þetta er vissulega kær-
komið verkefni fyrir landsliðið okk-
ar og vonandi að úrslit verði okkur
hagstæð úr þessum leikjum. ■
Hópferðá
ArsenabChelsea
Icelandair hefur tryggt sér
miða á leik Arsenal og Chelsea
í leiknum um Samfélagsskjöld-
inn sem fer fram á Þúsaldarvell-
inum glæsilega í Cardiff í Wa-
les 7.ágúst næstkomandi. Þetta
er upphafið á leiktíðinni á Eng-
landi og Icelandair hefur tryggt
sér 40 miða í Arsenal-stúkunni
og 40 miða í Chelsea-stúkunni.
Þetta er 4 daga ferð. Farið að
morgni föstudagins 5.ágúst og
gist á lúxushóteli í eina nótt
í London. Á laugardeginum
verður síðan haldið til Cardiff
þar sem gist verður eina nótt á
lúxushóteli og leikurinn verður
síðan á sunnudeginum klukk-
an 14 að staðartíma. Eftir leik
verður síðan haldið til London
þar sem gist verður eina nótt á
sama hóteli og á föstudeginum
og svo verður haldið til íslands
á mánudagskvöldinu. Sannköll-
uð draumaferð fyrir aðdáendur
þessara liða og fyrir þá sem
hafa áhuga þá er hægt að bóka
sig á icelandair.is. Góða ferð og
góða skemmtun.
Crouchfertil
Liverpool
Rafael Benitez framkvæmda-
stjóri evrópumeistara
Liverpool heldur áfram að
sanka að sér leikmönnum fyr-
ir komandi átök i boltanum.
Nýjasta nafnið á Anfield verð-
ur hinn hávaxni framherji
Southampton, Peter Crouch.
Liverpool pungar út um 800
milljónum íslenskra króna og
með kaupunum þykir nokkuð
ljóst að tékkneski landsliðs-
maðurinn Milan Baros fari frá
Liverpool og þá væntanlega til
West Ham United.
Peter Crouch er 24 ára gamall
og gengst í dag undir
læknisskoðun
á Anfield en
hann skoraði
16 mörk fyrir
Southamp-
) ton á síðustu
leiktíð.
ÍÞRÓTTIR
Valtýr Bjöm
IBV fékk stig á útivelli
Keflavík og ÍBV mættust í n.um-
ferð Landsbankadeildarinnar í
knattspyrnu í Keflavík og mættu
um 700 manns á völlinn. Fyrir leik-
inn höfðu eyjamenn ekki fengið
stig á útivelli í deildinni í sumar og
tapað öllum fimm leikjum sínum.
Keflavík hafði aftur á móti ekki
unnið nema einn leik á heimavelli
en þrátt fyrir það átti liðið með sigri
í leiknum möguleika á að komast í
þriðja sæti deildarinnar. Mikið rok
var meðan á leiknum stóð og hafði
það sín áhrif á spilamennskuna.
Fyrsta markið kom ekki fyrr en eft-
ir 48 mínútur en það skoraði Hörður
Sveinsson og var þetta hans fimmta
mark á leiktíðinni. Á þriðju mín-
útu jöfnuðu heimamenn með sjálfs-
marki Gests Gylfasonar. Næstu 20
mínúturnar skiptust liðin á að eiga
færi í leiknum en þegar seinni hálf-
leikur var hálfnaður náðu heima-
menn forystunni á ný þegar ólafur
Jón Jónsson skoraði en hafði komið
inná sem varamaður fjórum mínút-
um áður. Þegar 10 mínútur voru eft-
ir af leiknum jöfnuðu gestirnir með
marki frá Pétri Óskari Sigurðssyni
en hann hafði fyrr í leiknum ógnað
marki Keflavíkur af mikilli grimmd
í nokkur skipti. Lokatölur urðu 2-2
og eyjamenn náðu þarna í sitt fyrsta
stig á útivelli í deildinni í sumar og
það sem meira er að þeir skoruðu 2
mörk sem verður að teljast mjög gott
þar sem ÍBV hafði aðeins skorað eitt
mark í fimm leikjum. ÍBV er þar
með komið úr fallsæti en liðið er nú
í 7.sæti með 10 stig.
Keflvíkingum mistókst aftur á
móti að komast í þriðja sæti og eru
því áfram í fjórða sæti með 16 stig.
Keflavík hefur ekki gengið vel á
heimavelli í sumar en aðeins einn
leikur hefur unnist, þrír endað með
jafntefli og tveir hafa tapast. ■